Freyr

Volume

Freyr - 15.12.1967, Page 11

Freyr - 15.12.1967, Page 11
ig að Urðum og Tjörn, en Upsakirkja hefur verið flutt að Dalvík. Urðir voru annexía frá Tjörn og Upsakirkja var lögð undir Tjörn 1851, en 1917 voru allar þessar kirkj- ur lagðar undir Velli. Stærri-Árskógur á Árskógsströnd var líka lagður undir Velli 1880. Árið 1928 var reist kirkja í Hrísey, en þar var bænhús til 1765. Nú eru Hrísey og Stærra-Árskógssókn sér um prest. í samanburði við þær byggingar, sem nú eru á flestum bæjum í dalnum, gerast hús á Völlum lágreist, en bæjarstæðið er frítt sem fyrr og vinaleg er þéttskipuð bæja- röðin meðfram fjallshlíðunum. Að baki bæjarins rís Vallafjall, gróðursælt og svip- mikið og allt umhverfis dalinn sér til fag- urra fjalla, þótt Stóllinn fyrir miðju dals- ins beri af með sinni pýramídareisn. Um hann skiptist dalurinn í Skíðadal og fram- hluta Svarfaðardals. Lækir falla báðum megin við bæinn á Völlum, og framundan hjallanum, sem bæjaröðin stendur á, taka við breiðir, grasi grónir bakkar, sem Svarfaðardalsá sker í mjúkum sveigum, þegar vel liggur á henni, en geysist yfir með leirburði, þegar hlák- ur eða rigningar trylla hana. Vallakirkja stendur nokkru norðar en í- búðarhúsið, slétt og yfirlætislaus hið ytra og hefur aldrei skartað turni, hlýleg og fögur hið innra, enda ástundað af heima- mönnum og sóknarfólki að ganga vel um hana og prýða. Framan við kirkjuna er klukknaport, sem reist var undir klukku mikla, sem kirkjan fékk að gjöf frá Zoph- oníasi Þorkelssyni í Vesturheimi, árið 1949. Umhverfis kirkjuna er gamall kirkjugarð- ur, en annar nýrri norðar og vestar á tún- inu. Vellir hafa þótt góð bújörð í samanburði Að baki staðarins rís Vallaf jall, gróðursælt og svipmikið F R E Y R 473

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.