Bændablaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 202126
LÍF&STARF
„Það er allt að verða tilbúið og
við stefnum á að Jökla komi á
markað fyrir eða um páska,“ segir
Pétur Pétursson, sem ásamt eigin-
konu sinni, Sigríði Sigurðardóttur
á félagið Jöklavin en það var
stofnað utan um hugmynd Péturs
um framleiðslu og sölu á fyrsta
íslenska rjómalíkjörnum, sem ber
heitið Jökla. Hann er að megni
til framleiddur úr innlendum
hráefnum, mjólk og alkóhóli
úr mysu. Framleiðsla mun fara
fram hjá Mjólkursamlagi KS á
Sauðárkróki en átöppun verður
fyrir sunnan.
Pétur er mjólkurfræðingur og
hefur víða komið við á sínum starfs-
ferli, unnið við osta-, ís- og smjörgerð
svo dæmi séu tekin, en nú starfar hann
sem sölustjóri hjá Fóðurblöndunni.
Sigríður er viðskiptafræðingur að
mennt.
Pétur segir að eftir langan
þróunarferil frá því hugmyndin
kviknaði fyrir 14 árum sé ánægju-
legt að vera nú á lokasprettinum.
„Framleiðsluaðferðin er komin og
lokahönnun á flöskunni er klár. Við
vinnum nú að því hörðum höndum
að sækja um tilskilin leyfi og þegar
þau eru í höfn er okkur ekkert að
vanbúnaði að hefja framleiðslu af
fullum krafti,“ segir Pétur. Hann
hefur verið duglegur að kynna
drykkinn og segist verða var við
spennu meðal fólks að fá að dreypa
á þessum alíslenska drykk sem að
uppistöðu er framleiddur úr mjólk.
Byrjaði í eldhúsinu heima
Pétur fékk hugmynd að fram-
leiðslunni þegar hann var á ferða-
lagi á Ítalíu árið 2007, en þar hitti
hann fyrir þarlendan bónda sem
smellti hrímaðri mjólkurkönnu með
heimagerðum mjólkurlíkjör beint
úr frystinum á borðið og bauð upp
á smakk.
„Mér fannst þetta skemmtileg
stemning, smakkaði á líkjörnum og
bragðið kom á óvart. Ég fór í fram-
haldinu að hugleiða hvort hægt væri
að gera eitthvað svipað heima á
Íslandi,“ segir hann og bætir við að
hugmyndin að Jöklu hafi því lengi
verið á teikniborðinu, í heil fjórtán
ár. Hann hófst þegar handa við að
koma hugmyndinni í framkvæmd,
var í fyrstu að dunda í eldhúsinu
heima hjá sér í Mosfellsbæ.
„Þar var mikið hrært í pottum
og pönnum og gestum og gangandi
gefið að smakka. Viðbrögðin voru
góð og þau hvöttu mig til að halda
áfram þannig að það má þakka það
hvatningu frá fjölskyldu og vinum
að ég fór yfir á næsta stig og fór
alvarlega að huga að framleiðslu á
drykknum.
Pétur fékk m.a. styrk árið 2017
frá verkefninu Mjólk í mörgum
myndum, en þar er um að ræða
nýsköpunarstyrk sem Auðhumla
og Matís standa að. Hann nefnir
að þau Sigríður hafi tekið þátt í
viðskiptahraðlinum Til sjávar og
sveita og segir hvatningu þar skipta
gríðarlegu máli í nýsköpun.
„Þarna mætti hópur fólks með
nýjar hugmyndir, allir voru jákvæðir
og hvetjandi. Það gefur manni kraft-
inn til að halda áfram,“ segir hann.
„Það er tímafrekt og flókið að
vinna að þessu verkefni og því mikil-
vægt að finna stuðninginn, það eykur
manni kraft.“
Súkkulaði- og lakkrísbragð
falla í kramið
Pétur segir að Jökla hafi gott og
ferskt bragð, drykkurinn sé góð
blanda af súkkulaði og lakkrís,
„sem eru einmitt vinsælustu bragð-
tegundirnar á Íslandi,“ segir hann.
Styrkur vínandans er 15% sem gefi
gott jafnvægi með bragðefnum og
rjóma.
„Eftirbragðið lifir lengi og skapar
virkilega gott jafnvægi,“ segir hann.
Engin þykkingarefni eru notuð
við framleiðsluna á Jöklu heldur
einungis hrein íslensk mjólkurefni.
Vínandinn er unninn úr ostamysu
sem annars væri hent. Pétur segir að
sjálfbærni sé þannig höfð að leiðar-
ljósi, dregið úr matarsóun og unnið
að bættu umhverfi auk þess að auka
verðmætasköpun.
Skulda landbúnaðinum
góðan greiða
Pétur hefur um árabil starfað
innan landbúnaðargeirans. Hann
starfaði sem mjólkurfræðingur
hjá Emmessís við framleiðslu á
ferskum rjómaís um skeið. Síðan
færði hann sig yfir í sölumennsku,
starfaði hjá Sápugerðinni Frigg og
sá m.a. um sölu á hreinlætisvörum
fyrir landbúnaðinn. Leiðin lá síðan
til Áburðarverksmiðjunnar og nú
starfar hann hjá Fóðurblöndunni.
„Þar starfa ég við sölu á fóðri,
áburði og öðrum rekstrarvörum fyrir
landbúnaðinn og geri mikið af því að
hitta bændur og spjalla við þá. Það er
alltaf jafn ánægjulegt,“ segir hann.
„Það má segja að nú sé draum-
ur minni með Jöklu að verða að
veruleika. Mig dreymdi lengi um
að skapa eitthvað nýtt og gott úr
mjólkinni, sem ég kalla hvíta gullið.
Eins finnst mér ég standa í þakk-
arskuld við íslenskan landbúnað
og bændur og vona svo sannarlega
að hægt verði til framtíðar litið að
auka við mjólkurkvótann um heilan
helling þegar sala á Jöklu hefst en
ég er ekki neinum vafa um að hún
verður góð. Ég held að þessi drykk-
ur eigi eftir að falla í kramið bæði
hjá landsmönnum og eins ferða-
mönnum sem brátt fara að streyma
til landsins,“ segir Pétur og er bjart-
sýnn á að vel takist til.
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Pétur Pétursson mjólkurfræðingur fékk hugmynd að íslenskum rjómalíkjör
fyrir 14 árum en nú hillir undir að hann komi á markað. Myndir / Úr einkasafni
Hjónin Sigríður Sigurðardóttir viðskiptafræðingur og Pétur eiga fyrirtækið
Jöklavin, sem annast framleiðslu og sölu á rjómalíkjörnum Jöklu.
Um liðna helgi var verið að fínstilla
átöppunargræjurnar. Pétur er
ánægð ur með árangurinn.
Fyrsti íslenski rjómalíkjörinn, Jökla, á markað um páskana:
Allt tilbúið og unnið að því að
afla leyfa fyrir framleiðsluna
– Draumur að verða að veruleika, segir Pétur Pétursson hjá Jöklavin