Skessuhorn - 03.06.2020, Page 42
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 201942
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
Pétur Pétursson, útgerðarmaður og
skipstjóri, hefur verið lengi til sjós.
Alla tíð hefur hann róið til fiskjar
frá Arnarstapa en á veturna hefur
einnig verið róið frá Ólafsvík, eink-
um í seinni tíð. Skessuhorn hitti
Pétur að máli á bræludegi á Arnar-
stapa nú fyrir skömmu og ræddi við
hann um útgerðina, sjómennskuna,
pólitík og áhugasama afastráka.
Ættliðurinn sem flutti
Pétur er frá Malarrifi í gamla
Breiðuvíkurhreppi. Alinn upp með
Snæfellsjökul í bakgarðinum og
Lóndranga í túnfætinum heima. Þar
hófu hann og Lovísa Olga Sævars-
dóttir sinn búskap og eignuðust sín
börn, Pétur og Selmu, eins og for-
feður Péturs á undan honum. „Við
fjölskyldan bjuggum á Malarrifi til
1994, þegar við fluttum hingað á
Stapa. Forfeður mínir áttu Malar-
rif í gamla daga, þar til ríkið keypti
upp allar vitajarðir í landinu á tíma-
bili. Ég var fimmti ættliðurinn á
Malarrifi og börnin mín sjötti ætt-
liðurinn. En ég var sá sem ákvað að
fara,“ segir Pétur. „Það verður ein-
hver að gera það á endanum. Ég var
alltaf með útgerðina mína á Stapa
og börnin að byrja í Lýsuhólsskóla,
það er mun styttra að fara þangað
frá Stapa en frá Malarrifi. Aðstæð-
ur breytast og það er ólíkt betra að
öllu leyti að vera hérna á Stapa,“
segir hann. „Við konan eigum líka
húsnæði í Ólafsvík sem við keypt-
um 2008. Þar höfum við mest ver-
ið á veturna undanfarin ár og gert
út þaðan yfir vetrarmánuðina. En
við komum alltaf hingað á vorin
og ég geri út gamla bátinn héðan,
allavega út maí.“
Nýi Bárður reynst vel
Seint á árinu 2017 ákvað Pétur að
ráðast í það að láta smíða fyrir sig
nýjan bát, Bárð SH-81. Hann kom
til heimahafnar í Ólafsvík á Þor-
láksmessu 2019 og var aflahæsti
netabáturinn á gömlu vetrarver-
tíðinni, með 2.311 tonn af óslægð-
um fiski upp úr sjó. Mun það vera
nýtt Íslandsmet og ekki hægt að
segja annað en að nýi báturinn hafi
reynst vel það sem af er. „Það á að-
eins eftir að laga og gera smávægi-
legar breytingar en heilt yfir hefur
þetta gengið þokkalega. Hann fékk
mikla eldskírn í þessum veðraham
sem var hér í vetur, það voru stór-
viðri í janúar og febrúar. En það
gekk vel að veiða, fullt af fiski, mik-
il fiskgengd og er enn,“ segir hann.
Að jafnaði segir Pétur að skip-
verjar á nýja Bárði verði sex til átta
talsins. „Við vorum reyndar sjö til
átta um hávertíðina. Það veitti ekki
af því, handtökin sem þarf að vinna
eru mörg og veðrið var leiðinlegt.
Það verður allt miklu erfiðara þegar
veður eru slæm,“ segir hann.
Bárður er gerður út á þorskanet
en Pétur segir að til standi að fara á
dragnót með haustinu. „Við höfum
ekki verið á dragnót áður og mein-
ingin er að prófa það seinni part
sumars og vera á dragnót í haust.
Það hefur stundum verið erfitt að
fiska í netin á haustin. Svo vorum
við að hugsa um að fara líka í aðr-
ar tegundir en þorsk, veiða kannski
meira af skarkola og ýsu. Það var
allavega ákveðið að setja dragnót-
arbúnað í bátinn, sem var ekki ætl-
unin í upphafi. En það er gott að
eiga möguleika á fleiri en einu veið-
arfæri, það geta komið ár þar sem
veiðist illa í net en vel í dragnót,
og öfugt,“ segir hann. „Svo er líka
bara viss tilbreyting fólgin í þessu,
aðeins önnur handtök og tilhlökk-
un að glíma við eitthvað nýtt,“ bæt-
ir hann við.
Stapinn togar
Með vorinu hefur Pétur fært sig
yfir á Stapa og sækir þaðan sjó-
inn á Bárði eldri. Hann segir ekki
standa til að leggja gamla bátnum
þó sá nýi hafi verið tekinn í notk-
un. „nei, Stapinn togar svo í mig,“
segir Pétur og brosir. „Það er svo
gaman að koma hingað á vorin. Ég
er alinn upp við að róa frá Stapa
og héðan er gott að fiska, stutt á
miðin og svæðið skemmtilegt. Ég
sé ekki fyrir mér að sleppa hend-
inni af því og reikna með að róa
héðan á gamla bátnum á vorin um
ókomna tíð, að öllu óbreyttu,“ seg-
ir hann. Ferðin frá Stapa á miðin er
stutt, aðeins þrjár til fimm sjómílur
að sögn Péturs. Almennt séð seg-
ist hann reyndar ekki fara í lang-
ferðir eftir fisknum. „Við förum til
Pétur Pétursson frá Malarrifi:
„Sjómennskan á við mig, það er bara svoleiðis“
Pétur Pétursson um borð í gamla Bárði í höfninni á Arnarstapa.
Á bryggjunni á Stapa, þaðan sem Pétur gerir út á vormánuðum. „Það er svo gaman að koma hingað á vorin. Ég er alinn upp
við að róa frá Stapa og héðan er gott að fiska, stutt á miðin og svæðið skemmtilegt.“