Skessuhorn


Skessuhorn - 28.10.2020, Qupperneq 44

Skessuhorn - 28.10.2020, Qupperneq 44
MIÐVIKUDAGUR 28. oKtÓBER 202016 Haraldur Haraldsson hefur verið ráðinn skólastjóri Auðarskóla í Búð- ardal og tekur hann við af Hlöð- veri Inga Gunnarssyni um næstu mánaðamót. Haraldur hefur starf- að sem skólastjóri í um 30 ár, fyrst við Ásgarðsskóla í Kjós. „Ég byrjaði þar beint eftir háskólanámið, bara af tilviljun,“ segir Haraldur í sam- tali við Skessuhorn. „Ég ætlaði að fara að kenna smíðar í nýrri smíða- stofu í Grundaskóla á Akranesi. Konan mín er líka kennari og hún hugðist einnig ráða sig til kennslu í Grundaskóla. Á leið okkar það- an eftir að hafa hitt skólastjórann, Guðbjart Hannesson heitinn, sem vildi ráða okkur bæði, keyrðum við Hvalfjörðinn í fallegu veðri að vori til. Við sáum á leið okkar hvar flaggað var við hvítt, stórt og mik- ið hús og ákváðum að stoppa. Þar hittum við tvo menn við rimlahlið, annar þeirra var oddviti og hinn skólanefndarformaður, og spurð- um við af hverju fáni væri þar dreg- inn að húni. Þeir sögðu okkur að verið væri að kveðja skólastjóra og spurðu okkur svo hver við værum og hvernig stæði á ferðum okkar. Þeir hvöttu okkur til þess að sækja um, sem við og gerðum, og Kjós- verjar höfðu þá djörfung að ráða nýútskrifaða nemann sem skóla- stjóra,“ segir Haraldur. „Réttindi til kennslu hafði ég ekki í höndum fyrr en einhverjum vikum seinna,“ bætir hann við og hlær. „Þar með hófst skólastjóraferill minn og síð- an hef ég verið stjórnandi, en auk þess kennt á öllum skólastigum; á grunn-, framhalds- og háskóla- stigi,“ segir Haraldur. Skólastjóri í Hafnarfirði í 16 ár Haraldur var skólastjóri, auk þess að kenna við Ásgarðsskóla, í níu ár en færði sig þá yfir í starf fram- kvæmdastjóra hestamannafélags- ins Fáks, þar sem hann var í fimm ár. „Ég ákvað svo að snúa aftur í fræðin og gerðist skólastjóri við lítinn skóla í Hrútafirði, það var alveg dásamlegur tími,“ segir Har- aldur. „Svo fór ég í Heiðarskóla í Borgarfirði og var þar í fimm ár, þar var einnig yndislegt að vera. Þar kynntist ég öðrum skólum á Vesturlandi í gegnum samstarf þeirra á milli,“ segir hann. Það var svo þegar börnin voru að fara í framhaldsnám að loknu grunnskólanámi sem Haraldur ákvað að færa sig í Hafnarfjörðinn. „Unga fólkið vildi fá mig með suður á bóginn og ég sagðist koma með ef ég fengi stöðu í Lækjarskó- la, annars ætlaði ég að vera áfram í sveitinni. Það eru sterkar sveit- atengingarnar í mér,“ segir Har- aldur. Það fór svo að hann fékk starf skólastjóra við Lækjarskóla þar sem hann var í 16 ár. Í min- ni tíð varð Lækjarskóli að marg- breytilegum grunnskóla, þar sem starfrækt voru marskonar sértæk úrræði fyrir nemendur og einstak- lingsmiðað nám auk þess sem um sex ára skeið var starfrækt fram- haldsdeild við skólann. Lækjar- skóli er magnað lærdómssamfé- lag og fallegt og gott flaggskip, sem hlotið hefur margvíslegar viðurkenningar. Þar var gott að vera og mikil sköpun og þróun í góðu hafnfirsku samfélagi. Í öllum þeim skólum sem ég hef starfað í og þeim samfélögum sem ég hef búið í hefur gott fólk og yndisle- gir nemendur varðað minn veg,“ segir Haraldur. Sveitin togaði Haraldur segir sveitina þó allt- af hafa togað í sig og því var ekki spurning að sækja um þegar hann sá auglýsta stöðuna í Auðarskóla. „Þó ég hafi nú alist upp fyrst á möl- inni og svo malbikinu í Reykjavík hefur náttúran alltaf kallað á kall- inn. En ég ólst líka upp að hluta til í Borgarfirði auk þess sem ég var í sveit á Vestfjörðum sem barn,“ segir hann. Haraldur tekur við Auðarskó- la um næstu mánaðamót og segist fullur tilhlökkunar. „Ég hef verið svo lánssamur gegnum árin að hafa alltaf unnið á dásamlegum stöðum og hlakka mikið til að koma í Dalina. Ég á vini úr Dölunum og það hefur kennt hjá mér afbragðs Dalafólk og ég get ekki annað sagt en það sé allt gott og skem- mtilegt fólk. Þess má til gamans geta að ungur og nýútskrifaður járningamaður frá Landbúnaðar- háskólanum í Kaupmannahöfn, kom ég um 1980 í Dalina og ken- ndi hestamönnum þar járningar og hófhirðu. Svo segja má að ég sé ekki alveg óreyndur í kennslustör- fum í Dölum,“ segir Haraldur, nýr skólastjóri Auðarskóla að endingu. arg Sveitarfélagið Borgarbyggð vill styðja við bakið á björgunarsveit- unum með öðrum hætti en flug- eldasýningu, að því er fram kem- ur í fundargerð byggðarráðs frá því á fimmtudag. Formaður Björg- unarsveitarinnar Brákar í Borgar- nesi hafði sent sveitarfélaginu fyr- irspurn um leyfi til að halda flug- eldasýningu á þrettándanum, að því gefnu að styrktaraðili fyndist. Sveitarstjórn samþykkti í desember í fyrra að flugeldasýningin á þrett- ándagleðinni 2020 yrði sú síðasta. Þess í stað yrði hátíðin haldin með umhverfisvænum hætti í framtíð- inni og áfram stutt við starf björg- unasveitanna í sveitarfélaginu. Í kjölfar þeirrar ákvörðunar barst sveitarfélaginu bréf frá Brák, sem byggðarráð fjallaði um seint í janúar síðastliðnum. Þar var ítrek- að markmið sveitarstjórnar með ákvörðun sinni, en því lýst að sveit- arfélagið gerði ekki athugasemdir við að aðrir aðilar tækju að sér að halda flugeldasýningar að fengn- um tilskyldum leyfum. Var það svar rifjað upp í svari við fyrirspurn for- manns Brákar nú seint í október. „Þrettándagleðin er hátíð á vegum Borgarbyggðar og hefur sveitar- félagið áhuga á aðstyrkja björg- unarsveitirnar til þátttöku í þrett- ándagleðinni með öðrum hætti en með flugeldasýningu,“ segir í fundargerð byggðarráðs frá því á fimmtudaginn síðasta. Var at- vinnu-, markaðs- og menningar- málanefnd falið að boða formann Brákar til fundar með nefndinni til að fara yfir mögulegar leiðir til þátttöku. kgk Vilja styrkja björgunarsveitir með öðru en flugeldum Skotið upp á þrettándagleði í Borgarnesi í janúar síðastliðnum. Ljósm. úr safni. Auðarskóli. Ljósm. úr safni/sm. Haraldur Haraldsson er nýr skólastjóri Auðarskóla Haraldur Haraldsson kemur til starfa sem nýr skólastjóri Auðarskóla um næstu mánaðamót. Ljósm. Aðsend

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.