Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.12.1967, Qupperneq 12

Freyr - 15.12.1967, Qupperneq 12
Baðstofan, bak við íbúðarhúsið, byggð 1929 við aðrar jarðir í Svarfaðardal, einnig eftir að af henni sneiddust hjáleigur, margar stólsjarðir komust á annarra hendur og engjateigar voru seldir. Fjárjörð er hún svipuð og aðrar jarðir dalsins, vetrarbeit óvíða mikil og fé þungt á fóðrum, en tún hefur farið stækkandi og er nú nægilegt til að bera sæmilegt bú. Hin síðari ár hefur endurbygging húsa á staðnum verið lítil og vík ég að því síðar. Ef saman væru teknar allar upplýsingar um Vallastað í fornum og nýjum heimild- um, yrði það mikill vinna og eftirtekjan heil bók. Útvarpserindi eru sett ákveðin tímamörk og er mér líkt farið og þeim, sem hefur fyrir sér kistu fulla af dýrum gim- steinum og veit ekki hverja velja ber til að skoða, því tíminn endist ekki til að bera þá alla að ljósinu. Ekki er vitað hvenær kirkja var fyrst gerð á Völlum, en fyrsti prestur, sem frá er sagt að þar þjóni, er Guðmundur Arason hinn góði, síðar biskup, og alls er vitað um 43 presta, sem þjónað hafa á staðnum. Kirkjan var frá upphafi tileinkuð Ólafi konungi helga. Guðmundur prestur var vetri miður en þrítugur, þegar kona sú, er Arnþrúður hét Fornadóttir og var frændkona hans, og bjó að Völlum, sendi honum boð og bað hann að ráðast til vistar þangað og umsjár 474 með sér, en hún var ekkja. Er talið, að það hafi verið árið 1190, sem Guðmundur flutti til hennar, „en átti þó bú á einum bæ og var þar lið hans þau misseri“, eins og segir í sögu hans, því þá þegar höfðu margir á- trúnað á helgi hans og fylgdu honum. Vel má vera, að eins hafi verið ástatt um al- menning í Svarfaðardal og bóndann í Viðvík, sem kom að Guðmundi í kirkju og sá fugl fljúga af öxl hans. „Hann þóttist eigi vita hvað fugla það var, því að hann var óvanur að sjá heilagan anda“. Hvað sem því líður, þá varð Guðmundur góði ástsæll af sóknarbörnum sínum, þótt ýmsum hljóti að hafa þótt hann fara af lítilli fyrirhyggju, er hann lagði af stað yfir Heljardalsheiði með fylgdarlið sitt um há- vetur og bæði börn og gamalmenni í hópn- um. Urðu margir úti á heiðinni, en ekki er þess getið, að hann hlyti ámæli af. Jarteiknir gerðust margar fyrir átrúnað á Guðmund meðan hann var á Völlum. Þó reis þverúð milli hans og Þorsteins Þras- laugarsonar, er stundir liðu. Þorsteinn bar það, að Guðmundur prestur tæki til sín það fé, er menn gáfu Guði og helgum mönnum, og ekki þóttist hann vita hvort heldur það væru heilagra manna bein eða hrossbein, er prestur lét kyssa á helgum dögum og há- tíðum. Vildi Þorsteinn fá Guðmund burt af staðnum. Brandur biskup kom í dalinn og kannaði, að alþýða manna var ekki á því máli. Bauð hann Guðmundi staðinn til varðveizlu, en presti þótti sem það myndi verða sér áhyggjusamt og réðist að Upsum. Mun það hafa verið um 1197. Guðmundur prestur hélt skóla að Völlum og oftar er þar getið um skólahald. Sagt er að þegar Arnór Tumason tók Guðmund biskup höndum 1218, þá hafi skólameistarinn, Þórður ufsi, farið til Valla og kennt þar mörgum sveinum um veturinn. Næstur er nefndur Eyjólfur prestur á Völlum og er ekki vitað hvenær hann kom á staðinn, en hins er getið, að þegar Guð- mundur biskup ándaðist, þá hafi hann kom- F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.