Bændablaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 43

Bændablaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 2021 43 Áhrif plastnotkunar á landbún- að og landbúnaðarland hafa lítið verið skoðuð en mikið hefur verið fjallað um áhrif hennar á lífríki sjávar. Áætlað er að árlega séu notuð um 6,5 milljónir tonna af plasti í landbúnaði heimsins. Á næstu tuttugu árum er áætlað að þessi plastnotkun tvöfaldist. Árlega eru flutt til landsins um 1500-1800 tonn af heyrúlluplasti, og eru þá ótaldar aðrar umbúðir sem falla til í landbúnaði, þ.m.t. umbúðir utan af áburði, fóðri og varnarefn- um og stæðuplast. Það er ótvírætt að plast hefur stuðlað að miklum framförum í búnaðarháttum, m.a. aukið gæði og heimtur afurða. Þrátt fyrir þessi jákvæðu áhrif stöndum við frammi fyrir þeirri áskorun að framleiðsla, notkun og förgun plasts er ekki sjálfbær. Plast er framleitt úr dýrmætum náttúruauðlindum Plast er fjölhæft efnasamband en framleiðsla þess byggir á notkun dýrmætra og óendurnýjanlegra náttúruauðlinda. Fyrir hvert tonn af plasti sem er framleitt eru notuð um 1,8 tonn af olíu og 185 lítrar af vatni eru notaðir við að framleiða hvert kíló. Árið 2050 er áætlað að plastframleiðsla taki um 15% af árlegum kolefniskvóta heimsins, verði framleiðsla og notkun með óbreyttum hætti samfara auknum mannfjölda. Plast er mjög stöðugt efnasamband og það tekur upp að 500 árum að brotna niður. Því hefur það skaðleg áhrif á líffjölbreytileika þar sem notkun þess hefur í för með sér mikinn úrgang og leka örplasts út í umhverfið. Plast berst inn í fæðukeðjuna Nýlegar rannsóknir hafa sýnt að mikið magn örplasts finnst í land- búnaðarlandi og að örplastmengun geti orðið meiri í ræktunarlandi en í höfum. Sýnt hefur verið fram á að örplast dragi úr þéttleika jarð- vegs, vatnsheldni, holurýmd, vatns- leiðni og geti breytt samsetningu jarðvegsörvera. Áhrifa getur einnig gætt í vexti plantna þar sem örplast getur farið í gegnum rótarkerfið og inn í frumur og vefi plantna. Nýlega birtist frétt í Noregi um að land- búnaðarplast, t.d. heyrúlluplast, plastbönd og reipi, hefði fundist í maga helmings nautgripa sem fóru í slátrun. Áætlað er að neysla hvers einstaklings á örplasti sé frá 39.000 til 52.000 agnir á ári. Miklar líkur eru á því að það megi finna í kjötvörum líkt og rannsóknir á fiskafurðum hafa sýnt, enda er kjötafurðum oftast pakkað í um- búðaplast. Plast í hringrásarhagkerfinu Plast er þeim eiginleikum gætt að vera endurvinnanlegt og því mik- ilvægt að finna því farsæla veg- ferð innan hringrásarhagkerfisins. Hringrásarhagkerfið miðar að því að hráefni séu notuð eins lengi og hægt er og að notkun auðlinda og úrgangs sé takmörkuð. Ellen MacArthur Foundation hefur sett fram fram- tíðarsýn plasts í hringrásarhagkerf- inu í sex skrefum: 1. Minnka plastnotkun og taka fyrir óþarfa notkun þess með nýsköpun og endurhönnun ferla þar sem það er notað. 2. Leggja áherslu á margnota um- búðir til þess að draga úr þörf fyrir einnota. 3) Allar plastu- mbúðir verði 100% endurnýt- anlegar, endurvinnanlegar eða niðurbrjótanlegar. 3. Að allar plastumbúðir verði í raun endurnýttar, endurunnar eða niðurbrotnar. 4. Plastnotkun gangi ekki á end- anlegar auðlindir. 5. Allar plastumbúðir séu án hættulegra efna og ógni ekki heilsu, öryggi eða réttindum fólks. Endurvinnsla á plasti Verði ekki hjá því komist að nota plast er endurvinnsla besti kostur- inn fyrir umhverfið, frekar en orkuvinnsla eða urðun. Með endur- vinnslu er hægt að nota plastefnin aftur í stað þess að framleiða nýtt með tilheyrandi notkun á óaftur- kræfum hráefnum. Heyrúlluplast, ásamt fleira plasti sem er notað í landbúnaði, getur verið mjög auð- velt að endurvinna þar sem það er einsleitt í samsetningu og framleitt í miklu magni. Með lögum um úrvinnslusjóð er markmiðið að til staðar séu hagrænir hvatar sem draga úr magni úrgangs, þ.m.t. heyrúlluplasti, sem fer til endanlegrar förgunar og skapa sem hagkvæmust skilyrði til úrvinnslu hans. Líkt og kom fram hér að ofan eru flutt inn um 1500-1800 tonn af heyrúlluplasti á ári. Einungis um fjórðungurinn af því er endurunninn á Íslandi og er því meirihlutinn sendur til annarra þjóða í brennslu, endurvinnslu eða förgun. Núverandi úrvinnslusjóðskerfi virðist því miður ekki geta tryggt það að allt heyrúlluplast fari inn í hringrásarhagkerfið. Árið 2019 voru urðuð á Íslandi 166 tonn af notuðu heyrúlluplasti. Einnig er ekki til staðar eftirlit með því að það plast sem sent er úr landi sé raunveru- lega endurnotað eða endurnýtt líkt og kveðið er á um í markmiðum sjóðsins. Litir á plasti Margir hafa velt fyrir sér hvort litur- inn á heyrúlluplastinu hafi áhrif en víða sjást t.d. svartar, bleikar og grænar heyrúllur ásamt þeim hvítu. Í mildu veðri og við hæfilega sól- argeislun hefur liturinn lítil áhrif á gæði heysins eða á mygluvöxt. Hins vegar getur liturinn haft áhrif á ásókn fugla í rúllurnar. Hægt er að endurvinna allt heyrúlluplast óháð litum en möguleikarnir á framhaldslífi eru minni fyrir endurunnar litaðar plast- perlur. Ástæðan er sú að minni eftir- spurn er eftir lituðum plastperlum á mörkuðum en hvítum. Ekki er hægt að fjarlægja litinn úr plastinu og því eru meiri möguleikar til vinnslu á hvítu plasti til framhaldsnotkunar. Þegar valinn er litur á filmu er vert að hafa í huga hvort er raunveruleg þörf fyrir litinn þar sem litaðar plast- filmur hafa minni möguleika inni í hringrásarhagkerfinu. Umhverfissparnaður í því að endurvinna plast á Íslandi Samkvæmt lífferilsgreiningu ReSource International fyrir Pure North Recycling felst mikill um- hverfissparnaður í því að endur- vinna heyrúlluplast á Íslandi sam- anborið við að senda það á erlenda markaði, hvort heldur þeir eru í Evrópu eða Asíu. Helstu tölurnar sem þar ber að nefna er 80% minni kolefnislosun, 45% minni vatns- notkun og 30% minni orkunotkun. Með endurvinnslu á Íslandi er jan- framt auðveldara fyrir notendur heyrúlluplasts að tryggja eftirlit með því að plastið sé raunverulega endurnýtt. Mikil sóknarfæri eru því fyrir íslenska bændur í því að vera í forystu á heimsvísu með það að minnka umhverfisáhrif plasts í landbúnaði. Bændur hvattir til þess a ð móta sér stefnu í aðgerða­ áætlun plastmála Mikið hefur verið fjallað um nei- kvæð umhverfisáhrif plasts og nýlega kom út aðgerðaáætlun stjórnvalda í plastmálum. Í henni er atvinnulífið og þar með taldir bændur hvattir til þess að setja sér stefnu og móta áætlanir um hvernig draga megi úr plast- notkun. Líkt og orðatiltækið segir þá er búskapur heyskapur. Því er mikilvægt að bændur finni leiðir til þess að viðhalda gæðum lands, búfjár og afurða annað hvort með heyöflunaraðferðum þar sem dregið er úr plastnotkun eða með því að tryggja það að það plast sem notað er fari með sannarlegum hætti inn í hringrásarhagkerfið og öðlist þar framhaldslíf. Skýrsla og reiknilíkan RML um plast í íslenskum landbúnaði Íslenskur landbúnaður hefur fjöl- marga möguleika til þess að vinna að og koma með lausnir sem stuðla að virku hringrásarhagkerfi. Plast hefur ekki verið mikið rann- sakað í íslenskum landbúnaði en Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins (RML) hannaði nýlega reiknilíkan til að meta hagkvæmni og kostnað ólíkra heyöflunaraðferða og þar með benda á aðferðir sem falla vel að hugmyndum hringrásarhagkerfisins þar sem dregið er úr notkun plasts eða henni hætt. Niðurstöðurnar hafa verið settar fram í skýrslu sem nálg- ast má á vef RML en í næsta blaði verður frekari umfjöllun um plast- minni eða plastlausar aðferðir við heyöflun. Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 STÝRISENDAR í flestar gerðir dráttarvéla Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Plast í landbúnaði Berglind Ósk Alfreðsdóttir ráðunautur RML í loftslags- og umhverfismálum berglind@rml.is Mikil sóknarfæri eru fyrir íslenska bændur í því að vera í forystu á heimsvísu með það að minnka umhverfisáhrif plasts í landbúnaði. Finnsk gæði sem henta vel fyrir íslenskar aðstæður VETRARBÚNAÐUR HILLTIP Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík 551 5464 / wendel.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.