Bændablaðið - 14.01.2021, Qupperneq 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 202124
Það er óhætt að segja að Breiðin
á Akranesi sé búin að ganga í
endurnýjun lífdaga en Akranes
kaupstaður og Brim starfa nú
saman að því að koma þróunarfé
laginu Breið af stað í gömlu fisk
vinnsluhúsnæði á Báru götunni í
bænum. Mark miðið er að byggja
upp og styðja við atvinnuupp
byggingu og nýsköpun á Akranesi
til fram tíðar og segja Valdís
Fjölnis dóttir, framkvæmdastjóri
þróunarfélagsins, og Gísli Gísla
son stjórnarformaður tækifærin
mýmörg fyrir nýsköpun og sam
starf ólíkra aðila.
„Menn stóðu frammi fyrir því
fyrir fjórum árum að fara úr því
að hafa hér fulla starfsemi í fisk-
vinnslu en síðan verður stór breyting
á stuttum tíma þegar þau störf
hverfa héðan og þá voru góð ráð
dýr. Verkefnið var því að snúa vörn
í sókn og vinna í því að auka virðið
hér á staðnum,“ segir Gísli um tilurð
þess að Þróunarfélagið Breið varð
að veruleika.
Hreiður fyrir vinnslu
á hugmyndum
Samvinnurými þróunarfélagsins er
í gömlu fiskvinnsluhúsnæði Brims
,steinsnar frá Langasandi með glæsi-
legu útsýni út á hafið. Hér eru því
hæg heimatökin að gefa hugmynda-
fluginu lausan taum um leið og fólk
sinnir ólíkum verkefnum og skapar
sér öflugt tengslanet á sama tíma.
„Þetta fer vel af stað og það er
ógrynni af möguleikum. Við teljum
okkur geta lagt talsvert af mörkum
hér til að ýta undir atvinnuupp-
byggingu og koma á tengslum.
Það er undirliggjandi býsna víða
að það vantar hreiður fyrir vinnslu
á hugmyndum og Breiðin er einmitt
kjörinn staður til þess. Það hefur
einnig breyst mikið hugarfarið og
vinnutilhögun hjá fólki í kjölfar
COVID-19 og því fær hugtakið
störf án staðsetningar nýja merk-
ingu. Það eru ótrúleg samlegðar-
áhrif að geta haft ólíka aðila hér
innanborðs því hér nýtast bæði
hæfni og hæfileikar á hverju borði
þar sem hugmyndir og samstarf
getur sprottið fram. Góð blanda
styrkir alla,“ útskýrir Valdís.
Skapar ýmsa möguleika
Svæðið er 11 hektarar að stærð, á
besta stað á Akranesi, við sjávar-
síðuna, og blasir Akranesvitinn við í
allri sinni dýrð af efstu hæð hússins,
en hann er orðinn eitt mesta aðdrátt-
arafl í komu ferðamanna til bæjarins.
„Þetta er algjört einsdæmi, það
er að einkaaðili, sem er Brim í
þessu tilfelli, eigi svona stórt svæði
hér með húsnæði sem við getum
breytt og bætt að starfseminni.
Þetta er einstakt tækifæri varðandi
atvinnuuppbyggingu. Við viljum
vera segull fyrir ferðaþjónustuna
hér á svæðinu. Akranes hefur upp á
margt að bjóða og liggur vel á milli
höfuðborgarsvæðisins og Vestur-
og Norðurlands. Hér er til dæmis
Guðlaug Baths, heitar laugar á
Langasandi, sem laðar að allt að 15
þúsund manns á ári,“ útskýrir Gísli
og Valdís bætir við:
„Það eru háleitar hugmyndir um
skipulag svæðisins og í framtíðar-
áformum er áætlað að byggja hér
upp heilsutengda ferðaþjónustu,
jafnvel íbúðabyggð og frekari
atvinnuuppbyggingu. Enda er um
stórt landsvæði að ræða hér á besta
stað í bænum sem verður endur-
skipulagt upp á nýtt svo það eru
mjög spennandi tímar fram undan.“
Hvernig náum við árangri?
Um 30% Akurnesinga 18 ára og
eldri keyra til Reykjavíkur vegna
náms eða vinnu en með því að
lækka þessa tölu væri svo sannar-
lega hægt að fækka kolefnissporum
þessa hóps.
„Það er klárlega styrkur fyrir
samfélagið að geta haldið hæfileik-
aríku fólki hér á svæðinu. Við von-
umst til þess að starfsemin hér geti
skapað tengingar sem geta leitt af
sér gott samstarf á ólíkum sviðum.
Þetta snýst jú fyrst og fremst um það
hvernig við ætlum að ná árangri og
hvernig við getum skapað verðmæti
fyrir framtíðina. Það er mýgrútur
af möguleikum og við viljum vera
svona eins og olía á tannhjólin við
það að koma hlutum í gang og tengja
saman ólíka aðila,“ segir Gísli.
Nýir gluggar opnast
Þróunarfélagið hefur komið að
ýmsum samstarfsverkefnum og horfa
aðrir landshlutar einnig til þeirrar
uppbyggingar sem nú er á Breiðinni.
„Í byrjun desember skrifuðum við
undir samstarfssamning við atvinnu-
vega- og nýsköpunar ráðuneytið,
Reykjavíkurborg, Orkuveituna,
Hvalfjarðarsveit, Faxaflóahafnir,
Sorpu, Terra, Þróunarfélag Grundar-
tanga um grænan hraðal, sem ætlað
er að hraða þróun verkefna og hug-
mynda sem takast á við aðsteðjandi
umhverfisvanda. Þannig drögum
við úr umhverfisáhrifum, fjölgum
störfum og aukum hagvöxt. Þetta er
mjög spennandi verkefni þar sem við
horfum til framtíðar varðandi lofts-
lagsmál og sjálfbærni,“ segir Valdís
og Gísli bætir við:
„Við höfum fengið fyrirspurnir
frá öðrum sveitarfélögum sem taka
eftir því sem hér er gert. Það er von
okkar að starfið hér verði hvatning
fyrir aðra til að gera svipaða hluti.
Menn sjá að það þarf að gera eitt-
hvað til að auka atvinnusköpun úti á
landsbyggðinni og með þeirri hugsun
sem er orðin ríkari að margir geta í
raun unnið störfin hvar sem er, þá
skapast tækifæri og það opnast nýir
gluggar fyrir sveitarfélögin að koma
á fót slíkum þróunarfélögum.“
LÍF&STRAF
Breiðin á Akranesi:
Endalausir möguleikar til atvinnu-
uppbyggingar og nýsköpunar
Gísli Gíslason, stjórnarformaður þróunarfélagsins Breiðar á Akranesi, og
Valdís Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri félagsins, líta björtum augum til
framtíðar varðandi uppbyggingu á Akranesi. Mynd / ehg
Frá stofnun þróunarfélagsins þar sem Akraneskaupstaður og Brim tóku höndum saman um að stofna sameiginlegt þróunarfélag um atvinnuuppbyggingu
og nýsköpun á Akranesi. Af þessu tilefni tók Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að sér að vera sérlegur verndari verkefnisins.
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is