Skessuhorn


Skessuhorn - 03.06.2020, Page 49

Skessuhorn - 03.06.2020, Page 49
MIÐVIKUDAGUR 3. júnÍ 2020 49 Hreyfum okkur - Geymum bílinn heima Hver hringur er 1 km í þvermál! 10 mínútna kort *Bæjarhringurinn er 7,2 kmÞú finnur okkur á Bíllausidagurinn á Akranesi 20. maí 2020 Hæ hæ! Vissir þú að það tekur meðal einstakling 10 mínútur að ganga 1 km og að dagleg hreyfing eykur vellíðan og lífsgæði? Þegar við göngum eða hjólum nýtum við líka ferðatímann til ókeypis heilsuræktar, spörum kostnað vegna einkabílsins, drögum úr umferðarþunga og stuðlum að heilnæmara andrúmslofti. Flatlendi Akraness er líka frábært til göngu og hjólreiða og svo stundum hittir maður líka einhvern skemmtilegan á leiðinni! Vildum bara segja þér hvað það er mikil snilld að geyma bílinn heima! Þitt bæjarfélag Akraneskaupstaður Skagamenn Akranesi Ísland© Ása Katrín Bjarnadóttir, B.Sc Landslagsarkitektúr LbhÍ Ábúendur í Sólbyrgi í Reykholts- dal buðu upp á markaðsdag á hvíta- sunnudaginn í gróðurhúsunum og sölutjaldi sem slegið var upp af þessu tilefni. Sjálf buðu þau plöntur til sölu en fleiri söluaðilar úr héraði bættust einnig í hópinn. Að sögn Kristjönu jónsdóttur í Sólbyrgi heppnaðist dagurinn vel og komu um 300 gestir. „Hrafn- hildur dóttir okkar útskrifaðist úr Garðyrkjuskólanum á laugardag- inn og hefur í vetur verið að leika sér með allskyns ræktun. Mikið af forræktuðu útigrænmeti og blóm- um sem hún hefur verið að rækta þurfti að selja og ákváðum við því að bjóða fleiri aðilum sem við höf- um svo oft unnið með að vera með okkur þennan dag. Einnig seldum við grænmeti frá nágrönnum okkar. Þetta tókst vonum framar og ætlum við að endurtaka leikinn og fá fleiri til liðs við okkur á næsta markaði sem verður í júlí,“ segir Kristjana. mm/ Ljósm. Josefina Morell „Horfur eru á því að á árinu 2020 hefji hátt í 200 manns meistaranám við Háskólann á Bifröst. Í byrjun árs hófu 32 nemendur meistaranám við skólann og á sumarönn bættust 14 nemendur í hópinn. Miðað við fjölda umsókna má reikna með að 130 – 150 nýir nemendur komi inn á haustönn,“ segir í tilkynningu frá skólanum. „Það er virkilega ánægjulegt að sjá áhuga fólks á náminu okkar. Sumarskólinn hefur slegið í gegn og umsóknir í meistaranám hafa aldrei verið fleiri. nýnemum hef- ur fjölgað undanfarin ár svo það kemur okkur ekki á óvart að þróun- in haldi áfram en ástandið í samfé- laginu hefur væntanlega haft áhrif á hversu mikil aukningin er að þessu sinni,“ segir Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst. „Fjölg- un umsókna endurspeglar áhuga fólks á því námsframboði sem við höfum uppá að bjóða og sömuleið- is kennslufyrirkomulagi skólans en allt meistaranám er kennt í fjar- námi þannig að við mætum þörfum einstaklinga og þeir geta lært þegar og þar sem þeim hentar,“ segir Vil- hjálmur. Enn eru þrjár vikur eftir af um- sóknarfresti fyrir grunnnám við Bifröst og hafa fleiri sótt um nám í ár en á sama tíma í fyrra þannig að það stefnir einnig í metaðsókn í grunnnám við skólann á komandi skólaári. mm Markaðsdagur í Sólbyrgi Metaðsókn í meistaranám við Háskólann á Bifröst

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.