Skessuhorn


Skessuhorn - 28.10.2020, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 28.10.2020, Blaðsíða 21
 7 Í Netapóteki Lyavers á lyaver.is getur þú séð þína lyfseðla, valið samheitalyf og séð lyaverðið þitt. Nýttu þér lágt vöruverð og heimsendingar um land allt. Átt þú lyfseðil í gáttinni? Apótekið heim til þín Samtök fyrirtækja í velferðar-þjónustu voru stofnuð í apríl 2002 og fagna því bráðlega tuttugu ára afmæli sínu. Aðild að samtök- unum geta átt fyrirtæki sem starfa við velferðarþjónustu og eru sjálfs- eignarstofnanir, í eigu félagasam- taka, einkaaðila eða opinberra aðila. Í dag eiga 47 aðild að SFV, þar af eru 39 sem sinna öldrunarþjónustu. Hinir sinna ýmiskonar heilbrigð- is- og velferðarþjónustu og má þar á meðal nefna SÁÁ, Heilsustofnun og Krabbameinsfélagið. Samtökin hafa frá upphafi lagt áherslu á það að koma sameiginlega fram við opinbera aðila, verkalýðsfélög og aðra þá aðila sem aðildarfélögin komu áður fram við hvert fyrir sig. Þar hefur mesta áherslan verið lögð á gerð kjarasamninga við stéttarfélög og samskipti og samningagerð við ríkið og þar þá helst Sjúkratryggingar Íslands. Í samskiptum sem þessum hafa skiptst á skin og skúrir. Sólarglennurnar þó heldur fleiri en úrkoman. Eðli máls samkvæmt eru verkefnin þó talsvert fleiri en þetta og má meðal annars nefna persónuverndarmál, umsagnir um lagabreytingar á Alþingi, ýmiskonar aðstoð við aðildarfélögin og margt fleira. Samtökin voru þeirrar gæfu aðnjótandi fyrir allnokkrum árum þegar við réðum okkur framkvæmdastjóra, lögfræðinginn Eybjörgu Helgu Hauksdóttir. Hún sinnir sínu starfi af mikilli kostgæfni og er vakin og sofin yfir daglegum rekstri SFV. Auk hennar eru nú starfandi hjá SFV Gunnhildur Erla Kristjánsdóttir sem sinnir persónuverndarmálum aðildarfélaganna og Tryggvi Friðjónsson sem stýrir kjaramálum SFV. Hvoru tveggja feikn góðir starfsmenn á sínu sviði. Brákarhlíð hefur verið aðili að SFV í rúman áratug og höfum við notið þess að hafa Bjarka framkvæmdastjóra Brákarhlíðar í stjórn samtakanna. Með þessum fáu orðum óska ég Brákarhlíð innilega til hamingju með hálfrar aldar afmælið með von um áframhaldandi gott gengi um ókomna tíð. Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grundarheimilanna og formanður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. þetta alvöru og kósý stemningu og öllu því besta er tjaldað til. Við drögum fram bollasafnið okkar, sem telur um 150 gamla, skrautlega bolla, dúkum borðin með fínum útsaumuðum dúkum sem heimilið átti eða okkur hafa verið gefnir og við þjónum til borðs. Fólk getur fengið sér gott heimabakað bakkelsi með kaffinu. Framlög eru frjáls og hefur fólk verið einstaklega örlátt. Svo kemur Vignir oft með gítarinn og spilar og syngur og það vekur mikla lukku. Hingað hafa verið að koma gestir allsstaðar að úr samfélaginu okkar, bæði þeir sem eru að koma til að hitta ástvini og aðrir gestir sem gerir það það að verkum að íbúarnir hitta fólk sem það hittir alla jafna ekki eða hefur ekki hitt í áraraðir,“ segir Aldís. Allir velkomnir Aldís segist leggja mikla áherslu á að íbúar heimilisins fái tækifæri til að hjálpa til við kaffihúsið. „Þeir sem hafa áhuga á að hjálpa geta alltaf fengið verkefni. Sumir eru reyndar búnir með þennan pakka í sínu lífi og nenna alls ekki að fara að baka eða stússast í svona og þá er það líka allt í lagi. En aðrir brenna í skinninu að vera með í þessu og ég hef tekið eftir því að þegar veisla eins og þessi er í uppsiglingu er eins og það vakni upp gamlir taktar, jafnvel hjá fólki sem á erfitt með minni. Það er eins og gestgjafinn lifni við og handtökin verða sjálfsögð og eðlileg,“ segir hún. „Hlutverk iðjuþjálfa er alltaf að aðstoða fólk við daglega iðju. Mikilvægt er að reyna að komast að því hvað hverjum og einum þykir mikilvægt og ánægjulegt að geta gert og aðstoða fólk við að láta það verða að veruleika. Það er líka mikilvægt að efla tengsl á milli samfélagsins í Borgarbyggð og íbúanna í Brákarhlíð og Kaffihúsið er frábær vettvangur til þess,“ segir Aldís iðjuþjálfi í Brákarhlíð. arg/ Ljósm. mm & glh Aldís á spjalli við gesti á kaffihúsinu í febrúar síðastliðnum. Aldís við veglegt kökuborð á kaffihúsinu í Brákarhlíð. Kveðja frá formanni Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.