Skessuhorn


Skessuhorn - 03.06.2020, Qupperneq 8

Skessuhorn - 03.06.2020, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 3. júnÍ 20208 Aflatölur fyrir Vesturland 23.-29. maí. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu Akranes: 10 bátar. Heildarlöndun: 28.094 kg. Mestur afli: Ebbi AK-37: 13.437 kg í fjórum róðrum. Arnarstapi: 18 bátar. Heildarlöndun: 41.151 kg. Mestur afli: Bárður SH-811: 22.602 kg í þremur löndunum. Grundarfjörður: 23 bátar. Heildarlöndun: 500.344 kg. Mestur afli: Drangey SK-2: 155.022 kg í einni löndun. Ólafsvík: 35 bátar. Heildarlöndun: 255.028 kg. Mestur afli: Ólafur Bjarna- son SH-137: 38.250 kg í þremur róðrum. Rif: 25 bátar. Heildarlöndun: 521.419 kg. Mestur afli: Magnús SH-205: 91.562 kg í fjórum löndunum. Stykkishólmur: 20 bátar. Heildarlöndun: 82.857 kg. Mestur afli: Anna Katr- ín SH-316: 8.697 kg í fimm róðrum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Drangey SK-2 - GRU: 155.022 kg. 25. maí. 2. Sigurborg SH-12 - GRU: 77.735 kg. 25. maí. 3. Farsæll SH-30 - GRU: 76.750 kg. 25. maí. 4. Hringur SH-153 - GRU: 68.893 kg. 27. maí. 5. Runólfur SH-135 - GRU: 64.316 kg. 25. maí. -kgk Datt af hjólinu HVALFJSV: Umferðar- slys varð í Hvalfirði á sunnu- dag, skammt frá Hótel Glym. Ökumaður á mótorhjóli lenti í lausamöl og rann, með þeim afleiðingum að hann féll og mótorhjólið lenti ofan á vinstri fótlegg hans. -kgk Með sleða í eftirdragi STYKKISH: Tilkynnt var um krakka sem óku um Stykk- ishólm á vespum með Stigas- leða í eftirdragi á laugardags- kvöld. Lögregla hafði afskipti af þremur drengjum vegna þessa. -kgk Lausaganga VESTURLAND: nokkuð hefur borið á tilkynningum um lausagöngu búfjár undan- farna viku, að sögn Lögregl- unnar á Vesturlandi. Tilkynnt var um laus hross við Reyk- holt á þriðjudaginn í síðustu viku og ekið var á lamb á Snæ- fellsnesvegi á föstudaginn. Á mánudag aðstoðaði lögregla hestamenn með því að loka Vesturlandsvegi við Seleyri, svo þeir kæmust yfir þjóðveg- inn. -kgk Árvekni með börnum í sundi LANDIÐ: „Ekki gleyma að fylgjast með mér“ er yfirskrift nýs árveknisátaks á sund- stöðum sem Umhverfisstofn- un ýtti úr vör á föstudaginn. Markmið átaksins er að minna foreldra, forráðamenn og aðra á að fylgjast vel með börnum yngri en tíu ára þegar þeir fara með þeim í sund. „Óhætt er að segja að landsmenn hafi tekið því fagnandi þegar sundstað- ir voru opnaðir á ný á dögun- um og má búast við að sund- laugar landsins verði vel sótt- ar í sumar. Þar, líkt og annars staðar, gera slysin ekki boð á undan sér og því er rík ástæða til að minna þá fullorðnu á að halda árvekni sinni gagnvart börnum sem þeir bera ábyrgð á í sundi,“ segir í tilkynningu. -mm Verðbólga er 2,6% LANDIÐ: Vísitala neyslu- verðs mældist 480,1 stig í maí mánuði samkvæmt nýj- ustu mælingu Hagstofunnar sem birt var á fimmtudaginn. Verðlag hækkaði um 0,54% milli mánaða og mælist verð- bólga nú 2,6% á ársgrundvelli. Meiri hækkun mældist ef horft er fram hjá áhrifum húsnæð- iskostnaðar, eða 0,88% milli mánaða, og mælist verðbólga án húsnæðis nú einnig 2,6%. Verð á mat- og drykkjarvörum hafði mest áhrif til hækkunar á vísitölunni í maí en alls hækk- aði sá liður um 1,6% (0,24% vísitöluáhrif). Innfluttar vörur hækkuðu þó einnig skarpt, t.d. verð á nýjum bílum um 3,7% (0,2%) og verð á húsgögnum og heimilisbúnaði um 2,9% (0,16%). Á móti lækkaði hús- næðiskostnaður, þ.e. reiknuð húsaleiga um 0,6% (-0,11%). -mm Bílabúð Benna var stofnuð í maí árið 1975 og fagnar því 45 ára af- mæli sínu í ár. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að upphafið á 45 ára sögu fyrirtækisins megi rekja til þess að Benedikt Eyjólfsson og Margrét Beta Gunnarsdóttir, þá bæði 17 ára gömul, höfðu komið sér upp aðstöðu fyrir bíla- og mót- orhjólaviðgerðir, í óupphituðum skúr að Vagnhöfða 23 í Reykjavík. Hann gekk undir heitinu „Græni skúrinn“ og þar var lagður grunn- ur að rekstri, sem nú hefur staðið í 45 ár. Að sögn Benedikts Eyjólfssonar framkvæmdastjóra mun fyrirtæk- ið fagna þessum tímamótum með margvíslegum hætti í ár. „Þetta verður sannkallað afmælissum- ar hjá okkur, því svo skemmtilega vill til að afmælisárið ber upp á sama tíma og planið var að frum- sýna virkilega spennandi nýja bíla frá Opel og Porsche,“ segir Bene- dikt. „Þar má nefna tímamótabíl- inn Porsche Taycan 100% rafbíl, metsölubílinn Opel Corsa, sem kemur nú 100% rafdrifinn og síð- ast en ekki síst, 300 hestafla 4X4, Opel Grandland X E Hybrid, sem er hreint magnaður jeppi fyrir fjöl- skylduna. „Afmælissumarið mun því einkennast af mörgum vegleg- um viðburðum og tilboðum og við hlökkum til að hitta sem flesta af gömlum og nýjum viðskiptavin- um,“ segir Benedikt í tilkynningu til Skessuhorns. mm Lindaskóli í Kópavogi sigraði Skólahreysti 2020 og vann þar með keppnina annað árið í röð. úrslitakeppnin fór fram í Laug- ardalshöll síðastliðinn laugardag og var æsispennandi allt til enda og lauk Lindaskóli keppni með 43 stig. Heiðarskóli í Reykjanesbæ var í þriðja sæti í fyrra en hafnaði í öðru sæti í ár með 37 stig. Árbæj- arskóli endaði svo í þriðja sæti með 33 stig. Íslandsmet Hjálmars Óla jóhannessonar úr Egilsstaðaskóla frá 2016, 61 upphífing, var slegið af Ara Tómasi Hjálmarssyni sem gerði 67 upphífingar. Selma Bjarkadóttir úr Lindaskóla gerði flestar ambeygjur, 54 tals- ins. Systir Selmu, Sara Bjarkadótt- ir keppti í hraðaþraut ásamt Lúk- asi Magna Magnasyni og fóru þau brautina fyrir Lindaskóla á besta tíma ársins, 2:07 mínútum. Erlín Katla Hansdóttir í Flóaskóla, hékk lengst í hreystigreipinni eða í 8,52 mínútur. Goði Gnýr Guðjósson úr Grunnskólanum á Hellu bar sigur úr býtum í dýfum og tók samtals 59 dýfur. Sigurlið Lindaskóla skipa Lúkas Magni Magnason og Sara Bjarka- dóttir (hraðaþraut), Alexander Broddi Sigvaldason (upphífingar og dýfur) og Selma Bjarkadóttir (armbeygjur og hreystigreip). Aðrir skólar er kepptu í úrslitum í ár voru Lundarskóli, Flóaskóli, Varmahlíðarskóli og grunnskólar Hellu og Húnþings vestra. mm Lionsklúbbur Ólafsvíkur afhenti nýlega sóknarnefnd Ólafsvíkur- kirkju þrjú hundruð þúsund króna styrk í söfnun fyrir lyftu til að bæta aðgengi inn í kirkjuna. Tröppurn- ar inn í kirkjuna eru háar og erfiður farartálmi fyrir marga sem treysta sér þess vegna ekki til að fara í kirkju. Safnast hafa tæplega fjórtán hundruð þúsund krónur, en kostn- aður vegna lyftunnar er á bilinu 2,5 - 3 milljónir. Lyftan verður stað- sett í barðinu við tröppurnar, sömu megin og inngangurinn í safnaðar- heimilið. Það var Gunnsteinn Sigurðsson sem veitti styrknum viðtöku fyr- ir hönd sóknarnefndar. Er sókn- arnefndin Lionsklúbbi Ólafsvíkur þakklát fyrir höfðinglega gjöf, sem og öðrum sem hafa styrkt söfn- unina. Fyrir áhugasama er hægt að kynna sér hugmyndir um bætt að- gengi í kirkjuna á heimasíðu kirkj- unnar www.kirkjanokkar.is og þeir sem vilja legga söfnuninni lið geta lagt inn á söfnunarreikning 0190-15-10099, kt. 500269-4999. þa Lions styrkti Ólafsvíkurkirkju til lyftukaupa Sigurliðinn á verðlaunapalli. Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans afhenti verðlaunin en bankinn er aðalstyrktaraðili Skólahreysti. Árbæjarskôli er lengst til vinstri, Lindaskóli og sigurvegarar mótsins eru fyrir miðju og svo lið Heiðarskóla hægra megin. Lindaskóli varði titilinn í Skólahreysti Bílabúð Benna 45 ára

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.