Skessuhorn


Skessuhorn - 03.06.2020, Síða 20

Skessuhorn - 03.06.2020, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 201920 Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn Kíkt á strandveiðisjómenn á Arnarstapa Það var rjómablíða mánudaginn 18. maí síðastliðinn á Arnar- stapa þegar ljósmyndari Skessuhorns kíkti á lífið hjá sjómönn- um sem ýmist gera þaðan út á strandveiðar eða eru að veiða upp í kvóta. Þá voru réttar tvær vikur liðnar af strandveiði- tímabili sumarsins og vel á fjórða tug báta komnir til veiða. Það er því þétt raðað í höfninni. Menn létu almennt vel af sér enda varla annað hægt í ljósi veðurs og aðstæðna á þessum fal- lega stað. nokkrir höfðu náð skammti dagsins, en ekki allir. Það er ekki alltaf á vísan að róa. Sjómenn á Stapanum koma víða að, enda þekkt að stutt sé þaðan á fengsæl fiskimið og oft lygnara en norðan við nesið. af Vilmundur Óskarsson á Vorsól SH sagði að þessi róður hafi verið erfiður. „Ég var samt þokkalega ánægður með aflann,“ sagði hann. Vilmundur hefur róið frá Arnarstapa í 30 sumur. Helgi Kristjánsson á Kristjáni HF frá Hafnarfirði rær frá Arnarstapa. Hann er með 17 tonna kvóta og segist vera sáttur við gang veiðanna í sumar og gengið vel að fiska. Helgi er búinn að vera 18 ár á sumrin á Stapanum. Þorgeir Guðmundsson á Þyt MB frá Borgarnesi var ekki beint sáttur við aflabrögð mánudaginn 18. maí. Hann var með 400 kíló en nokkrum dögum áður var hann að fá 2,5 tonn. „Þetta er ýmist í ökkla eða eyra, en handfærin eru alltaf jafn skemmtileg og gaman að koma á Arnarstapa á sumrin,“ sagði Þorgeir, en hann hefur gert þaðan út á hverju ári síðan 1985. Geir bóndi er einn af fáum ábúendum á Arnarstapa og lá vel á honum þrátt fyrir að hafa verið að glíma við lungnabólgu í vor. „Ég var síðastur út og bara fyrstur inn. Er hálfslappur enn,“ sagði Geir. Aflinn var 600 kíló. „Ég er bara sáttur við það.“ Bergsveinn Þorkelsson á LEA RE var ekkert sérstaklega sáttur við aflabrögðin. „Þetta eru bara 400 kíló, en þetta getur gerst. Þetta er náttúrlega bara veiði- skapur og þýðir ekkert að æsa sig yfir þessu. Svona dagar hafa oft komið síðan ég byrjaði að róa héðan árið 1988,“ sagði Bergsveinn. Ragnar Guðmundsson á Ríkeyju MB sagði að fiskurinn hafi verið tregur. „En það var mjög gott hér fyrr í sumar, svo þetta kemur allt.“ Einar Jónsson á Hrafnborgu SH sagðist vera bara sáttur við daginn. „Ég náði skammtinum og er því sáttur,“ sagði hann. Gísli Páll Guðjónsson á Valdísi AK var sáttur með daginn, enda með skammtinn. „Ég ræ héðan frá Stapanum eitthvað áfram, en svo þegar líður á færi ég mig yfir á Suðureyri þaðan sem ég er ættaður.“ Aflakóngurinn Stefán Jónsson, Stebbi á Grími AK, lætur sig ekki muna um að róa þrátt fyrir að liðböndin í ökklanum séu í ólagi. „Meiðslin verða að bíða betri tíma,“ sagði Stebbi skælbrosandi. „Ég er með tvö tonn af ufsa og 700 kíló af þorski í dag, en ég er ekkert sáttur með fiskverðið sem er til skammar þessa dagana.“ Ólafur Gíslason á Sigurborgu var hinn rólegasti að bíða eftir löndun. „Það er bara ekkert annað en vera sáttur við aflann í dag í þessu góða veðri og fallegri náttúru á þessum slóðum. Héðan hef ég róið á sumrin síðan 1980. Í dag var ég að ná 600 kílóum,“ sagði Ólafur og naut góða veðursins meðan hann beið eftir að röðin kæmi að sér. „Þetta gekk bara fínt,“ sagði Víðir Haraldsson á Muggi SH. „Ég náði skammtinum og er með sennilega 700 til 800 kg af ufsa svo þetta er bara fínn dagur,“ sagði Víðir kampakátur með daginn.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.