Bændablaðið - 14.01.2021, Side 1
28–29 26
1. tölublað 2021 ▯ Fimmtudagur 14. janúar ▯ Blað nr. 578 ▯ 27. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Að fengnum niðurstöðum starfs
hóps um starfsmenntanám við
Landbúnaðarháskóla Íslands
hefur mennta og menningar
málaráðherra ákveðið að hefja
skuli undirbúning að tilfærslu
starfsmenntanáms í garðyrkju
og skyldum greinum við LbhÍ á
Reykjum í Ölfusi undir yfirstjórn
og ábyrgð Fjölbrautaskóla
Suðurlands.
Í bréfi sem ráðherra sendi
rektor LbhÍ þann 23. desember
síða st liðinn segir að til að vinna
að þessum áformum sé stefnt að
því að gera sérstakan þríhliða
samning um yfirfærslu námsins
á milli LbhÍ, FSU og mennta- og
menningarmálaráðuneytis.
Óánægja innan garðyrkjunnar
Talsverð óánægja hefur verið um
stöðu starfsmenntanáms garð-
yrkjunnar innan Landbúnaðar-
háskóla Íslands. Fulltrúar greinar-
innar hafa bent á að starfsmenntanám
eins og er í boði á Reykjum sé á
framhaldsskólastigi og eigi því ekki
að vera kennt við háskóla.
Í samþykkt félagsfundar Sam-
bands garðyrkjubænda 23. október
2019 var samþykkt eftirfarandi
ályktun:
„Garðyrkjuskóli ríkisins að
Reykjum í Ölfusi, sem starfað hafði
sjálfstætt frá stofnun hans 1939, var
sameinaður Landbúnaðarháskóla
Íslands (LbhÍ) fyrir 15 árum. Hefur
garðyrkjunám verið starfrækt innan
starfs- og endurmenntunardeildar
skólans. Þær breytingar hafa ekki
skilað þeim árangri sem vænst
var. Garðyrkjunámið hefur frá
sameiningu liðið fyrir þær tilraunir
LbhÍ að leggja skólahald að Reykjum
niður og dreifa því á ýmsar deildir
innan skólans.
Garðyrkjunámið að Reykjum er
starfsmenntanám í nánum tengslum
við atvinnugreinina. Það er algjört
lykilatriði í sókn og áframhaldandi
uppbyggingu garðyrkjunnar á Íslandi
að vel sé staðið að þessu námi, og
því sinnt af metnaði og þekkingu á
þörfum atvinnulífsins.
Samband garðyrkjubænda telur
núverandi aðstæður óviðunandi og að
brýn nauðsyn sé á að starfsmenntanám
í garðyrkju á Íslandi verði fært undan
LbhÍ, og verði framvegis sjálfstæð
rekstrareining. Það er eindreginn
vilji þeirra sem starfa innan vébanda
Sambands garðyrkjubænda að þegar
í stað verði gengið til þeirra verka.“
Fagnar ákvörðun ráðherra
Guðríður Helgadóttir, starfsmennta-
námsstjóri og starfsmaður á
Reykjum, segir í tengslum um
tilfærslu starfsmenntanáms garð-
yrk j unnar frá LbhÍ til FSU.
„Um leið og ég fagna því að
ráðherra sé búinn að taka ákvörðun
um að færa starfsmenntanám í
garðyrkju og skyldum greinum undan
stjórn LbhÍ er ljóst að tilfærslan er
flókið verkefni sem þarf að leysa í
góðri sátt við námið á Reykjum og
atvinnulíf garðyrkjunnar.
Í mínum huga er lykilatriði
að tryggja að kjarnastarfsemin á
Reykjum verði áfram garðyrkjunám
á framhaldsskólastigi, eins og verið
hefur allt frá stofnun Garðyrkjuskóla
ríkisins árið 1939, en ríkið færði
Reykjatorfuna á þeim tíma gagngert
undir starfsemi garðyrkjuskóla.
Nauðsynlegt er að garðyrkju- og
umhverfisnám sé fóstrað í góðri
starfs aðstöðu og hefur sú aðstaða
byggst upp á Reykjum undanfarna
áratugi, meðal annars með stuðningi
atvinnulífs garðyrkjunnar. Hér er
jafnframt eina sérhæfða aðstaðan
sem til er í landinu fyrir þessar
greinar, en alls er garðyrkjunám
kennt á sex mismunandi náms-
brautum. Mikilvægt er að rýra ekki
framtíðarmöguleika garð yrkju-
og umhverfisnáms á framhalds-
skólastigi því þessar greinar skipta
samfélagið öllu máli á tímum þegar
ræktun, umhverfis- og loftslagsmál
eru í brennidepli.
Mikill uppgangur er í þessum
greinum og nauðsynlegt að tryggja
að til staðar sé vel menntað fagfólk
sem kann til verka. Á síðustu árum
hefur innihald allra námsbrauta
garðyrkjunáms verið endurskoðað
í samstarfi við viðkomandi atvinnu-
greinar og er nú unnið eftir nýrri
námskrá sem samþykkt var af
mennta- og menningarmálaráðherra
sumarið 2018. Gott og farsælt
samstarf við atvinnulíf garðyrkjunnar
er forsenda fyrir því að námið og
garðyrkjugreinarnar blómstri áfram
enda fer verknám í garðyrkju fram
úti í atvinnulífinu.
Rætur Garðyrkjuskólans eru á
Reykjum og mikilvægt að þær haldi
þó námið færist frá LbhÍ til FSu enda
er eðlilegast að skólinn færist í heild
sinni yfir, að húsnæði, landareignir
og allir starfsmenn á staðnum fylgi
með. Það er forsendan fyrir því að
tryggja hagfellda tilfærslu námsins,
farsæla framtíð garðyrkjumenntunar
í landinu og áframhaldandi vöxt á
svæðinu.
Jafnframt má geta þess að
kennsla hefst aftur í skólahúsnæðinu
á Reykjum mánudaginn 18. janúar
en allt síðastliðið ár hafa staðið
yfir umfangsmiklar endurbætur
á húsnæði skólans. Er það
mikið fagnaðarefni fyrir okkur
starfsmenn að fá nemendur aftur
í Garðyrkjuskólann en kennsla á
haustönn fór fram í húsnæði LbhÍ
á Keldnaholti í Reykjavík.
Þríhliða samningur
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor
Landbúnaðarháskóla Íslands, sagði
í svari við fyrirspurn Bænda-
blaðsins um ákvörðun ráð herra
að flytja starfsmenntanámið frá
Landbúnaðarháskólanum til
Fjölbrauta skóla Suðurlands:
„Samhliða þessu er lögð
áhersla á að efla rannsóknir og
ný sköpun á vegum LbhÍ.“ Auk
þess sem hún endurtók að „til
að vinna að þessum áformum er
stefnt að því að gera sérstakan
þrí hliða samning um yfir færslu
námsins á milli LbhÍ, FSU og
mennta- og menningarmála-
ráðuneytis.“ Ragnheiður vildi
ekki tjá sig frekar um málið að
svo stöddu.
FSU ekki með í ákvörðuninni
Olga Lísa Ólafsdóttir, skólameist-
ari Fjölbrautaskóla Suðurlands,
sagði í svari til Bændablaðsins um
tilfærslu starfsmenntanáms í garð-
yrkju og skyldum greinum undir
yfirstjórn og ábyrgð Fjölbrauta-
skóla Suðurlands:
„Forsendur mínar eru mjög
takmarkaðar til að taka afstöðu
til þessa verkefnis, því á ég erfitt
með að segja mikið. Við vorum
ekki með í þessari ákvörðun.
Þetta er spennandi verkefni sem
ég samþykkti að taka þátt í en á
alveg eftir að sjá hvað er í pakk-
anum.“ /VH
Garðyrkjuskólinn á Reykjum skilinn
frá Landbúnaðarháskóla Íslands
– Verður settur undir Fjölbrautaskóla Suðurlands samkvæmt áformum menntamálaráðherra
Janúarsól við Þingvallavatn og gufustrókar frá Nesjavöllum. Mynd / HKr.
Allt tilbúið og unnið að því að
afla leyfa fyrir framleiðsluna
Heldur í hefðirnar í
vörulínu úr rabarbara
32
Hrúturinn Svarti-Smári frá
Vatni er héraðsmeistari