Bændablaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 23

Bændablaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 2021 23 NAWA Technologies komið með einkaleyfi á „byltingarkenndum” bílarafhlöðum – segja framleiðslu geta hafist 2023 á ódýrari og margfalt öflugri rafhlöðum Undanfarna áratugi og enn frekar á síðustu árum og misser- um hafa látlausar fréttir verið af byltingu í hönnun bílarafhlaðna sem leyst geti núverandi Lithium- Ion rafhlöður af hólmi. Enn ein slík byltingarkennd tækni var kynnt í nóvember síðastliðnum frá franska fyrirtækinu NAWA Technologies og er þar talað um öflugustu rafhlöður í heimi. Fyrirtækið fékk mikla viður­ kenningu á síðasta ári er uppfinn­ ing þess var útnefnd „Tækni ársins“ af frönskum bílablaðamönnum. Er fyrirtækið þar með komið á blað sem eitt framsæknasta fyrirtækið í evrópskum bílaiðnaði. Ástæða fyrir að menn eru stöðugt að leita að nýrri tækni í rafhlöðu­ framleiðslu eru hinir miklu gallar sem eru samfara smíði og notkun á Lithium­Ion rafhlöðunum. Þó nýtt ár 2021 sé hafið, þá er samt ekkert enn í hendi um að nýjar rafhlöður séu á leið á markað alveg á næstunni. Það sem er einna nýjast í þess­ um málum er „Ný tækni“ sem NAWA Technologies hefur fengið einkaleyfi fyrir, það sem fyrirtækið kallar ofurhraðar kolefniselektróður, eða „Ultra Fast Carbon Electrode“. Var þetta kynnt nú í október 2020. Þar er örsmáum nanó­karboneind­ um raðað upp í lóðréttum stöngum (VACNT) og sagt er að rafhlöður sem gerðar eru með slíkri tækni séu tíu sinnum öflugri en hefðbundnar rafhlöður og hafi þrisvar sinnum meiri orkurýmd og fimm sinnum meiri endingartíma. Þá taki aðeins nokkrar mínútur að hlaða slíkar rafhlöður en ekki marga klukku­ tíma. Auk þess geti framleiðsla á slíkum rafhlöðum dregið verulega úr kolefnisspori af framleiðslu raf­ hlaðna sem flestir hafa látið eins og hafi ekki verið neitt til þessa. Þá er sagt að slík UFCE battery séu um fjórðungi ódýrari í framleiðslu en hefðbundnar rafhlöður. Það getur skipt miklu máli á markaði sem velti um 35 milljörðum dollara á árinu 2019 samkvæmt skýrslu Avicenne. Tíu sinnum öflugri rafhlöður og fimm sinnum endingarbetri Um þessar mundir eru bíla­ framleiðendur að berjast við að koma fyrir rafhlöðum í bílum sem geta geymt næga orku til að aka bílum 1.000 km. Slíkar rafhlöður eru hins vegar afar dýrar og þungar og það tekur að sama skapi tiltölulega langan tíma að hlaða þær. Talsmenn NAWA Technologies segja aftur á móti að með þeirra tæknilausn verði 1.000 km drægni það viðmið sem gengið verði út frá í rafbílum, en ekki undantekning. Það sem meira er, þeir fullyrða að það muni ekki taka nema um 5 mínútur að hlaða rafhlöðurnar upp í 80% af orku­ rýmd. Þá segja þeir að framleiðsla á þessum UFCE rafhlöðum eigi að geta hafist á árinu 2023. Á brattann að sækja með allar tæknibyltingar Ef þetta gengur allt eftir má leiða líkum að því að núverandi rafbílar verði afskaplega lítið spennandi og endursölumarkaður með þá mun augljóslega hrynja. Það gæti þá væntanlega líka átt við um stóran hluta markaðar fyrir hefðbundin jarðefnaeldsneytisknúin ökutæki. Sú staðreynd samhliða þeirri staðreynd að stórfyrirtæki hafa fjárfest gríðar­ lega í framleiðslu á Lithium­Ion rafhlöðum og bifreiðum og búnaði sem þeim tengjast, mun að öllum lík­ indum gera forsvarsmönnum NAWA Technologies mjög erfitt fyrir að komast inn á markaðinn með sína nýju tækni. Það eru engin ný sannindi að hags­ munaaðilar munu reyna að verja sínar fjárfestingar með kjafti og klóm þó þeir hagsmunir byggi á afar óhag­ kvæmri og óumhverfisvænni tækni. Þetta þekkja menn vel í gegnum söguna og nægir þar t.d. að nefna hvernig risarnir í filmuframleiðslunni keyptu upp tæknina á bak við staf­ rænar myndavélar í stórum stíl og töfðu þá framþróun um líklega 10–20 ár. Sama hefur líka gerst við hönnun rafbíla sem talin var geta ógnað hefð­ bundinni bílaframleiðslu um of. Mikil reynsla og þekking í stjórnarteyminu NAWA Technologies var stofnað í apríl 2013 og þá byggt á 15 ára rann­ sóknum á nanótækni. Starfsmenn fyrirtækisins eru nú 25. Forstjórinn heitir Ulrik Grape sem er með yfir 20 ára reynslu í rekstri frumkvöðla­ fyrirtækja og í Lithium­Ion rafhlöð­ utækni. Hann hefur unnið með fjöl­ mörgum þekktum fyrirtækjum eins og Volvo, Think, VanHool, Compaq, Apple og Sagem. Stjórnarformaður og stofnandi NAWA Technologies er Pascal Boulanger, sem er doktor í eðlis­ fræði frá Orsey­háskóla og með MBA gráðu frá HEC í París. Vart þarf að taka fram að Boulanger er vísindaheilinn á bak við NAWA Technologies. Hann starfaði m.a. sem vísindastjórnandi hjá stofn­ un Savley sem heitir „Institute of Radiation Matter“. Þá var hann yfir­ maður yfir rannsóknarverkefni í 10 ár hjá frönsku kjarnorkustofnuninni (Commissiarat Energie Atomic). /HKr. Myndræn skýring á muninum á hefðbundinni Lithium-Ion rafhlöðu vinstra megin og NAWA rafhlöðu sem byggir á nanotækni hægra megin. Ulrik Grape, forstjóri NAWA Tech- nologies, er með mikla reynslu á sviði rafhlöðutækni. Doktor Pascal Boulanger stjórnar- formaður sem stofnaði NAWA Tech- nologies árið 2013. HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Pascal Boulanger, stofnandi NAWA Tech nologies, og Jean Luc Moreau frá samtökum franskra bílablaðamanna við veitingu verðlauna til NAWA fyrir tækni ársins 2020 í evrópskum bílaiðnaði. Hamrahlíð 17 Hús Blindrafélagsins Sími • 552-2002 ÓDÝR Margskipt gleraugu Verð 39.900 kr Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur) Gleraugu með glampa og rispuvörn Sérsmíðum samdægurs í styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0 19.900 kr. Margskipt gleraugu Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tv r vikur) 39.900 kr. gleraugu umgjörð og gler VANTAR ÞIG SEÐLA/KORTAVESKI? Sendum frítt! Netverslun - www.drangey.is Kr. 11.200 Kr. 8.900 Kr. 7.400 Kr. 5.900 -20% -20%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.