Morgunblaðið - 03.12.2020, Side 28

Morgunblaðið - 03.12.2020, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Í vor var settur mikill kraftur í að þróa nýja vöru úr lýsi sem talin var geta hamlað veirusmiti og kom hún á markað um það leyti. Niðurstöður rannsóknar í Bandaríkjunum sýnir að lýsi að við- bættum fríum fitusýrum eyði- leggur veirur með skilvirkum hætti. „Þetta verkefni er unnið í sam- starfi við Lipid pharmaceuticals þar sem frábærir vísindamenn standa að baki. Varan var send í rannsóknir til Bandaríkjanna þar sem henni var beitt á frumuræktun. Niðurstöð- urnar sýndu fram á það að okkar vöru, sem innihélt annars vegar eitt prósent og hins vegar tvö prósent af fríum fitusýrum, tókst að vinna á 99,99% af kórónuveirunni, SARS COV-2,“ segir Katrín Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Lýsis hf. Mögulega á næsta ári „Þessar niðurstöður segja okkur að virknin er töluvert mikil og þá er næsta skref að prófa virknina á fólki og það er að fara í gang núna.“ Slíkar klínískar rannsóknir eru for- senda þess að vita með afgerandi hætti hver virknin er á veiru í mannfólki, að sögn Katrínar sem þó viðurkennir að í faraldursástandinu sem nú ríkir geti verið erfitt að komast að með slíkar rannsóknir. „En góðu fréttirnar eru þær að það er búið að samþykkja að rann- sóknin fari í ferli hér heima og ég hugsa að niðurstöður komi fljótlega á nýju ári.“ Hún telur mikilvægt að minnast á að í raun sé ekki um að ræða ný vísindi. „Menn hafa vitað það í þrjá- tíu ár að fríar fitusýrur hafa deyð- andi áhrif á veirur og bakteríur. Þannig að þetta getur verið mjög nytsamlegt efni og það er kannski þess vegna sem við hugsum oft til þess þegar flensur fara að ganga að muna að taka lýsi,“ útskýrir hún. Spurð hvort salan á árinu hafi aukist á þessum faraldurstímum segir hún svo vera en bendir þó á að yfirgnæfandi meirihluti fram- leiðslunnar er fluttur úr landi. „Við erum bara í mjög góðri stöðu.“ Tekið úr og bætt við „Ég vil árétta það að þessi nýja vara okkar er ekki eins og lýsið heldur höfum við framleitt fríar fitusýrur og bætt þeim í lýsið til að auka hlutfall þeirra í vörunni,“ segir Katrín. Margir kunna að velta því fyrir sér hvers vegna þurfi mikla vinnslu á lýsi með tilheyrandi vinnu og kostnaði. Katrín segir hins vegar málið ekki svo einfalt, staðreyndin sé einfaldlega sú að til þess að upp- fylla nútímaframleiðslustaðla á neysluvöru þurfi að meðhöndla lýsið til að mæta reglugerðum um hrein- leika afurðarinnar. Á árum áður hafa misgóðar fram- leiðslu- og geymsluaðferðir gert það að verkum að meira var um fríu fitusýrurnar í lýsinu, en þá hafi bragðið verið heldur áberandi og jafnvel fráhrindandi fyrir neyt- endur nú til dags. Þetta sé því besta og öruggasta leiðin til að mæta kröfum markaðarins, að sögn Katr- ínar. „Við þurfum að mæta þeim kröf- um sem til okkur eru gerðar af hálfu yfirvalda og uppfylla staðla fyrir vöruna,“ útskýrir Katrín. „Síð- an þarf að framleiða fitusýrurnar og bæta þeim við þannig að þær verði eitt til tvö prósent af innihald- inu. Það framleiðsluferli er nokkuð dýrt, þannig að þetta verður ekki sambærilegt og lýsið sem er úti í búð heldur er þetta með meiri virkni gegn vágestum eins og til að mynda Covid og öðrum veirum,“ segir framkvæmdastjórinn. Tækifæri í landbúnaði Spurð hvort til standi að þróa frekari vörur á grundvelli þessara rannsókna segir hún svo vera. „Vissulega höfum við horft til þess að framleiða fleiri vörur sem gætu gagnast fólki.“ Þá sé jafnframt til skoðunar að nýta þessa þekkingu í sambandi við framleiðslu vara fyrir landbúnaðinn og vísar Katrín til þess að fríar fitusýrur sem bætt er við fóður geti hugsanlega dregið úr veirusýkingum í búfé. Vísar hún til þess að margir bændur hafi um langt skeið gefið sínum dýrum lýsi. Katrín segir jafnframt sífellt fleiri erlendis átta sig á eiginleikum frírra fitusýra sem má finna í lýsi og vísar meðal annars til stórrar rannsóknar sem framkvæmd var nýverið í Noregi. Fitusýrur úr lýsi eyða kórónuveiru  Eyddu 99,9% af kórónuveiru á rannsóknarstofu með fríum fitusýrum  Næsta skref klínískar rann- sóknir, segir framkvæmdastjóri Lýsis hf.  Leyfi til að hefja rannsóknarferli í Evrópu þegar í hendi Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fjársjóður Fitusýrur sem leynast í þorskalýsi geta eytt bakteríum, veirum og sumum sveppum. Katrín Pétursdóttir „Venjulegt lýsi og venjulegar fitur eru þríglýseríð, þar sem er ein glýse- rólsameind og þrjár fitusýrur. En ef þú klýfur þær upp þannig að fitusýr- urnar verða fríar drepa þær bæði ýmsar bakteríur og ýmsar veirur. Þetta var rækilega sýnt fram á af Halldóri Þormar og samstarfsmönnum hans, þannig að það hefur legið fyrir í mörg ár að fríar fitusýrur eyðileggja svo- kallaðar hjúpaðar veirur, það eru veirur sem eru með fituhimnuhjúp í kringum sig. Til dæmis herpesveirur, RS-veirur og kórónuveirur,“ var haft eftir Einari Stefánssyni, prófessor í læknisfræði við Háskóla Íslands, í Morgunblaðinu í vor. Þá var ekki búið að rannsaka áhrifin á kórónuveir- una en nú er búið að sannreyna kenninguna. Þekking legið fyrir í mörg ár RÆÐST AÐ FITUHIMNUHJÚP VEIRA Afurðaverð á markaði 1. des. 2020, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 446,05 Þorskur, slægður 473,05 Ýsa, óslægð 290,45 Ýsa, slægð 296,35 Ufsi, óslægður 164,51 Ufsi, slægður 183,38 Gullkarfi 322,37 Blálanga, óslægð 280,00 Blálanga, slægð 320,97 Langa, óslægð 246,04 Langa, slægð 263,20 Keila, óslægð 41,64 Keila, slægð 77,03 Steinbítur, óslægður 333,21 Steinbítur, slægður 494,53 Skötuselur, slægður 764,75 Grálúða, slægð 492,95 Skarkoli, slægður 545,49 Þykkvalúra, slægð 1.048,51 Langlúra, óslægð 244,00 Sandkoli, óslægður 141,00 Bleikja, flök 1.445,00 Gellur 1.255,44 Grásleppa, óslægð 7,00 Hlýri, óslægður 197,00 Hlýri, slægður 444,16 Lúða, slægð 521,60 Lýsa, óslægð 47,08 Lýsa, slægð 78,00 Rauðmagi, óslægður 14,00 Skata, slægð 59,81 Stóra brosma, slægð 20,00 Stórkjafta, slægð 10,93 Undirmálsýsa, óslægð 183,38 Undirmálsýsa, slægð 53,00 Undirmálsþorskur, óslægður 271,16 Undirmálsþorskur, slægður 209,09 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.