Skessuhorn


Skessuhorn - 28.10.2020, Blaðsíða 33

Skessuhorn - 28.10.2020, Blaðsíða 33
 19 Sigríður Anna Þorgrímsdóttir hafði í nokkurn tíma komið í dagdvöl í Brákarhlíð tvisvar í viku, þar til loka þurfti fyrir utan- aðkomandi á heimilið vegna kórón- uveirufaraldursins. Sigríður Anna hefur barist við parkinson sjúk- dóminn og segir dagdvölina í Brák- arhlíð hafa hjálpað sér mikið. „Ég fékk að koma í tvo daga í viku þar sem ég fékk góða aðstoð. Ég fór til dæmis í föndrið þar sem ég heklaði barnateppi og fleira. Svo var boð- ið upp á leikfimi og jóga sem mér þótti rosalega gott að komast í,“ segir Sigríður Anna. Aðspurð segir hún þá þjónustu sem hún fékk í Brákarhlíð fyrir kórónufaraldurinn hafa skipt miklu máli og vonast hún til að komast þangað aftur fljótlega. „Þetta skiptir mig máli bæði fyrir heilsuna og félagsskapinn,“ segir hún. „Það var yndislegt að fá að koma þarna inn og það er leitun að eins mörgu góðu fólki og er saman komið þarna í Brákarhlíð. Ég hef ekki reynslu af öðrum heimilum svo ég get ekki borið þetta saman, en í Brákarhlíð er ekkert nema gott hjálpsamt fólk,“ segir Sigríður Anna. arg Anna Sesselja Þórðardótt-ir hefur búið á Brákar-hlíð frá árinu 2014. Bryn- dís Hulda Guðmundsdóttir, dótt- ir Önnu, segir einstaklega vel hugs- að um heimilismeðlimi Brákarhlíð- ar. „Mamma kom fyrst inn í hvíld- arinnlögn og fór í varanlega dvöl nokkrum mánuðum seinna. Það er margt gott gert fyrir íbúa heimilis- ins og ég held að mamma sé mjög ánægð,“ segir Bryndís. „Hún fær alveg stundum heimþrá en ég held það sé bara eðlilegt,“ segir hún og bætir við að mamma hennar hafi farið á heimilið aðeins fyrr en hún kannski þurfti. „Hún vildi fylgja pabba þegar hann fór í Brákarhlíð. Þau voru þar saman fyrstu árin, þar til hann lést,“ segir Bryndís. Eldhúsið hjarta heimilisins Sjálf vann Bryndís eitt sumar á heimilinu þegar hún var 17 ára gömul, en hún segir miklar breytingar hafa orðið á heimilinu síðan. „Þetta var gott heimili þegar ég vann þarna en aðstæður í dag eru bara allt aðrar. Núna hefur hver og einn íbúi mikið meira pláss og það er hægt að bjóða upp á líf eins og eldri borgarar eiga að geta lifað. Það er boðið upp á að fara í jóga, leikfimi, sögustundir og svo margt fleira,“ segir Bryndís og bætir við að henni þyki sameiginleg rými á heimilinu líka mjög góð. „Mér þykir sérstaklega jákvætt að á heimilinu sem mamma er á er stutt í eldhúsið en það er svona hjarta heimilisins sem skapar hlýlegt andrúmsloft og gerir þetta heimilislegt,“ segir Bryndís. Aðstaðan til fyrirmyndar Aðspurð segir hún aðstöðuna fyrir aðstandendur mjög góða. Gestir geti bæði farið inn á herbergin, þar sem nóg pláss er fyrir nokkra gesti, eða í setustofur þar sem hún segir aðstöðuna alveg til fyrirmyndar. „Mér þykir líka svo gaman að sjá myndir eftir Einar Ingimundarson og fleiri listamenn á heimilinu og líka alla gömlu hlutina sem gefnir hafa verið þangað. Þetta gerir heimilið hlýlegt og notalegt og manni líður ekki eins og þetta sé stofnun. Það er líka vel hugsað um að þrífa og það er aldrei þessi þunga lykt eins og maður finnur oft á dvalarheimilium,“ segir hún og bætir við að starfsfólk Brákarhlíðar sé einstaklega gott. „Það hugsa allir svo vel um íbúana. Það er líka kostur að það er eiginlega alltaf sama starfsfólkið og mér þykir líka jákvætt að hafa kokk á staðnum sem eldar góðan mat. Mamma er allavega ánægð með matinn. Heilt yfir held ég því að Brákarhlíð sé fyrirmyndar heimili,“ segir Bryndís dóttir Önnu Sesselju Þórðardóttur íbúa á Brákarhlíð. arg Þórhildur Kristín Bachmann, Bessý, veitti Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi stærst- an skerf af sinni starfsævi og það gerði hún af heilum hug sem for- stöðukona heimilisins í áratugi. Hún hélt vel um stjórnartaumana, gerði það bæði af festu og mildi. Samstarfsfólk hennar ber henni afar vel söguna, hún var sanngjarn og skipulagður stjórnandi, það bar stjórnunarstíl hennar besta vitn- ið að fólk ílengdist í starfi og hefur það verið eitt stærsta lán hjúkrun- ar- og dvalarheimilisins í Borgar- nesi hve margt gott starfsfólk hef- ur ráðist til heimilisins og ílengst í starfi, þar gætir m.a. áhrifa Bessýj- ar, ritaði framkvæmdastjóri Brák- arhlíðar m.a. í minningargrein við fráfall hennar árið 2014. arg Anna S. Þórðardóttir og Guðmundur Þórðarson með börnin sín átta, öll í lopapeysum sem Anna prjónaði. „Heilt yfir held ég að Brákarhlíð sé fyrirmyndar heimili“ Þórhildur Kristín Bachmann, þarna orðinn heimilismaður, en var áður um árabil for- stöðukona heimilisins. Í minningu Bessýjar Sigríður Anna í Brákarhlíð. Dagdvölin hefur hjálpað Til hamingju með 50 árin! Eyja- og Miklaholtshreppur Skorradalshreppur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.