Bændablaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 202126 LÍF&STARF „Það er allt að verða tilbúið og við stefnum á að Jökla komi á markað fyrir eða um páska,“ segir Pétur Pétursson, sem ásamt eigin- konu sinni, Sigríði Sigurðardóttur á félagið Jöklavin en það var stofnað utan um hugmynd Péturs um framleiðslu og sölu á fyrsta íslenska rjómalíkjörnum, sem ber heitið Jökla. Hann er að megni til framleiddur úr innlendum hráefnum, mjólk og alkóhóli úr mysu. Framleiðsla mun fara fram hjá Mjólkursamlagi KS á Sauðárkróki en átöppun verður fyrir sunnan. Pétur er mjólkurfræðingur og hefur víða komið við á sínum starfs- ferli, unnið við osta-, ís- og smjörgerð svo dæmi séu tekin, en nú starfar hann sem sölustjóri hjá Fóðurblöndunni. Sigríður er viðskiptafræðingur að mennt. Pétur segir að eftir langan þróunarferil frá því hugmyndin kviknaði fyrir 14 árum sé ánægju- legt að vera nú á lokasprettinum. „Framleiðsluaðferðin er komin og lokahönnun á flöskunni er klár. Við vinnum nú að því hörðum höndum að sækja um tilskilin leyfi og þegar þau eru í höfn er okkur ekkert að vanbúnaði að hefja framleiðslu af fullum krafti,“ segir Pétur. Hann hefur verið duglegur að kynna drykkinn og segist verða var við spennu meðal fólks að fá að dreypa á þessum alíslenska drykk sem að uppistöðu er framleiddur úr mjólk. Byrjaði í eldhúsinu heima Pétur fékk hugmynd að fram- leiðslunni þegar hann var á ferða- lagi á Ítalíu árið 2007, en þar hitti hann fyrir þarlendan bónda sem smellti hrímaðri mjólkurkönnu með heimagerðum mjólkurlíkjör beint úr frystinum á borðið og bauð upp á smakk. „Mér fannst þetta skemmtileg stemning, smakkaði á líkjörnum og bragðið kom á óvart. Ég fór í fram- haldinu að hugleiða hvort hægt væri að gera eitthvað svipað heima á Íslandi,“ segir hann og bætir við að hugmyndin að Jöklu hafi því lengi verið á teikniborðinu, í heil fjórtán ár. Hann hófst þegar handa við að koma hugmyndinni í framkvæmd, var í fyrstu að dunda í eldhúsinu heima hjá sér í Mosfellsbæ. „Þar var mikið hrært í pottum og pönnum og gestum og gangandi gefið að smakka. Viðbrögðin voru góð og þau hvöttu mig til að halda áfram þannig að það má þakka það hvatningu frá fjölskyldu og vinum að ég fór yfir á næsta stig og fór alvarlega að huga að framleiðslu á drykknum. Pétur fékk m.a. styrk árið 2017 frá verkefninu Mjólk í mörgum myndum, en þar er um að ræða nýsköpunarstyrk sem Auðhumla og Matís standa að. Hann nefnir að þau Sigríður hafi tekið þátt í viðskiptahraðlinum Til sjávar og sveita og segir hvatningu þar skipta gríðarlegu máli í nýsköpun. „Þarna mætti hópur fólks með nýjar hugmyndir, allir voru jákvæðir og hvetjandi. Það gefur manni kraft- inn til að halda áfram,“ segir hann. „Það er tímafrekt og flókið að vinna að þessu verkefni og því mikil- vægt að finna stuðninginn, það eykur manni kraft.“ Súkkulaði- og lakkrísbragð falla í kramið Pétur segir að Jökla hafi gott og ferskt bragð, drykkurinn sé góð blanda af súkkulaði og lakkrís, „sem eru einmitt vinsælustu bragð- tegundirnar á Íslandi,“ segir hann. Styrkur vínandans er 15% sem gefi gott jafnvægi með bragðefnum og rjóma. „Eftirbragðið lifir lengi og skapar virkilega gott jafnvægi,“ segir hann. Engin þykkingarefni eru notuð við framleiðsluna á Jöklu heldur einungis hrein íslensk mjólkurefni. Vínandinn er unninn úr ostamysu sem annars væri hent. Pétur segir að sjálfbærni sé þannig höfð að leiðar- ljósi, dregið úr matarsóun og unnið að bættu umhverfi auk þess að auka verðmætasköpun. Skulda landbúnaðinum góðan greiða Pétur hefur um árabil starfað innan landbúnaðargeirans. Hann starfaði sem mjólkurfræðingur hjá Emmessís við framleiðslu á ferskum rjómaís um skeið. Síðan færði hann sig yfir í sölumennsku, starfaði hjá Sápugerðinni Frigg og sá m.a. um sölu á hreinlætisvörum fyrir landbúnaðinn. Leiðin lá síðan til Áburðarverksmiðjunnar og nú starfar hann hjá Fóðurblöndunni. „Þar starfa ég við sölu á fóðri, áburði og öðrum rekstrarvörum fyrir landbúnaðinn og geri mikið af því að hitta bændur og spjalla við þá. Það er alltaf jafn ánægjulegt,“ segir hann. „Það má segja að nú sé draum- ur minni með Jöklu að verða að veruleika. Mig dreymdi lengi um að skapa eitthvað nýtt og gott úr mjólkinni, sem ég kalla hvíta gullið. Eins finnst mér ég standa í þakk- arskuld við íslenskan landbúnað og bændur og vona svo sannarlega að hægt verði til framtíðar litið að auka við mjólkurkvótann um heilan helling þegar sala á Jöklu hefst en ég er ekki neinum vafa um að hún verður góð. Ég held að þessi drykk- ur eigi eftir að falla í kramið bæði hjá landsmönnum og eins ferða- mönnum sem brátt fara að streyma til landsins,“ segir Pétur og er bjart- sýnn á að vel takist til. Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is Pétur Pétursson mjólkurfræðingur fékk hugmynd að íslenskum rjómalíkjör fyrir 14 árum en nú hillir undir að hann komi á markað. Myndir / Úr einkasafni Hjónin Sigríður Sigurðardóttir viðskiptafræðingur og Pétur eiga fyrirtækið Jöklavin, sem annast framleiðslu og sölu á rjómalíkjörnum Jöklu. Um liðna helgi var verið að fínstilla átöppunargræjurnar. Pétur er ánægð ur með árangurinn. Fyrsti íslenski rjómalíkjörinn, Jökla, á markað um páskana: Allt tilbúið og unnið að því að afla leyfa fyrir framleiðsluna – Draumur að verða að veruleika, segir Pétur Pétursson hjá Jöklavin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.