Skessuhorn


Skessuhorn - 28.10.2020, Síða 46

Skessuhorn - 28.10.2020, Síða 46
MIÐVIKUDAGUR 28. oKtÓBER 202018 Ríkisútvarpið hefur ákveðið að velja Daða Frey og Gagnamagnið til að taka þátt í Eurovision-keppn- inni í Hollandi fyrir Íslands hönd á næsta ári. Daði sigraði eins og kunnugt er Söngvakeppnina hér heima með laginu think About things síðastliðinn vetur. Lagið vakti mikla athygli víða um heim og þótti Daði af mörgum líkleg- ur til sigurs í Eurovision-keppn- inni, sem var hins vegar síðar aflýst vegna Covid-19 faraldursins. Eftir að það lá fyrir að eng- in keppni yrði í ár var ákveðið að löndin mættu senda þann kepp- anda sem bar sigur úr býtum í for- keppni í heimalandi sínu, að því skilyrði uppfylltu að hann mætti til leiks með nýtt lag. Þátttökulönd- unum var einnig gefinn kostur á að halda nýja keppni og velja nýjan flytjanda og lag, sýndist þeim svo. Daða var í kjölfarið boðið að taka þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd í næstu keppni. Í tilkynningu frá RÚV er haft eft- ir Skarphéðni Guðmundssyni dag- skrárstjóra að hann sé ánægður með að Daði hafi þegið boðið. „Daði sigraði Söngvakeppnina 2020 með yfirburðum og viðtökurnar við ís- lenska framlaginu hafa aldrei ver- ið svona góðar. Við erum því afar ánægð og stolt yfir því að geta sent þennan frábæra tónlistarmann og hans fólk út eins og stóð til að gera síðast,“ segir Skarphéðinn, sem tel- ur að það hafi verið hið eina rétta í stöðunni að bjóða Daða að keppa í Eurovision þar sem engin keppni hafi verið haldin í ár. „okkur fannst það bæði rétt og sanngjarnt,“ segir hann. Haft er eftir Daða í tilkynning- unni að hann sé spenntur að standa á sviðinu í Eurovision. „Við stefnd- um alltaf að því að sjá hversu langt við gætum komist í keppninni og það verður eins á næsta ári. Allt Gagnamagnið verður með. Aðalat- riðið í þessu er að það verði gaman en ég held að það sé mest gaman að vinna. Nú vona ég bara að það verði haldin alvöru keppni,“ seg- ir Daði. Lagið sem verður fram- lag Íslands er ekki tilbúið, en Daði kveðst þó vera með nokkar hug- myndir í kollinum. Þar af leiðandi verður engin undankeppni Söngvakeppninnar hér heima á næsta ári, en Euro- vision-aðdáendur þurfa þó ekki að örvænta. Ríkisútvarpið hyggst halda úti öflugri tónlistardagskrá í febrúar og mars, á þeim tíma sem Söngvakeppnin hefði annars far- ið fram. „Sú dagskrá mun að ein- hverju leyti tengjast Söngvakeppn- inni og Eurovision,“ segir Skarp- héðinn dagskrárstjóri. kgk Starfsmenn Almennu umhverfis- þjónustunnar voru önnum kafn- ir við steypuvinnu á bryggjunni í Grundarfirði í blíðviðrinu síðasta mánudag. Ágætis gangur er í fram- kvæmdum við höfnina en Borgar- verk hefur lokið sínum verkhluta og eru starfsmenn þess horfnir á braut í bili. Almenna umhverfis- þjónustan hefur nú tekið við kefl- inu og á meðan vel viðrar er góður gangur í verkinu. tfk Kvartettinn Brim hefur verið til- nefndur til dönsku tónlistarverð- launanna sem nýliði ársins í flokki djasstónlistar. tilnefninguna hlýt- ur kvartettinn fyrir plötuna Ant- hropocene, sem kom út fyrr á þessu ári. Grundfirðingurinn Örn Ingi Unnsteinsson, sem búsettur er í Danmörku, er forsprakki kvartetts- ins og samdi átta lög af níu á plöt- unni. Örn var til viðtals í Skessu- horni í lok júlí þar sem hann lýsti plötunni sem djassskotinni, allir meðlimir hljómsveitarinnar hefðu bakgrunn í djassi en sæktu jafn- framt innblástur í aðrar gerðir tón- listar. Að sögn Arnar voru liðsmenn Brims að vonum ánægðir með til- nefninguna. „Við erum mjög glað- ir með tilnefninguna, þetta kom skemmtilega á óvart,“ segir Örn í samtali við Skessuhorn. Dönsku tónlistarverðlaunin verða veitt 12. nóvember næst- komandi í Bremen teater í Kaup- mannahöfn. Streymt verður beint frá viðburðinum á tV2 Lorry ásamt því sem þeim verður útvarp- að af DR P8. kgk Steypt á höfninni Aðalgeir Vignisson snyrtir steypuna við samskeytin. Starfsmenn Almennu umhverfisþjónustunnar ofan á eldri hluta bryggjunnar sem verið er að endurnýja. Hafsteinn Garðarsson hafnarstjóri fylgist með að allt sé gert eftir kúnstarinnar reglum. Atli Freyr Friðriksson jafnar út steypuna í blíðviðrinu. Kvartettinn Brim. Örn Ingi Unnsteinsson er hér annar frá vinstri. Ljósm. úr safni/ tfk. Tilnefndur til dönsku tónlistarverðlaunanna Daði og Gagnamagnið. Ljósm. Eurovision Song Contest/ Mummi Lú. Daði og Gagnamagnið í Eurovision á næsta ári

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.