Morgunblaðið - 03.12.2020, Page 50

Morgunblaðið - 03.12.2020, Page 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020 ELITE hvíldarstólar 3 tegundir 3 möguleikar Anelin leður allan hringinn 3 litir Teg. ALEX Teg. Charles Teg. CHARLES Teg. WILLJAM Húsgagnaverslunin Nýform ehf. • Strandgata 24 • Sími 565 4100 • nyform@nyform.is • www.nyform.is N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Komið og skoðið úrvalið Opið virka dag a 11-18 laugardaga 11-15 Teg. WILLJAM Sultað rauðkál fyrir jólin 1 rauðkál (ca 1 ½ kg) 1 laukur 2 epli 75 g andafita eða smjör 1 tsk. negull, malaður 1 tsk. allrahandakrydd ½ tsk. pipar 1 ½ dl rauðvín ½ dl balsamikedik 1 appelsína 2 ½ dl rifsberjasaft 1 ½ dl edik 1 tsk. salt ½ dl sykur 1. Saxið rauðkálið. Skerið lauk í þunnar sneiðar. Afhýðið eplin og skerið í þunna báta. 2. Látið smjörið í pott og steikið rauðkál, lauk og epli þar til það er farið að mýkjast. 3. Setjið kryddin saman við ásamt rauðvíni og balsamikediki. Hrærið vel saman og látið malla í 15 mínútur. 4. Fínrífið börkinn af appelsínunni og látið saman við ásamt safa úr appelsínunni. 5. Látið þá edik, berjasaft, salt og sykur saman við. Látið malla í 1 klst. 6. Setjið rauðkálið í krukku og þegar hættir að gufa úr rauðkálinu setjið þá lokið á. Geymið í kæli í allt að mánuð. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir Magnað meðlæti Rauðkál er margbreytilegt og hentar afar vel sem meðlæti. Sjúklega gott sultað jólarauðkál Ef eitthvert meðlæti er nauðsynlegt á hátíðarborðið þá er það rauðkál. Hér hefur Berglind Guðmunds á GRGS.is sultað það og við mælum heilshugar með því að þið prófið þetta meðlæti sem er hér tekið upp í nýjar hæðir. Jógúrtin er grísk með bökuðum eplum og kanil og kemur í fallegum glerkrukkum. Jólajógúrtin kemur einungis í takmörk- uðu upplagi en hún hefur verið vinsæl í alls kyns eftirrétti á borð við skyrkökur, pav- lóvur og annað gúrmei sem desertunn- endur þessa lands elska. Dressingar úr jólajógúrt hafa einnig slegið í gegn en gott er að búa til létta jóladressingu með salati til að stemma stigu við kjötáti hátíðanna. Takmarkað upplag Jólajógúrtin er fram- leidd í takmörkuðu upplagi ár hvert og markar upphaf jólaundirbúningsins í huga margra. Jólajógúrtin frá Örnu komin í verslanir Vinsælasta jógúrt landsins, sjálf jólajógúrtin frá Örnu, er komin í verslanir en í huga margra er koma jólajógúrt- arinnar upphaf jólahátíðarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.