Morgunblaðið - 03.12.2020, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020
Bretar samþykkja bóluefnið
Hyggjast hefja bólusetningar strax í næstu viku Ítalir og Japanar munu
bjóða upp á ókeypis bólusetningar Rússar treysta á Spútník 5-bóluefnið
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Breska lyfjaeftirlitið samþykkti í
gær notkun og dreifingu á bóluefni
Pfizer og BioNTech. Urðu Bretar
þar með fyrsta þjóðin til þess að
heimila notkun bóluefnisins í barátt-
unni gegn kórónuveirunni.
Einungis er um ár liðið frá því að
veiran kom fyrst upp, og hefur bólu-
efnið því verið þróað á undraskömm-
um tíma. June Raine, yfirmaður eft-
irlitsins, fullvissaði hins vegar Breta
um að í engu hefði verið skorið af
kröfum um öryggi þegar samþykki
stofnunarinnar var veitt.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, sagði að samþykkið væri
undanfari bólusetningarherferðar,
sem myndi á endanum leyfa Bretum
að endurheimta líf sitt og fá hjól at-
vinnulífsins til að snúast á ný. Stefn-
ir ríkisstjórnin að því að um 800.000
skammtar verði komnir í dreifingu
sem fyrst, jafnvel strax í næstu viku.
Matt Hancock, heilbrigðisráð-
herra Bretlands, fagnaði niðurstöð-
unni og sagði gærdaginn, „dag til að
minnast á ári til að gleyma“. Lagði
Hancock þó áherslu á að Bretar
yrðu áfram að fylgja þeim sótt-
varnareglum sem nú væru í gildi.
Umdeildar sóttvarnareglur
Breskir stjórnmálaskýrendur
telja að Johnson og ríkisstjórn hans
vonist til þess að samþykkt bóluefn-
isins muni færa honum aukinn póli-
tískan styrk, sér í lagi þar sem nú-
verandi sóttvarnareglur, þar sem
landinu er skipt í sóttvarnarhólf eft-
ir því hversu alvarleg staðan er, hafa
reynst umdeildar og óvinsælar.
Til marks um það má nefna að
breska þingið samþykkti nýjustu út-
gáfu þeirra í fyrrakvöld með 291 at-
kvæði þingmanna Íhaldsflokksins,
en 60 þingmenn hans greiddu at-
kvæði gegn tillögunum. Frumvarpið
náði því aðeins fram að ganga þar
sem Keir Starmer, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, skipaði þingmönn-
um sínum að sitja hjá við afgreiðslu
málsins.
Væntanlegt bóluefni hefur einnig
glætt vonir utan Bretlands, og til-
kynntu stjórnvöld á Ítalíu í gær að
allir ítalskir ríkisborgarar myndu
eiga kost á ókeypis bólusetningu
gegn kórónuveirunni. Þá samþykkti
japanska þingið frumvarp þar sem
kveðið var á um ókeypis bólusetn-
ingu fyrir japanska þegna.
Roberto Speranza, heilbrigðisráð-
herra Ítalíu, sagði í gær að loksins
væri hægt að sjá ljós við enda gang-
anna. Brýndi hann hins vegar fyrir
fólki að enn þyrfti að gæta varúðar.
„Ekki láta sem fyrsta glætan af sól-
arljósi þýði að hættan sé liðin hjá,“
sagði Speranza. „Ef við höldum ekki
vöku okkar bíður þriðja bylgjan
handan við hornið.“
Rússar heimila bólusetningar
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
skipaði í gær rússneskum embætt-
ismönnum að hefja almennar bólu-
setningar fyrir lok næstu viku, en
Rússar hafa þróað sitt eigið bóluefni
gegn kórónuveirunni, Spútník 5.
Greindu þeir í síðustu viku frá frum-
niðurstöðum þriðja stigs prófana á
efninu, sem þeir sögðu sýna 95%
virkni gegn veirunni.
Spútník-efnið hefur hins vegar
ekki lokið prófunum og hafa heil-
brigðisyfirvöld á Vesturlöndum
goldið varhug við notkun efnisins.
Rússnesk stjórnvöld segja þó að efn-
ið hafi sýnt sig og sannað, en þegar
hafa rúmlega 100.000 manns verið
bólusettir með því. Í tilskipun Pútíns
kemur fram að kennarar og heil-
brigðisstarfsfólk eigi að vera fremst
í röðinni þegar kemur að bólusetn-
ingum, en að öðru leyti verður öllum
Rússum gefinn kostur á því að vera
bólusettir, og verður bólusetningin
ókeypis.
Ólíkt bóluefnum Pfizers og Bio-
NTech annars vegar og bóluefni
Moderna hins vegar, sem bæði
treysta á svonefnt mRNA til þess að
framkalla mótefnamyndun, notar
Spútník 5 erfðabreyttar adenóveirur
til þess að ferja mótefnavaka yfir í
líkamann. Öll bóluefnin þrjú eiga
það þó sammerkt að sá sem fær það
þarf að fá tvo skammta með 21 dags
millibili svo að fullri virkni sé náð.
Bóluefni AstraZeneca og Oxford-
háskóla, sem náði að meðaltali um
70% virkni í sínum prófunum, bygg-
ist á sömu aðferð og Spútník-efnið.
Nokkrar vonir eru bundnar við
bóluefni AstraZeneca, sér í lagi í
þróunarríkjum, þar sem það verður
mun ódýrara í framleiðslu og auð-
veldara í dreifingu en mRNA-bólu-
efnin.
Spurningar hafa hins vegar vakn-
að um niðurstöðu prófana á því bólu-
efni, þar sem greint var frá því í síð-
ustu viku að sumir í
þátttökuhópnum hefðu fengið of litla
skammta í fyrra skiptið, en á sama
tíma sýndi sá hópur hærri virkni
gegn veirunni.
AFP
Bóluefni Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, virðir fyrir sér bóluefni AstraZeneca og Oxford-háskóla. Bretar
ætla að hefja bólusetningar í næstu viku, að vísu þó með annað bóluefni, sem þróað var af Pfizer og BioNTech.
Bill Barr, dóms-
málaráðherra
Bandaríkjanna,
lýsti því yfir í
fyrrinótt að ekki
hefðu fundist
nein merki um
skipulögð kosn-
ingasvik af þeirri
stærðargráðu að
þau hefðu getað
breytt niðurstöðum forsetakosning-
anna 3. nóvember síðastliðinn.
Yfirlýsing Barrs er í andstöðu við
afstöðu Donalds Trumps, fráfarandi
Bandaríkjaforseta, sem hefur haldið
því fram að um stórfelld svik hafi
verið að ræða, sem hafi kostað sig
sigur í lykilríkjum eins og Michigan,
Pennsylvaníu, Georgíu, Arizona og
Wisconsin.
Hefur framboð Trumps höfðað
hátt í fimmtíu dómsmál í þessum
ríkjum og fleirum, en meginþorra
þeirra hefur þegar verið vísað frá
eða hafnað vegna algjörs skorts á
sönnunargögnum sem lögð hafa ver-
ið fram fyrir rétti.
„Einhver verður skotinn“
Aukinn órói er nú innan Repúblik-
anaflokksins vegna þessarar veg-
ferðar forsetans, sem jafnvel hefur
leitt til líflátshótana gagnvart þeim
repúblikönum sem ekki hafa viljað
taka undir ásakanir hans um svindl.
Repúblikaninn Gabriel Sterling,
yfirmaður kosningamála í Georgíu-
ríki, hélt sérstakan blaðamannafund
í fyrrinótt til þess að verjast ásök-
unum um að hann eða aðrir í kjör-
stjórn hefðu stundað kosningasvik í
þágu Joe Biden, verðandi forseta.
Hvatti Sterling Trump til þess að
stíga upp og tala gegn hótunum sem
hefðu borist þeim sem unnu við
framkvæmd kosninganna. „Hættu
að hvetja fólk til þess að mögulega
fremja ofbeldisverk. Einhver á eftir
að meiðast, einhver verður skotinn,
einhver verður myrtur. Og það er
ekki rétt,“ sagði Sterling.
Segir eng-
in merki
um svindl
Bill Barr
Trump hvattur til
að lægja öldurnar
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
Mercedes Benz C300e 4matic AMG line 2020
Erummeð glæsileg eintök af þessum stórskemmtilega bíl til sýnis og sölu.
Eknir frá 5-15 þkm. Bensín og rafmagn (plug in hybrid), drægni 50 km. Sjálfskiptir, fjórhjóladrifnir (4matic).
AMG line innan og utan. Stafræntmælaborð, leiðsögukerfi o.fl. Nokkrir litir í boði.
VERÐ frá 7.990.000
Audi A3 E-tron Design 2018
Erummeð glæsileg eintök af þessum
vinsæla bíl til sýnis og sölu.
Eknir frá 8-31þkm. Bensín og
rafmagn (plug in hybrid),
drægni 44 km. Sjálfskiptir,
framdrifnir. Stafræntmælaborð,
leiðsögukerfi, 18“ álfelgur o.fl.
Nokkrir litir í boði.
VERÐ frá
4.390.000
Sjón er sögu ríkari, sýningarbílar á staðnumog reynsluakstur í boði.