Bændablaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 1
28–29 26 1. tölublað 2021 ▯ Fimmtudagur 14. janúar ▯ Blað nr. 578 ▯ 27. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Að fengnum niðurstöðum starfs­ hóps um starfsmenntanám við Landbúnaðarháskóla Íslands hefur mennta­ og menningar­ málaráðherra ákveðið að hefja skuli undirbúning að tilfærslu starfsmenntanáms í garðyrkju og skyldum greinum við LbhÍ á Reykjum í Ölfusi undir yfirstjórn og ábyrgð Fjölbrautaskóla Suðurlands. Í bréfi sem ráðherra sendi rektor LbhÍ þann 23. desember síða st liðinn segir að til að vinna að þessum áformum sé stefnt að því að gera sérstakan þríhliða samning um yfirfærslu námsins á milli LbhÍ, FSU og mennta- og menningarmálaráðuneytis. Óánægja innan garðyrkjunnar Talsverð óánægja hefur verið um stöðu starfsmenntanáms garð- yrkjunnar innan Landbúnaðar- háskóla Íslands. Fulltrúar greinar- innar hafa bent á að starfsmenntanám eins og er í boði á Reykjum sé á framhaldsskólastigi og eigi því ekki að vera kennt við háskóla. Í samþykkt félagsfundar Sam- bands garðyrkjubænda 23. október 2019 var samþykkt eftirfarandi ályktun: „Garðyrkjuskóli ríkisins að Reykjum í Ölfusi, sem starfað hafði sjálfstætt frá stofnun hans 1939, var sameinaður Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) fyrir 15 árum. Hefur garðyrkjunám verið starfrækt innan starfs- og endurmenntunardeildar skólans. Þær breytingar hafa ekki skilað þeim árangri sem vænst var. Garðyrkjunámið hefur frá sameiningu liðið fyrir þær tilraunir LbhÍ að leggja skólahald að Reykjum niður og dreifa því á ýmsar deildir innan skólans. Garðyrkjunámið að Reykjum er starfsmenntanám í nánum tengslum við atvinnugreinina. Það er algjört lykilatriði í sókn og áframhaldandi uppbyggingu garðyrkjunnar á Íslandi að vel sé staðið að þessu námi, og því sinnt af metnaði og þekkingu á þörfum atvinnulífsins. Samband garðyrkjubænda telur núverandi aðstæður óviðunandi og að brýn nauðsyn sé á að starfsmenntanám í garðyrkju á Íslandi verði fært undan LbhÍ, og verði framvegis sjálfstæð rekstrareining. Það er eindreginn vilji þeirra sem starfa innan vébanda Sambands garðyrkjubænda að þegar í stað verði gengið til þeirra verka.“ Fagnar ákvörðun ráðherra Guðríður Helgadóttir, starfsmennta- námsstjóri og starfsmaður á Reykjum, segir í tengslum um tilfærslu starfsmenntanáms garð- yrk j unnar frá LbhÍ til FSU. „Um leið og ég fagna því að ráðherra sé búinn að taka ákvörðun um að færa starfsmenntanám í garðyrkju og skyldum greinum undan stjórn LbhÍ er ljóst að tilfærslan er flókið verkefni sem þarf að leysa í góðri sátt við námið á Reykjum og atvinnulíf garðyrkjunnar. Í mínum huga er lykilatriði að tryggja að kjarnastarfsemin á Reykjum verði áfram garðyrkjunám á framhaldsskólastigi, eins og verið hefur allt frá stofnun Garðyrkjuskóla ríkisins árið 1939, en ríkið færði Reykjatorfuna á þeim tíma gagngert undir starfsemi garðyrkjuskóla. Nauðsynlegt er að garðyrkju- og umhverfisnám sé fóstrað í góðri starfs aðstöðu og hefur sú aðstaða byggst upp á Reykjum undanfarna áratugi, meðal annars með stuðningi atvinnulífs garðyrkjunnar. Hér er jafnframt eina sérhæfða aðstaðan sem til er í landinu fyrir þessar greinar, en alls er garðyrkjunám kennt á sex mismunandi náms- brautum. Mikilvægt er að rýra ekki framtíðarmöguleika garð yrkju- og umhverfisnáms á framhalds- skólastigi því þessar greinar skipta samfélagið öllu máli á tímum þegar ræktun, umhverfis- og loftslagsmál eru í brennidepli. Mikill uppgangur er í þessum greinum og nauðsynlegt að tryggja að til staðar sé vel menntað fagfólk sem kann til verka. Á síðustu árum hefur innihald allra námsbrauta garðyrkjunáms verið endurskoðað í samstarfi við viðkomandi atvinnu- greinar og er nú unnið eftir nýrri námskrá sem samþykkt var af mennta- og menningarmálaráðherra sumarið 2018. Gott og farsælt samstarf við atvinnulíf garðyrkjunnar er forsenda fyrir því að námið og garðyrkjugreinarnar blómstri áfram enda fer verknám í garðyrkju fram úti í atvinnulífinu. Rætur Garðyrkjuskólans eru á Reykjum og mikilvægt að þær haldi þó námið færist frá LbhÍ til FSu enda er eðlilegast að skólinn færist í heild sinni yfir, að húsnæði, landareignir og allir starfsmenn á staðnum fylgi með. Það er forsendan fyrir því að tryggja hagfellda tilfærslu námsins, farsæla framtíð garðyrkjumenntunar í landinu og áframhaldandi vöxt á svæðinu. Jafnframt má geta þess að kennsla hefst aftur í skólahúsnæðinu á Reykjum mánudaginn 18. janúar en allt síðastliðið ár hafa staðið yfir umfangsmiklar endurbætur á húsnæði skólans. Er það mikið fagnaðarefni fyrir okkur starfsmenn að fá nemendur aftur í Garðyrkjuskólann en kennsla á haustönn fór fram í húsnæði LbhÍ á Keldnaholti í Reykjavík. Þríhliða samningur Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sagði í svari við fyrirspurn Bænda- blaðsins um ákvörðun ráð herra að flytja starfsmenntanámið frá Landbúnaðarháskólanum til Fjölbrauta skóla Suðurlands: „Samhliða þessu er lögð áhersla á að efla rannsóknir og ný sköpun á vegum LbhÍ.“ Auk þess sem hún endurtók að „til að vinna að þessum áformum er stefnt að því að gera sérstakan þrí hliða samning um yfir færslu námsins á milli LbhÍ, FSU og mennta- og menningarmála- ráðuneytis.“ Ragnheiður vildi ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu. FSU ekki með í ákvörðuninni Olga Lísa Ólafsdóttir, skólameist- ari Fjölbrautaskóla Suðurlands, sagði í svari til Bændablaðsins um tilfærslu starfsmenntanáms í garð- yrkju og skyldum greinum undir yfirstjórn og ábyrgð Fjölbrauta- skóla Suðurlands: „Forsendur mínar eru mjög takmarkaðar til að taka afstöðu til þessa verkefnis, því á ég erfitt með að segja mikið. Við vorum ekki með í þessari ákvörðun. Þetta er spennandi verkefni sem ég samþykkti að taka þátt í en á alveg eftir að sjá hvað er í pakk- anum.“ /VH Garðyrkjuskólinn á Reykjum skilinn frá Landbúnaðarháskóla Íslands – Verður settur undir Fjölbrautaskóla Suðurlands samkvæmt áformum menntamálaráðherra Janúarsól við Þingvallavatn og gufustrókar frá Nesjavöllum. Mynd / HKr. Allt tilbúið og unnið að því að afla leyfa fyrir framleiðsluna Heldur í hefðirnar í vörulínu úr rabarbara 32 Hrúturinn Svarti-Smári frá Vatni er héraðsmeistari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.