Skessuhorn - 03.06.2020, Page 47
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2019 47
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
Eskey ÓF er 27 brúttótonna
króaaaflamarksbátur sem gerður er
út frá Akranesi á vorvertíðinni og
eitthvað fram á sumarið. Eskey ÓF
er í eigu Bjarna Bragasonar útgerð-
armanns frá Hornafirði en Þrá-
inn Þór Þórarinsson er skipstjóri á
bátnum árið um kring.
„Pabbi var sjómaður alla sína tíð
og ætli það sé ekki ástæðan fyrir því
að ég er sjómaður í dag. Mér þótti
þetta alltaf flottustu karlarnir þegar
ég var ungur. Þá voru sjómenn vin-
sælir og mun meiri virðing borin
fyrir þeim og þeirra störfum heldur
en í dag finnst mér,“ segir Þráinn í
samtali við Skessuhorn. Hann hef-
ur nú verið á sjó í 35 ár. „Það er lítil
sem engin aðsókn í sjómennsku nú
orðið,“ bætir hann við.
Eskey ÓF er línubeitningarbátur
sem veiðir að mestu ýsu og þorsk.
„Við erum hér í Faxaflóanum á vor-
in og sumrin en förum svo norður á
Ólafsfjörð yfirleitt í ágúst og erum
þar yfir vetrartímann. Þar er mun
kaldari sjór og meira dýpi. Hér er
svo mikil flatneskja,“ útskýrir Þrá-
inn. Ásamt Þráni eru þeir fjórir í
áhöfninni í hverri veiðiferð. Að-
spurður segir hann þá félaga lenda í
alls konar úti á sjó en að mikilvægt
sé að skilja öll leiðindi eftir áður en
komið er í land. „Maður er ekkert
að segja frá öllu. Eins og ég segi,
það getur komið ýmislegt upp en
maður er ekkert að tala um það,“
bætir hann við.
Alltaf á sjó
Þráinn segir sjómennskuna hafa
sína kosti og galla eins og flest ann-
að. „Það er mikilvægt að bera virð-
ingu fyrir sjónum og beita skyn-
seminni eins og þegar það er bræla
og óhagstætt veður. Þá er ekkert
vit í því að þrjóskast af stað. Það er
mikilvægt að fylgjast vel með veð-
urspánni hverju sinni því þegar við
förum svo loksins út þá geta liðið
allt að 18 tímar þangað til við snú-
um aftur heim,“ segir hann.
Aðspurður segir Þráinn ekki get-
að hugsað sér að starfa einhvers
staðar annars staðar en á sjó en að
pabbi sinn hafi komið með ákveðna
hugmynd á sínum tíma. „Það var
einu sinni í umræðunni, og komið
í einhvern farveg, að senda mig til
japans til að læra að útbúa flottroll
sem eru notuð á stóru togarana. Það
þótti voðalega sniðug hugmynd og
átti ég svo að fara í framhaldi af því
námi að vinna fyrir stóru togarana
hérna á Íslandi. En mér leist ekk-
ert á það svo það varð ekkert úr því
sem betur fer. Ætli ég væri því ekki
að vesenast eitthvað á bryggjunni ef
ég væri ekki á sjó.“
Fiskur í öll mál
„Ég borða fisk fjórum sinnum í
viku,“ segir Þráinn sem borðar ein-
ungis fisk sem hann veiðir sjálfur.
„Ég kaupi aldrei fisk. Svo geri ég
mikið reyktan og grafinn fisk sjálf-
ur. Þetta er algjört lostæti,“ bætir
hann við.
Þegar Þráinn er ekki á sjó þá er
hann annað hvort heima með fjöl-
skyldunni eða fer og veiðir silung á
flugu í frítímanum. „Ímyndunar-
aflið er ekki öflugra en þetta,“ segir
hann og hlær.
Þráinn er búsettur á Akranesi
ásamt konu sinni. Saman eiga þau
þrjár dætur og fimm barnabörn.
Hann segir fimm ár þangað til
hann getur hætt á sjónum og farið
á eftirlaun. „Ætli ég kaupi mér ekki
trillu til að hafa eitthvað að gera
þegar ég hætti að vinna á sjó, það
væri gott að hafa eitthvað svoleiðis
fyrirkomulag,“ segir sjómaðurinn
Þráinn að endingu.
glh
Í tuttugustu og áttunda sinn frá
upphafi kemur Sjómannadags-
blað Snæfellsbæjar út. Það byrjar
á áhugaveðri hugvekju eftir fyrr-
um sóknarprest okkar sr. Óskar
Hafsteins Óskarssonar en hann er
nú prestur í Hrunakirkju á Flúð-
um. Þá er Kristján Þór júlíusson
sjávarútvegsráðherra með ávarp til
sjómanna. Systkinin Berglind og
Lárus Sigurður, börn Ásgeirs jó-
hannessonar og Sæunnar Sveins-
dóttur voru svo vinsamleg að
senda blaðinu greinar um störf sín
en þau vinna bæði þýðingarmikil
störf erlendis. Berglind er sendi-
herra Íslands í Moskvu og Lárus
stjórnar stærsta rækjueldi í heimi
sem er í Saudi Arabíu en Berglind
og Ásgeir eru bæði fædd í Ólafsvík.
Haraldur Ingvason úr Snæfellsbæ
er sjómaður á fiskibáti í Hammer-
fest í noregi og er hann tekinn tali
og segir m.a. frá útgerð togarans
Ottar Birtings sem upphaflega átti
að veiða rækju við Indland.
Áhugaverð grein er eftir Fríðu
Sveinsdóttir athafnakonu í Ólafs-
vík en hún tók sig til og gekk með
hópi fólks upp í grunnbúðir Eve-
rest á sl. ári sem er mikið afrek.
Hún segir frá ferðinni í máli og
fallegum myndum. Ragnheiður
Helgadóttir segir frá æsku sinni í
Ólafsvík en hún er fædd 1944 en
missti móður sína er hún var tólf
ára. Hún varð að hjálpa föður sín-
um að ala upp fimm yngri systkini
sem reynt hefur sannarlega á svo
unga stúlku. Bárður Eyþórsson fv.
körfuboltamaður og góður þjálfari
frá Stykkishólmi segir lesendum
frá því í viðtali hvað varð til þess
að hann er orðinn skipstjóri á ein-
um nýjasta og glæsilega skuttogara
landsins; Drangey SK frá Sauðár-
króki.
Tryggvi Leifur Óttarsson fv.
framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs
Íslands segir í góðri grein frá sínu
lífi og starfi en hann og fjölskyld-
an búa í Svíþjóð. Hann var sjó-
maður áður og lenti í ótrúlegri í
lífshættu en hann segir frá hvern-
ig hann bjargaðist og margt fleira
hefur á daga fjölskyldu hans drifið.
Forseti Íslands; hr. Guðni Th jó-
hannesson heimsótti Snæfellsbæ á
liðnu ári og sagt er frá því. Skip-
stjórinn á Steinunni SH hann
Brynjar Kristmundsson er tekinn
tali og segir hann frá miklum afla
og hvernig síðasta vertíð gekk.
Baldur Ágúst Sigþórsson yfir-
stýrimaður á Helgafelli segir frá
sínu starfi og þá er rætt við fram-
kvæmdastjórana Kristínu Vigfús-
dóttur í Ólafsvík og Guðmund
Smára Guðmundsson í Grundar-
firði.
Þá segir sagnamaðurinn Hjört-
ur Valdimarsson frá Skjaldartröð
á Hellnum sögur frá æsku sinni
þar suður frá. Líka segir hann frá
skemmtilegum kynnum sínum við
Ólafsvíkinga er hann réði sig á bát
í Ólafsvík 1952. Sagt er í máli og
myndum frá komu fjögurra glæsi-
legra skipa til Snæfellsness á sl.
ári. Þá er sjómannadögum í þeim
bæjum á Snæfellsnesi sem héldu
þá 2019 gerð góð skil með mörg-
um og skemmtilegum myndum.
Margt fleira er að sjá og sjón er
sögu ríkari.
Blaðið sem er 88 síður er brotið
um í Steinprenti í Ólafsvík og rit-
stjóri og ábyrgðarmaður er Pétur
Steinar jóhannsson. Blaðið verð-
ur til sölu á Reykjavíkursvæð-
inu í versluninni Gleraugna Pétri
Garðatorgi 4a Garðabæ.
-fréttatilkynning
Fallegur fiskur úr Eskeyju sem landað var snemma í maí. Ljósm. mm.
„Mikilvægt að bera virðingu fyrir sjónum“
Rætt við skipstjórann á Eskey ÓF
Þráinn Þór Þórarinsson hefur verið á sjó í 35 ár.
Þráinn er skipstjóri á Eskeyju ÓF sem gerir út frá Akranesi og Ólafsfirði.
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2020