Freyr

Volume

Freyr - 15.12.1967, Page 43

Freyr - 15.12.1967, Page 43
Fyrir nokkrum árum gaf samvinnunefnd banka og sparisjóða út ritling, er efla skyldi viðhorf og þekkingu almennings á kostum þeim, sem tengdir eru notkun tékka svo og regur þær, sem hlíta ber um notkun þeirra í daglegum viðskiptum. Fyrrum var nokk- ur óreiða á tékkaviðskiptum og skyldi um- rœddur ritlingur hjálpa fólki til þess að færa til betri vegar notkun þessa auðvelda gjaldmiðils, kenna því að útfylla á réttan hátt og öðlast skilning á gagnserrú hans. Sjálfsagt hefur margt færst til betri veg- ar síðan, en eitt er víst, þetta, að tiltölu- lega lítilli útbreiðslu hefur notkun tékka náð meðal bændastéttarinnar. Þykir því viðeigandi að vekja eftirtekt bænda á hag- kvœmni þessa gjaldmiðils, hvort sem þeir skipta við banka eða sparisjóði. Þessvegna hefur Freyr fengið heimild til að birta meginefni umrædds ritlings og kynna lesendum, sem ekki hafa notfært sér tékkann, hið hagfelldasta tæki, sem völ er á til að inna af hendi greiðslur af ýmsu tagi. Jafnframt er þá nauðsynlegt að kynnast þeim reglum, er gilda um notkun tékkans. Svavar Jóhannsson, skipulagsstjóri Bún- aðarbanka íslands, hefur vinsamlegast að- stoðað um hagræðingu efnisins í samræmi við breytingar, er orðið hafa eftir útgáfu ritlingsins og fallizt á niðurfellingu vissra atriða, sem þar stóðu. Kostir tékka fyrir almenning Þó að tékkar hafi fyrst og fremst gildi sem greiðslutæki í viðskiptum, þá eru þeir einn- ig mjög handhægir og gagnlegir fyrir al- menning. Sérhver maður í nútíma þjóð- félagi þarf að inna af hendi margar pen- ingagreiðslur, þó að hann stundi ekki sjálf- stæðan atvinnrekstur. Sumar eru háar og F R E Y R 505

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.