Bændablaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 202124 Það er óhætt að segja að Breiðin á Akranesi sé búin að ganga í endurnýjun lífdaga en Akranes­ kaupstaður og Brim starfa nú saman að því að koma þróunarfé­ laginu Breið af stað í gömlu fisk­ vinnsluhúsnæði á Báru götunni í bænum. Mark miðið er að byggja upp og styðja við atvinnuupp­ byggingu og nýsköpun á Akranesi til fram tíðar og segja Valdís Fjölnis dóttir, framkvæmdastjóri þróunarfélagsins, og Gísli Gísla­ son stjórnarformaður tækifærin mýmörg fyrir nýsköpun og sam­ starf ólíkra aðila. „Menn stóðu frammi fyrir því fyrir fjórum árum að fara úr því að hafa hér fulla starfsemi í fisk- vinnslu en síðan verður stór breyting á stuttum tíma þegar þau störf hverfa héðan og þá voru góð ráð dýr. Verkefnið var því að snúa vörn í sókn og vinna í því að auka virðið hér á staðnum,“ segir Gísli um tilurð þess að Þróunarfélagið Breið varð að veruleika. Hreiður fyrir vinnslu á hugmyndum Samvinnurými þróunarfélagsins er í gömlu fiskvinnsluhúsnæði Brims ,steinsnar frá Langasandi með glæsi- legu útsýni út á hafið. Hér eru því hæg heimatökin að gefa hugmynda- fluginu lausan taum um leið og fólk sinnir ólíkum verkefnum og skapar sér öflugt tengslanet á sama tíma. „Þetta fer vel af stað og það er ógrynni af möguleikum. Við teljum okkur geta lagt talsvert af mörkum hér til að ýta undir atvinnuupp- byggingu og koma á tengslum. Það er undirliggjandi býsna víða að það vantar hreiður fyrir vinnslu á hugmyndum og Breiðin er einmitt kjörinn staður til þess. Það hefur einnig breyst mikið hugarfarið og vinnutilhögun hjá fólki í kjölfar COVID-19 og því fær hugtakið störf án staðsetningar nýja merk- ingu. Það eru ótrúleg samlegðar- áhrif að geta haft ólíka aðila hér innanborðs því hér nýtast bæði hæfni og hæfileikar á hverju borði þar sem hugmyndir og samstarf getur sprottið fram. Góð blanda styrkir alla,“ útskýrir Valdís. Skapar ýmsa möguleika Svæðið er 11 hektarar að stærð, á besta stað á Akranesi, við sjávar- síðuna, og blasir Akranesvitinn við í allri sinni dýrð af efstu hæð hússins, en hann er orðinn eitt mesta aðdrátt- arafl í komu ferðamanna til bæjarins. „Þetta er algjört einsdæmi, það er að einkaaðili, sem er Brim í þessu tilfelli, eigi svona stórt svæði hér með húsnæði sem við getum breytt og bætt að starfseminni. Þetta er einstakt tækifæri varðandi atvinnuuppbyggingu. Við viljum vera segull fyrir ferðaþjónustuna hér á svæðinu. Akranes hefur upp á margt að bjóða og liggur vel á milli höfuðborgarsvæðisins og Vestur- og Norðurlands. Hér er til dæmis Guðlaug Baths, heitar laugar á Langasandi, sem laðar að allt að 15 þúsund manns á ári,“ útskýrir Gísli og Valdís bætir við: „Það eru háleitar hugmyndir um skipulag svæðisins og í framtíðar- áformum er áætlað að byggja hér upp heilsutengda ferðaþjónustu, jafnvel íbúðabyggð og frekari atvinnuuppbyggingu. Enda er um stórt landsvæði að ræða hér á besta stað í bænum sem verður endur- skipulagt upp á nýtt svo það eru mjög spennandi tímar fram undan.“ Hvernig náum við árangri? Um 30% Akurnesinga 18 ára og eldri keyra til Reykjavíkur vegna náms eða vinnu en með því að lækka þessa tölu væri svo sannar- lega hægt að fækka kolefnissporum þessa hóps. „Það er klárlega styrkur fyrir samfélagið að geta haldið hæfileik- aríku fólki hér á svæðinu. Við von- umst til þess að starfsemin hér geti skapað tengingar sem geta leitt af sér gott samstarf á ólíkum sviðum. Þetta snýst jú fyrst og fremst um það hvernig við ætlum að ná árangri og hvernig við getum skapað verðmæti fyrir framtíðina. Það er mýgrútur af möguleikum og við viljum vera svona eins og olía á tannhjólin við það að koma hlutum í gang og tengja saman ólíka aðila,“ segir Gísli. Nýir gluggar opnast Þróunarfélagið hefur komið að ýmsum samstarfsverkefnum og horfa aðrir landshlutar einnig til þeirrar uppbyggingar sem nú er á Breiðinni. „Í byrjun desember skrifuðum við undir samstarfssamning við atvinnu- vega- og nýsköpunar ráðuneytið, Reykjavíkurborg, Orkuveituna, Hvalfjarðarsveit, Faxaflóahafnir, Sorpu, Terra, Þróunarfélag Grundar- tanga um grænan hraðal, sem ætlað er að hraða þróun verkefna og hug- mynda sem takast á við aðsteðjandi umhverfisvanda. Þannig drögum við úr umhverfisáhrifum, fjölgum störfum og aukum hagvöxt. Þetta er mjög spennandi verkefni þar sem við horfum til framtíðar varðandi lofts- lagsmál og sjálfbærni,“ segir Valdís og Gísli bætir við: „Við höfum fengið fyrirspurnir frá öðrum sveitarfélögum sem taka eftir því sem hér er gert. Það er von okkar að starfið hér verði hvatning fyrir aðra til að gera svipaða hluti. Menn sjá að það þarf að gera eitt- hvað til að auka atvinnusköpun úti á landsbyggðinni og með þeirri hugsun sem er orðin ríkari að margir geta í raun unnið störfin hvar sem er, þá skapast tækifæri og það opnast nýir gluggar fyrir sveitarfélögin að koma á fót slíkum þróunarfélögum.“ LÍF&STRAF Breiðin á Akranesi: Endalausir möguleikar til atvinnu- uppbyggingar og nýsköpunar Gísli Gíslason, stjórnarformaður þróunarfélagsins Breiðar á Akranesi, og Valdís Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri félagsins, líta björtum augum til framtíðar varðandi uppbyggingu á Akranesi. Mynd / ehg Frá stofnun þróunarfélagsins þar sem Akraneskaupstaður og Brim tóku höndum saman um að stofna sameiginlegt þróunarfélag um atvinnuuppbyggingu og nýsköpun á Akranesi. Af þessu tilefni tók Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að sér að vera sérlegur verndari verkefnisins. Erla Hjördís Gunnarsdóttir ehg@bondi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.