Skessuhorn


Skessuhorn - 28.10.2020, Side 32

Skessuhorn - 28.10.2020, Side 32
18 Ingigerður Benediktsdóttir hefur búið á Brákarhlíð lengst allra sem þar búa í dag. En hún er ein þeirra sem hefur búið á heimilinu frá því áður en nýja byggingin var tekin í notkun. „Þá voru herbergin töluvert minni og ekkert sérstakleg góð. En starfs- fólkið bætti það upp,“ segir Jakob Guðmundsson, sonur Ingigerð- ar. „Í dag er aðstaðan mun betri en starfsfólkið er samt í raun það sem gerir heimilið svona gott,“ bætir hann við. Jakob segir heim- ilið í hans augum, sem aðstand- anda, vera til fyrirmyndar. „Her- bergin eru glæsileg og sameigin- lega rýmið er líka mjög fínt og ég get rétt ímyndað mér að munur sé mikill fyrir íbúana síðan heim- ilið var stækkað, það er svo mik- ið meira pláss og næði fyrir hvern og einn.“ Alltaf góðar móttökur Aðspurður segir Jakob íbúa hafa góða aðstöðu til að taka á móti gestum á heimilinu í dag, bæði inni á herbergjum og í sameiginlegum setustofum. „Það er líka alltaf tekið vel á móti öllum gestum á heimilinu, boðið upp á kaffi og svona,“ segir Jakob. „Þetta er svona eins nálægt því og hægt er að vera eins og hvert annað heimili. Þetta er bara eins og heimili sem er fullt af fólki, sem heimilið hennar mömmu í sveitinni var reyndar alltaf,“ segir Jakob og hlær. „Það leynir sér ekki að andinn er alltaf góður og jákvæður á Brákarhlíð,“ bætir hann við. Þá segir hann það stóran kost að inni á hverju heimili sé nánast alltaf sama starfsfólkið. „Ég man að þegar starfsfólkið fór að klæðast sínum venjulega fatnaði í staðinn fyrir sloppum var fyrst smá ruglingur og maður mundi ekki alltaf nöfnin og svona en þetta hefur vanist. Svo hjálpar líka að það er alltaf sama fólkið sem maður á í samskiptum við,“ segir Jakob. Erfiðar aðstæður í dag „Mamma er bara alsæl á Brákarhlíð. Hún er orðin mjög fullorðin núna en hún nýtur þess að vera þarna og það er vel hugsað um hana. Henni þykir maturinn góður en kvartar þó mikið yfir því að það sé naumt skammtað af kökum,“ segir Jakob og hlær. „Ætli það sé ekki eitthvað varðandi sykurinn en henni þykir þetta helsti gallinn á heimilinu, að það vantar meira sætabrauð.“ En hvernig líður henni þessar vikurnar í ljósi aðstæðna vegna Covid-19? „Þetta er erfitt og alveg hundleiðinlegt. Síðustu vikur hefur bara einn mátt koma í heimsókn og ég eini gesturinn sem hún hefur mátt fá. Hún er því löngu orðin hundleið á mér þó vissulega sé ég uppáhalds drengurinn hennar,“ svarar hann og hlær. „Svo á hún afmæli í dag og það er alveg búið að loka og hún má ekki fá neinn gest. Þetta er líka sérstaklega erfitt fyrir hana þar sem hún á orðið erfitt með að tala í síma. En svo held ég að þetta reyni rosalega á starfsfólkið. Þetta eru ekki öfundsverðar aðstæður að vinna við og í raun aðdáunarvert allt sem þau hafa gert til að gera ástandið bærilegra fyrir íbúa,“ segir Jakob og bætir því við að hann hlakki mikið til að geta aftur heimsótt mömmu sína aftur. „En mamma tekur þessu eins og flestir, af æðruleysi og bíður bara þar til þetta gangi yfir,“ segir Jakob sonur Ingigerðar Benediktsdóttur. arg/ Ljósm. úr einkasafni Andinn er alltaf góður og jákvæður í Brákarhlíð Jakob með bróður sínum Sigurði á æskuslóðum móður þeirra, Brúará á Ströndum. Heimilisfólk gerir sér glaðan dag Meðfylgjandi eru svipmyndir frá því þegar íbúar í Brákarhlíð gera sér glaðan dag utan heimilisins. Myndirnar eru allar úr ljósmyndaalbúmum Brákarhlíðar. Allir glaðir í sumarferð heimilisins. Frá sumarferð á fyrstu árum DAB. Frá sumarferð í kringum 1980. Kaffi í sumarferð starfsmanna og heimilisfólks. Heimilismenn hressir á ísdegi. Haldið í kaffiboð í Hyrnunni. Kaffiboð í Hyrnunni. Allir samferða í kaffiboð í Hyrnunni.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.