Skessuhorn


Skessuhorn - 03.06.2020, Síða 39

Skessuhorn - 03.06.2020, Síða 39
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2019 39 Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn ekkert meira en feiti, kartöflur og rófur í matinn þann daginn. Gátum náttúrlega ekki annað en hlegið að þessu, en karlinn var öskuvondur að við hefðum hent matnum. Mað- ur gerði ýmis strákapör í þessum dúr á sjónum.“ Miðjarðarhafið skemmtilegast „Mér þótti skemmtilegast að fara í Miðjarðarhafið. Við fórum oft á haustin í tvo, þrjá túra og sigld- um þá með saltfisk. Með þessum túrum hvarf veturinn fyrir manni. Þetta var nánast eingöngu sum- ar sem maður upplifði,“ útskýrir Beggi. „Við vorum kannski þrjár vikur hérna heima á strönd að lesta salt- fisk, allt upp í 50 hafnir. Fórum svo til Portúgals og losuðum þar á kannski 6-7 höfnum. Þarna vorum við alltaf í sól og á baðströndinni og svona. Svo fórum við stundum til Ítalíu og tókum olíu í Marokkó, Gíbraltar megin. Fórum svo áleiðis til Aþenu. Það var mjög skemmti- legt að fara þarna niður eftir og góð tilbreyting. Veturinn var alveg svakalega fljótur að líða. Svo tók- um við yfirleitt salt heim, það var tekið á Spáni. Þá lögðumst við að bryggju þar og tveimur færibönd- um var komið fyrir og skipið fyllt af salti. Það er ennþá gert í dag.“ Misteknir fyrir fyllibyttur Á áttunda og níunda áratugn- um voru strangar reglur yfir vín og bjór á Íslandi og fékk Beggi að kynnast því á sjómennskuárunum. „Við máttum vera með tvær flösk- ur og eina upptekna ef við vorum lengur en 20 daga frá Íslandi. Ef við vorum innan við 20 daga þá mátti bara vera með eina upptekna og eina flösku. Þegar maður kom svo í land þá var oft verið að biðja mann um að selja sér bjór því mað- ur kom alltaf með einn til tvo kassa af bjór með sér úr túrum.“ Blaða- maður spyr um leið hvort hann hafi selt af sínum lager? „ja, jú, stundum,“ svarar hann varlega. „Það var til dæmis einn strák- ur á Helgafellinu sem var kannski með fjórar dósir af bjór í ruslaföt- unni hjá sér og svo alltaf nokkrar í ísskápnum hjá sér. Sumir tollararn- ir voru alveg vitlausir yfir þessu og tóku allar auka dósir af strákunum. Það mátti bara vera með einn kassa, ekki einhverjar auka dósir hingað og þangað. Svona var verið að elta einhverja smáhluti sem skipta engu máli,“ bætir hann við og hristir hausinn. „Ein kona sem ég þekkti var alltaf með magaverki svo ég lét hana allt- af hafa bjórkassa, þá lagaðist hún í maganum. Hún sagði bjórinn vera meðalið sitt,“ segir Beggi kíminn. Það kom líka fyrir að fólk taldi sjómenn vera fyllibyttur, þegar þeir fóru í land til að skemmta sér í sínum fríum, gjarnan í miðri viku. „Við komum aldrei að landi um helgar þegar allir Íslendingar voru fullir að skemmta sér. Við komum yfirleitt á mánudegi eða þriðjudegi í höfn, þá kíktum við út á lífið og duttum í það. Við vorum bara ung- ir menn sem vildum skemmta okk- ur, fórum á staði eins og Röðul og Þórskaffi sem voru aðal skemmti- staðirnir þá. En um helgar, þegar landinn skemmti sér, þá vorum við alltaf edrú að vinna,“ segir Beggi. Fáir sem kvöddu Beggi segir þá sjómenn hafa ver- ið mjög vinsæla þegar þeir komu í land með alls konar gjafir eftir túrana sína til sjós. „Maður reyndi að kaupa eitthvað fallegt fyrir systkini og frændsystkini sín hverju sinni. Ég keypti stundum fína te- bolla fyrir mömmu og einu sinni keypti ég meira að segja kristalsvasa í Póllandi og gaf henni þegar ég fór í heimsókn í Borgarnes. Mað- ur kom alltaf með eitthvað. Heilu ávaxtakassana og vinsælu Machin- tos sælgætisdósirnar sem fengust ekki á Íslandi þá,“ segir Beggi. „Við vorum vinsælir þegar við komum í land en það voru fáir sem kvöddu okkur þegar maður fór, þá sást enginn,“ segir Beggi að lok- um. glh Mikilvægt var að skrá allar sjóferðir í þar til gerða sjóferðabók. Beggi starfaði lengi á Langánni hjá Hafskipi hf. Hér er lestað í Gautabrog. Ljósm. Bjarni Halldórsson. DALBRAUT 16, AKRANESI - www.smaprent.is LEIKFÖNG | GJAFAVÖRUR OPNUNARTÍMI: MÁN-MIÐ: 14-17 FIMMTUDAGA: 17-20 Helgaropnun auglýst inn á facebook MERKT SVUNTA 3.590 KR ÖRYGGIS- VESTI VERÐ FRÁ: 690 KR MERKT PEYSA 3.990 KR BOLUR 1.000 KR HÚFUR VERÐ FRÁ: 990 KR HÚFUR VERÐ FRÁ: 990 KR MERKTUR SPORTPOKI 2.990 KR 10 ÁRA

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.