Freyr

Volume

Freyr - 15.12.1967, Page 38

Freyr - 15.12.1967, Page 38
 í þjónustu bændanna við hverskyns hlutverk innan húss og utan, og svo eru myndirnar frá öllum lands- hlutum, Gotland hefur ekki gleymst þó að það liggi nokkuð undan landi þar í Botneska flóanum, og þar er sérstaðan með Gotlands sauðfé og Gotlands hesta. Ásamt búskaparháttunum er landslagið og nátt- úrufyrirbærin einatt túlkuð og gerir það aukna fjöl- breytni og meira líf í myndauðgi bókarinnar, hvort sem fremst á myndunum blasa við gömul handverk- færi eða sjálfvirkar vélar, forn lágdyra hreysi eða hallir nútímans þar sem hundruð gripa eru undir sama þaki. Höfundur hefur eigi gleymt að sýna fjölbreytni búskaparþátta eftir náttúrlegum skilyrðum. Þar eru myndir úr ríki ertunnar, sykurrófnanna, skógarins og auðæfa hans, kornyrkjimnar á öllum stigum, heyskapar og heygeymslna, dýranna, veiðanna, bæði á landi og í vötnum, að ekki sé minnzt á bú- fjárræktina og búféð sjálft, sem einstaklinga, sem hjarðir og sem þættir í athöfn hverri með bóndan- um og liði hans fyrr og nú. Þegar búið er að fletta bókinni og skoða þau hundruð mynda, sem þar er að sjá, eykzt forvitnin svo að allt þarf að skoða nánar. Sjón er sögu ríkari en sagan er þarna sögð einmitt í myndum. Svo má náttúrlega bæta því við, að tölurnar tala líka. Meðalaldur sænska bóndans er 54 ár. í fyrra voru bændurnir 193.564 en voru 282.187 fyrir 15 ár- um svo fækkun þeirra er stórfelld á síðari árum en þó hefur framleiðslan ekki dregizt saman, nema mjólkurmagnið. Minnstu búunum hefur fækkað stórlega en þeim hefur fjölgað, sem eru yfir 20 ha að stærð. Kýrnar voru aðeins 950.000 í fyrra en árið 1930 voru þær rúmlega 2 milljónir. Hestar eru að- eins 100 þúsundir en voru um 600 þúsundir 1940. Vélarnar eru komnar í þeirra stað enda keyptu sænskir bændur vélar fyrir 550 milljónir sænskra króna í fyrra. Árið 1939 áttu þeir 25.000 traktora en nú 170.000. Með fullum rétti er sagt og túlkað í máli og myndum: Sænskur landbúnaður er á bylt- ingarskeiði þessi árin. Því er bókin gefin út á tima- mótum, bæði í sögu félagsskaparins og starfshátta og tilveru allrar. Vegleg bók að frágangi og búningi, búnaðarsaga í myndum. — G. 500 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.