Bændablaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 2021 43
Áhrif plastnotkunar á landbún-
að og landbúnaðarland hafa lítið
verið skoðuð en mikið hefur verið
fjallað um áhrif hennar á lífríki
sjávar. Áætlað er að árlega séu
notuð um 6,5 milljónir tonna af
plasti í landbúnaði heimsins. Á
næstu tuttugu árum er áætlað að
þessi plastnotkun tvöfaldist.
Árlega eru flutt til landsins um
1500-1800 tonn af heyrúlluplasti,
og eru þá ótaldar aðrar umbúðir sem
falla til í landbúnaði, þ.m.t. umbúðir
utan af áburði, fóðri og varnarefn-
um og stæðuplast. Það er ótvírætt
að plast hefur stuðlað að miklum
framförum í búnaðarháttum, m.a.
aukið gæði og heimtur afurða. Þrátt
fyrir þessi jákvæðu áhrif stöndum
við frammi fyrir þeirri áskorun að
framleiðsla, notkun og förgun plasts
er ekki sjálfbær.
Plast er framleitt úr dýrmætum
náttúruauðlindum
Plast er fjölhæft efnasamband en
framleiðsla þess byggir á notkun
dýrmætra og óendurnýjanlegra
náttúruauðlinda. Fyrir hvert tonn
af plasti sem er framleitt eru notuð
um 1,8 tonn af olíu og 185 lítrar af
vatni eru notaðir við að framleiða
hvert kíló. Árið 2050 er áætlað að
plastframleiðsla taki um 15% af
árlegum kolefniskvóta heimsins,
verði framleiðsla og notkun með
óbreyttum hætti samfara auknum
mannfjölda. Plast er mjög stöðugt
efnasamband og það tekur upp að
500 árum að brotna niður. Því hefur
það skaðleg áhrif á líffjölbreytileika
þar sem notkun þess hefur í för með
sér mikinn úrgang og leka örplasts
út í umhverfið.
Plast berst inn í fæðukeðjuna
Nýlegar rannsóknir hafa sýnt að
mikið magn örplasts finnst í land-
búnaðarlandi og að örplastmengun
geti orðið meiri í ræktunarlandi en
í höfum. Sýnt hefur verið fram á
að örplast dragi úr þéttleika jarð-
vegs, vatnsheldni, holurýmd, vatns-
leiðni og geti breytt samsetningu
jarðvegsörvera. Áhrifa getur einnig
gætt í vexti plantna þar sem örplast
getur farið í gegnum rótarkerfið og
inn í frumur og vefi plantna. Nýlega
birtist frétt í Noregi um að land-
búnaðarplast, t.d. heyrúlluplast,
plastbönd og reipi, hefði fundist
í maga helmings nautgripa sem
fóru í slátrun. Áætlað er að neysla
hvers einstaklings á örplasti sé frá
39.000 til 52.000 agnir á ári. Miklar
líkur eru á því að það megi finna
í kjötvörum líkt og rannsóknir á
fiskafurðum hafa sýnt, enda er
kjötafurðum oftast pakkað í um-
búðaplast.
Plast í hringrásarhagkerfinu
Plast er þeim eiginleikum gætt að
vera endurvinnanlegt og því mik-
ilvægt að finna því farsæla veg-
ferð innan hringrásarhagkerfisins.
Hringrásarhagkerfið miðar að því að
hráefni séu notuð eins lengi og hægt
er og að notkun auðlinda og úrgangs
sé takmörkuð. Ellen MacArthur
Foundation hefur sett fram fram-
tíðarsýn plasts í hringrásarhagkerf-
inu í sex skrefum:
1. Minnka plastnotkun og taka
fyrir óþarfa notkun þess með
nýsköpun og endurhönnun ferla
þar sem það er notað.
2. Leggja áherslu á margnota um-
búðir til þess að draga úr þörf
fyrir einnota. 3) Allar plastu-
mbúðir verði 100% endurnýt-
anlegar, endurvinnanlegar eða
niðurbrjótanlegar.
3. Að allar plastumbúðir verði í
raun endurnýttar, endurunnar
eða niðurbrotnar.
4. Plastnotkun gangi ekki á end-
anlegar auðlindir.
5. Allar plastumbúðir séu án
hættulegra efna og ógni ekki
heilsu, öryggi eða réttindum
fólks.
Endurvinnsla á plasti
Verði ekki hjá því komist að nota
plast er endurvinnsla besti kostur-
inn fyrir umhverfið, frekar en
orkuvinnsla eða urðun. Með endur-
vinnslu er hægt að nota plastefnin
aftur í stað þess að framleiða nýtt
með tilheyrandi notkun á óaftur-
kræfum hráefnum. Heyrúlluplast,
ásamt fleira plasti sem er notað í
landbúnaði, getur verið mjög auð-
velt að endurvinna þar sem það er
einsleitt í samsetningu og framleitt
í miklu magni.
Með lögum um úrvinnslusjóð er
markmiðið að til staðar séu hagrænir
hvatar sem draga úr magni úrgangs,
þ.m.t. heyrúlluplasti, sem fer til
endanlegrar förgunar og skapa sem
hagkvæmust skilyrði til úrvinnslu
hans. Líkt og kom fram hér að ofan
eru flutt inn um 1500-1800 tonn af
heyrúlluplasti á ári. Einungis um
fjórðungurinn af því er endurunninn
á Íslandi og er því meirihlutinn
sendur til annarra þjóða í brennslu,
endurvinnslu eða förgun.
Núverandi úrvinnslusjóðskerfi
virðist því miður ekki geta tryggt
það að allt heyrúlluplast fari inn í
hringrásarhagkerfið. Árið 2019 voru
urðuð á Íslandi 166 tonn af notuðu
heyrúlluplasti. Einnig er ekki til
staðar eftirlit með því að það plast
sem sent er úr landi sé raunveru-
lega endurnotað eða endurnýtt líkt
og kveðið er á um í markmiðum
sjóðsins.
Litir á plasti
Margir hafa velt fyrir sér hvort litur-
inn á heyrúlluplastinu hafi áhrif en
víða sjást t.d. svartar, bleikar og
grænar heyrúllur ásamt þeim hvítu.
Í mildu veðri og við hæfilega sól-
argeislun hefur liturinn lítil áhrif
á gæði heysins eða á mygluvöxt.
Hins vegar getur liturinn haft áhrif
á ásókn fugla í rúllurnar.
Hægt er að endurvinna allt
heyrúlluplast óháð litum en
möguleikarnir á framhaldslífi eru
minni fyrir endurunnar litaðar plast-
perlur. Ástæðan er sú að minni eftir-
spurn er eftir lituðum plastperlum á
mörkuðum en hvítum. Ekki er hægt
að fjarlægja litinn úr plastinu og því
eru meiri möguleikar til vinnslu á
hvítu plasti til framhaldsnotkunar.
Þegar valinn er litur á filmu er vert
að hafa í huga hvort er raunveruleg
þörf fyrir litinn þar sem litaðar plast-
filmur hafa minni möguleika inni í
hringrásarhagkerfinu.
Umhverfissparnaður í því að
endurvinna plast á Íslandi
Samkvæmt lífferilsgreiningu
ReSource International fyrir Pure
North Recycling felst mikill um-
hverfissparnaður í því að endur-
vinna heyrúlluplast á Íslandi sam-
anborið við að senda það á erlenda
markaði, hvort heldur þeir eru í
Evrópu eða Asíu. Helstu tölurnar
sem þar ber að nefna er 80% minni
kolefnislosun, 45% minni vatns-
notkun og 30% minni orkunotkun.
Með endurvinnslu á Íslandi er jan-
framt auðveldara fyrir notendur
heyrúlluplasts að tryggja eftirlit
með því að plastið sé raunverulega
endurnýtt. Mikil sóknarfæri eru því
fyrir íslenska bændur í því að vera
í forystu á heimsvísu með það að
minnka umhverfisáhrif plasts í
landbúnaði.
Bændur hvattir til þess a
ð móta sér stefnu í aðgerða
áætlun plastmála
Mikið hefur verið fjallað um nei-
kvæð umhverfisáhrif plasts og
nýlega kom út aðgerðaáætlun
stjórnvalda í plastmálum. Í henni
er atvinnulífið og þar með taldir
bændur hvattir til þess að setja
sér stefnu og móta áætlanir um
hvernig draga megi úr plast-
notkun. Líkt og orðatiltækið segir
þá er búskapur heyskapur. Því er
mikilvægt að bændur finni leiðir
til þess að viðhalda gæðum lands,
búfjár og afurða annað hvort með
heyöflunaraðferðum þar sem dregið
er úr plastnotkun eða með því að
tryggja það að það plast sem notað
er fari með sannarlegum hætti inn
í hringrásarhagkerfið og öðlist þar
framhaldslíf.
Skýrsla og reiknilíkan RML um
plast í íslenskum landbúnaði
Íslenskur landbúnaður hefur fjöl-
marga möguleika til þess að vinna
að og koma með lausnir sem
stuðla að virku hringrásarhagkerfi.
Plast hefur ekki verið mikið rann-
sakað í íslenskum landbúnaði en
Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins
(RML) hannaði nýlega reiknilíkan
til að meta hagkvæmni og kostnað
ólíkra heyöflunaraðferða og þar með
benda á aðferðir sem falla vel að
hugmyndum hringrásarhagkerfisins
þar sem dregið er úr notkun plasts
eða henni hætt. Niðurstöðurnar hafa
verið settar fram í skýrslu sem nálg-
ast má á vef RML en í næsta blaði
verður frekari umfjöllun um plast-
minni eða plastlausar aðferðir við
heyöflun.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÝRISENDAR í flestar
gerðir dráttarvéla
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Plast í landbúnaði
Berglind Ósk Alfreðsdóttir
ráðunautur RML í loftslags-
og umhverfismálum
berglind@rml.is
Mikil sóknarfæri eru fyrir íslenska bændur í því að vera í forystu á heimsvísu með það að minnka umhverfisáhrif plasts í landbúnaði.
Finnsk gæði sem henta vel
fyrir íslenskar aðstæður
VETRARBÚNAÐUR
HILLTIP
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík
551 5464 / wendel.is