Skessuhorn


Skessuhorn - 28.10.2020, Page 23

Skessuhorn - 28.10.2020, Page 23
 9 Til hamingju með 50 árin! Tannlæknastofa Hilmis Berugötu 12, 310 Borgarnesi á eftir. „Hvernig geta stúlkurnar setið á hestbaki í þessu,“ sögðu þær alveg hissa,“ segir Margrét og hlær að endurminningunni. Þá segir hún að það hafi verið daglegt brauð að ræða klæðaburð þeirra kvenna sem fluttu fréttir í sjónvarpinu. „Þær voru sko margar mikið að spá í tískunni og þá var gjarnan rætt hverju Jóhanna Vigdís og þessar fréttakonur klæddust. Stundum fannst þeim þær alveg glæsilegar og stundum bara alls ekki og svo voru ekkert allar sammála. Þetta var sko hægt að ræða,“ segir Margrét. „Á heimilinu myndaði maður svo mörg góð vinasambönd bæði við starfsfólk og íbúa, þetta fólk átti eiginlega í manni hvert bein. Stúlkurnar sem unnu þarna voru alveg dásamlegar, þær lögðu svo mikinn metnað í starfið og voru alltaf allar tilbúnar að gefa af sér. Ég get alveg hiklaust sagt að það var mitt happ í lífinu að hafa fengið að vinna þarna,“ segir hún. Stólasöfnun Þegar búið var að stækka Brákarhlíð var heimilið komið með stóran og flottan sal á jarðhæðinni. Þá þótti Margréti ómögulegt að sjá að ekki væru til stólar og borð í salinn. Hún ákvað því að hrinda af stað söfnun svo hægt væri að kaupa stóla. „Ég sat hér heima eitt kvöldið að prjóna og hugsaði með mér hvort ég gæti gert eitthvað sjálf til að safna pening. Það var ómögulegt að vera með þennan fína sal en ekki neina stóla í honum,“ segir Margrét og brosir og bætir við að næst hafi hún leitað ráða til sona sinna, Sigurþórs og Halldórs. „Ég byrja á að hringja í Sissa og spyr hann hvort það sé ekki eitthvað sem ég get gert. Hann var ekki lengi að svara því til að ég þyrfti bara að hafa fjáröflun og vera með fjölskylduskemmtun. Hann sagði mér að hafa þetta á sunnudegi í september, þegar allir væru komnir úr sumarfríi en ekki farnir að hugsa um jólin. Þetta þótti mér alveg gráupplagt,“ segir Margrét. „Ég lét Bjarka strax vita og þar með var ég búin að koma mér í stöðu sem ég gat ekki bakkað út úr. Ég er stundum svo fljótfær sko,“ bætir hún við og hlær. Næst hafði Margrét samband við sveitarstjórann til að fá Hjálmaklett undir skemmtunina. „Það var nú minnsta mál. Það var bara allt í sambandi við þetta alveg sjálfsagt mál. Ég hefði nú ekki getað þetta allt án Báru vinkonu minnar og samstarfskonu. Hún fór með mér í öll fyrirtækin í bænum að leita að styrkjum og það skipti ekki máli hvert við komum það voru allir tilbúnir að styrkja. Ég hringdi í Gísla Einarsson og bað hann að vera kynnir og það var bara sjálfsagt,“ segir Margrét. Eldri borgarar í Borgarfirði komu og sýndu línudans, Olgeir Helgi og fjölskyldan hans tóku öll lagið auk þess sem Eva Margrét, barnabarn Margrétar, og fleiri góðir listamenn sungu og skemmtu fólki. „Svo rauk ég á konur úti í bæ til að biðja þær að baka pönnukökur. Starfsstúlkurnar í Brákarhlíð bökuðu líka og það voru allir svo jákvæðir. Sissi minn er að vinna í Geirabakaríi og hann fékk leyfi hjá Geira að nota aðstöðuna til að steikja kleinur. Við fórum tvö saman í það og Geiri gaf allt efnið,“ segir Margrét augljóslega mjög ánægð með vel heppnaða og eftirminnilega skemmtun. Peysurnar hennar Imbu Fjáröflunin var virkilega vel heppnuð og var fjöldi fólks sem lagði leið sína í Hjálmaklett þennan dag til að styrkja málefnið. „Það voru líka margir sem styrktu þó þeir gætu ekki verið með. Það var fólk sem kom við og borgaði og fór svo aftur og ein hjón réttu mér umslag með 100 þúsund krónum og önnur hjón vestur af fjörðum lögðu inn pening fyrir tveimur stólum. Þetta var í alvöru talað bara ótrúlegt og svo skemmtilegur og vel heppnaður dagur, þó ég segi sjálf frá,“ segir Margrét og hlær. „Það var líka gaman að sjá starfsfólk Brákarhlíðar mæta og hjálpa þó það ætti kannski frí. Ég var líka búin að hekla dúllur í hárið á öllu starfsfólkinu og íbúum Brákarhlíðar svo við vorum öll voða fín með slaufu í hárinu,“ bætir hún við. Á fjáröflunardeginum voru einnig boðnar upp þrjár skrautlegar peysur prjónaðar af Imbu frá Rauðsgili, íbúa í Brákarhlíð. „Hún Imba var alveg einstök. Hún prjónaði þrjár peysur með allskonar fígúrum og svo voru þær boðnar upp og seldust á 20 þúsund krónur hver peysa,“ segir Margrét. „Imba var alltaf að prjóna og var svo snögg. En þessar peysur prjónaði hún á svo stuttum tíma, að ég er eiginlega viss um að hún hafi setið fram á nótt að prjóna,“ bætir hún við. Sláturnælur sem slógu í gegn Á vinnustofunni voru gerðar sláturnælur sem slógu alveg í gegn og fóru meðal annars í sölu í Fjarðarkaupum, Hagkaup og Kaupfélaginu á Sauðárkróki. „Þar fengum við pening til að kaupa inn efni fyrir handvinnuna og hann Bjarni frá Hurðabaki, Ragnar Olgeirsson og fleiri sátu bara alveg við að gera þessar nælur. Svo var Vignir [húsvörður. innsk. blms.] farinn að gera nælur í tíma og ótíma því það var svo mikil sala að við höfðum varla undan,“ segir Margrét. Þá rifjar hún upp þegar íbúar í Brákarhlíð seldu bolluvendi og öskupoka til Þjóðminjasafnsins. „Öskupokagerð er eiginlega barn síns tíma og við ákváðum því að hringja í Þjóðminjasafnið og segja frá því sem við vorum að gera. Þau vildu endilega fá til sín nokkra poka og nokkra bolluvendi til að sýna á safninu. Svo var hringt í okkur ári seinna og beðið um meira, þá voru þau farin að selja þetta. Við gerðum þetta í nokkur ár, sem var svo gaman,“ segir Margrét. Vaknaði til lífsins í Brákarhlíð „En ég var lánsöm að fá að vinna í Brákarhlíð. Ég var áður að vinna við afgreiðslu í Kaupfélaginu, sem var fínt. Svo var mér boðin þessi vinna og hafði satt að segja enga trú á að ég gæti unnið við þetta. En svo reyndist þetta vera algjör himnasending fyrir mig persónulega og ég mæli af öllu hjarta með þessum vinnustað. Mér finnst ég hafa vaknað til lífsins þegar ég fór að vinna í Brákarhlíð,“ segir Margrét Sigurþórsdóttir og brosir. arg Við kökuborðið á basar í Brákarhlíð fyrir nokkru síðan. Hluti af varningi sem var til sölu á árlegum basar heimilisins. Frá basar á heimilinu.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.