Skessuhorn


Skessuhorn - 28.10.2020, Page 14

Skessuhorn - 28.10.2020, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 28. oKtÓBER 202014 Einungis um 2% íslenskra fyrir- tækja eru á listanum yfir Framúr- skarandi fyrirtæki 2020 og á þess- um ellefu árum hafa einungis 63 fyrirtæki setið á listanum frá upp- hafi. Athygli vekur að aðeins eitt fyrirtæki á Vesturlandi hefur ratað á listann öll ellefu árin en það er fyr- irtækið Bjarmar ehf á Akranesi. Bjarmar er alhliða þjónustu- fyrirtæki í jarðvinnu en sinnir auk þess flutningum og kranaþjónustu á Akranesi og í nágrenni. Fyrirtækið er í eigu bræðranna Bjarka og In- gimars Magnússona frá Kjalardal í Hvalfjarðarsveit. Bræðurnir hófu rekstur fyrirtækisins árið 1989 sam- hliða annarri vinnu og á fyrirtækið því í raun 31 árs starfsafmæli á þessu ári. Árið 1996 stofnuðu þeir bræður síðan formlega fyrirtækið Bjarmar ehf. Segir Ingimar það meðal an- nars byggjast á traustum og góðum hópi starfsmanna sem hjá þeim starfar, en að jafnaði eru 6-8 starfs- menn og hefur fyrirtækið yfir fjöl- breyttum tækjakosti að ráða. Á síðasta ári hófust framkvæm- dir við nýtt tæplega þúsund m2 at- vinnuhúsnæði fyrir Bjarmar ehf við Kalmansvelli 7 á Akranesi. Húsið er nú risið og í því verður verður hægt að sinna öllu almen- nu viðhaldi tækja fyrirtækisins, svo sem viðgerðum, þrifum og geyms- lu við bestu mögulegu aðstæður en fyrirtækið er þekkt fyrir gott viðhald og góða umhirðu síns tæk- jakosts. Að sögn Ingimars er húsið að taka á sig lokamynd og er stef- nan sett á að flytja starfsemina í húsnæðið á næsta ári. Þar sem nýja húsnæðið er ríflegt að stærð fyrir starfsemina þá verður mögulega leigður út hluti þess. Verkið lofar meistarann Blaðamaður Skessuhorns þurfti að gera nokkrar tilraunir til þess að ná tali af bræðrunum enda benti Ingimar á: „Þú finnur okkur ekki á neinni skrifstofu!“ Að lokum tókst að króa þá bræður af í botngötu þar sem þeir stýrðu hvor sinni gröfunni. Verkefnið þeirra þennan daginn er fyrir Veitur sem vinna að endurnýj- un rafstrengja og veitulagna á Akra- nesi. Bræðurnir láta vel af verkefna- stöðu fyrirtækisins og segja að það sé búið að vera nóg að gera. Aðspurður segir Ingimar að þeir eigi ekki einir heiðurinn af þessari viðurkenningu heldur byggi hún á frábærum starfsmönnum auk traus- tra viðskiptavina og því ber að þak- ka. Þeir hafi jafnan haft metnað til þess að skila vandaðri og góðri vin- nu og haft að leiðarljósi veganestið sem faðir þeirra gaf þeim; „verkið lofar meistarann.“ frg Creditinfo hefur undanfarin ell- efu ár greint rekstur íslenskra fyr- irtækja. Í síðustu viku var birtur Creditinfo lista yfir framúrskarandi fyrirtæki fyrir rekstrarárið 2019. Framúrskarandi fyrirtæki eru þau fyrirtæki sem hafa sýnt fram á framúrskarandi og stöðugan árangur í rekstri. Þetta er í ellefta sinn sem Creditinfo veitir Framúr- skarandi fyrirtækjum við- urkenningu en í ár eru 842 fyrirtæki verðlaunuð, en það er um 2% af öllum fyr- irtækjum á Íslandi. Fram- úrskarandi fyrirtækjum fækkar um 45 á landsvísu á milli ára en í fyrra voru 887 fyrirtæki á list- anum. Af þessum 842 fyrirtækjum eru 37 á Vesturlandi og fjölgar um eitt. Flest fyrirtæki á listanum eru meðalstór eða 384 talsins, 237 stór fyrirtæki og 221 teljast lítil. Með- al þess sem einkennir listann í ár er að byggingafyrirtækjum fjölgar en ferðaþjónustufyrirtækjum fækkar, eða úr 80 í 64. Má ætla að fækkun ferðaþjónustufyrirtækja megi m.a. rekja til falls Wow air. til að teljast til Framúrskarandi fyrirtækja þurfa fyrirtæki að upp- fylla ströng skilyrði um stöðugan rekstur þrjú ár aftur í tímann. Skil- yrðin hafa fram að þessu öll verið fjárhagsleg en frá og með næsta ári verður sú nýbreytni á að sjálfbærni verður kynnt inn sem skilyrði þess að fyrirtæki komist á lista Framúr- skarandi fyrirtækja. Á vefsíðu Cre- ditinfo segir m.a.: “Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin m.a. að uppfylla eftirtalin skilyrði: Vera í lánshæfisflokki 1-3, ársreikn- ingi skilað lögum samkvæmt eigi síðar en átta mánuðum eftir upp- gjörsdag, vera virkt í rekstri,, fram- kvæmdarstjóri skráður í fyrirtækja- skrá RSK, rekstrartekjur að lág- marki 50 milljónir króna síðustu þrjú ár, rekstrarhagnaður (EBIt > 0) síðustu þrjú ár, jákvæð ársniður- staða síðustu þrjú ár, eiginfjárhlut- fall a.m.k. 20% síðustu þrjú ár og eignir að minnsta kosti 100 millj- ónir króna síðustu þrjú ár. 37 á Vesturlandi Á meðfylgjandi lista eru þau fyrir- tæki á Vesturlandi sem rata á lista Creditinfo að þessu sinni. Vignir G. Jónsson ehf. er efst vestlensku fyrirtækjanna og síðan eru fyrirtæk- in hvert af öðru miðað við röðun á landsvísu: Vignir G. Jónsson ehf. - Akranes Borgarverk ehf. - Borgarnes Hraðfrystihús Hellissands hf - Hellissandur Sementsverksmiðjan ehf. - Akranes Runólfur Hallfreðsson ehf - Akra- nes Sæfell hf. - Stykkishólmur Þorgeir & Ellert ehf. - Akranes Ragnar og Ásgeir ehf. - Grundar- fjörður Skarðsvík ehf. - Hellissandur Útnes ehf. - Hellissandur trésmiðja Guðmundar Friðrikssonar ehf - Akra- nes Sorpurðun Vesturlands hf. - Borgarnes Akraberg ehf. - Akranes Hidda ehf. - Hellissandur Þróttur ehf. - Akranes BB & synir ehf. - Stykkis- hólmur Litlalón ehf - Ólafsvík Nesver ehf. - Hellissandur Breiðavík ehf - Hellissandur Fasteignafélagið Hús ehf. - Akra- nes Sandbrún ehf - Hellissandur Útgerðarfélagið Guðmundur ehf - Ólafsvík Verslunin Kassinn ehf - Ólafsvík Meitill - Gt tækni ehf. - Akranes Skagaverk ehf. - Akranes Vélaverkstæði Kristjáns ehf - Borg- arnes Djúpiklettur ehf. - Grundarfjörður trésmiðjan Akur ehf. - Akranes Bjarmar ehf - Akranes Blikksmiðja Guðmundar ehf - Akranes Kaupfélag Borgfirðinga ( svf ) - Borgarnes Bjartsýnn ehf - Ólafsvík GS Import ehf - Akranes Múlavirkjun hf. - Stykkishólmur Búvangur ehf. - Borgarnes Hótel Borgarnes hf. - Borgarnes Gísli Stefán Jónsson ehf. - Akranes frg Ísland hefur verið fjarlægt af hin- um svokallaða gráa lista FAFt, al- þjóðlegs fjármálaaðgerðahóps ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þetta var ákveðið á aðalfundi hópsins á föstudag. Frá þessu er greint í tilkynn- ingu frá Stjórnarráðinu, en Ísland var sett á listann í október í fyrra en hefur verið fjarlægt af listanum í kjölfar vettvangsathugunar hér á landi í lok september, að því er fram kemur í tilkynningunni. Þar hafi sérfræðingar FAFt staðfest að lokið hefði verið með fullnægjandi hætti við þær aðgerðir sem Íslandi var gert að grípa til í því skyni að komast af listanum. „Við sama til- efni var jafnframt staðreynt af hálfu umræddra sérfræðinga að til stað- ar væri ríkur pólitískur vilji hjá ís- lenskum stjórnvöldum til að halda áfram vinnu við að styrkja varnir Íslands gegn peningaþvætti og fjár- mögnun hryðjuverka,“ segir í til- kynningunni. Þar er jafnframt haft eftir Áslaugu Örnu Sigurbjörns- dóttur dómsmálaráðherra að grett- istaki hafi verið lyft í þessum efnum undanfarin tvö ár. kgk Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra. Ljósm. Stjórnarráðið. Ísland fjarlægt af gráa listanum Framúrskarandi fyrirtæki verðlaunuð Bjarmar ehf Framúrskarandi fyrirtæki í ellefu ár Eigendur Bjarmars ehf; bræðurnir Ingimar Magnússon og Bjarki B Magnússon. Ljósm. frg Nýtt hús Bjarmars ehf. Ljósm. Ingimar Magnússon.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.