Bændablaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 41

Bændablaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 41 Það má með sanni segja að bylting hafi átt sér stað í smáframleiðslu matvæla hér á landi á síðastliðn- um áratug og fjölgunin undan- farin misseri nánast í veldisvexti. Tilfinningin er sú að hátt í viku- lega hefji aðili framleiðslu á mat- vælum einhvers staðar á landinu. Það skemmtilegasta við þá þróun er hve fjölbreytt matvælin eru og hve bakgrunnur, staðsetning og aðstæður framleiðendanna eru ólíkar. Í Samtökum smáframleiðenda matvæla eru um 130 félagsmenn með fulla aðild. Af þeim er tæplega helmingur á lögbýli, þriðjungur á höfuðborgarsvæðinu og ríflega fimmtungur í bæjarfélagi utan höf­ uðborgarsvæðisins. Meginvöruflokkur þriðjungs félagsmanna eru plöntuafurðir, hunang og salt. Plöntuafurðir eru vörur eins og sultur, sósur, súrkál, sinnep, pestó, kex og réttir fyrir grænkera. Meginvöruflokkur fjórðungs félagsmanna eru svo kjötafurðir. Aðrir vöruflokkar eru bakstur og sætindi, mjólkurvörur, ís og sorbet og fiskafurðir og sjávarfang. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér fjölbreytnina geta farið inn á vef samtakanna (ssfm.is) og smellt á flipann Félagsmenn. Samkvæmt samþykktum Sam­ taka smáframleiðenda matvæla er smá framleiðandi aðili sem við uppgjörs dag er með hreina veltu undir 100.000.000 kr. Engin starfsmannafjölda­ eða veltutengd opinber skilgreining á smáframleiðanda er til hér á landi og þær erlendu eiga ekki við, því mikill meirihluti íslenskra fyrirtækja myndi falla undir þær. Atvinnueldhús og heimavinnslur á lögbýlum Í samtökunum eru aðilar sem eru allt frá því að vera í undirbúningsferli (ekki byrjaðir að framleiða) upp í fyrirtæki sem eru með hátt í hundrað milljóna króna veltu og allt þar á milli. Langflestir eru þó með veltu langt undir 10 milljónum á ári og framleiða vörurnar samhliða sínu meginstarfi / öðrum rekstri. Færst hefur í vöxt að einstaklingar án atvinnu hefji slíka framleiðslu, sem er afar jákvætt, enda sú nýsköpun sem verið er að kalla eftir nú á tímum Covid. Um 10% félagsmanna eru af erlendu bergi brotin og fjölgar þeim jafnt og þétt. Samkvæmt matvælalögum er óheimilt að framleiða matvæli í heimahúsum. Krafa er gerð um að matvæli séu framleidd í vottuðum vinnslum eða atvinnueldhúsum. Bændur hafa því í auknum mæli komið á fót svokölluðum heimavinnslum á býlum sínum og opinberir eða einkaaðilar sett á fót vinnslur og atvinnueldhús sem smáframleiðendur hafa aðgang að til að framleiða vörur sínar. Dæmi um það er Matís sem var frumkvöðull á því sviði og kom að uppsetningu matarsmiðja víða um land, Eldstæðið í Kópavogi, Ljómalind í Borgarnesi og Vörusmiðjan BioPol á Skagaströnd, þar sem fjölmargir félagsmenn framleiða sínar vörur. Ávinningurinn af því er mikill, enda kostnaðarsamt að koma upp eigin aðstöðu, kaupa öll tæki og tól sem þarf til framleiðslunnar og standast úttekt opinberra eftirlitsaðila. Þessi valkostur er því oft lykillinn að því að fólk hafi möguleika á að hefja framleiðslu og kanna hvort markaður sé fyrir vöruna. Sívaxandi áhugi og meðvitund Samhliða þessari þróun hefur meðvitund og áhugi almennings á vörum matarfrumkvöðla og að styðja smáframleiðendur með því að leitast eftir að kaupa vörur þeirra aukist. Skilningur á mikilvægi nýsköpunar á sviði matvæla, verðmæti og menningarlegri sérstöðu matarhandverks og eftirspurn eftir hágæða „gourmet“ vörum er jafnframt sívaxandi. Eitt af lykilverkefnum samtakanna er að kynna og þróa nýjar söluleiðir fyrir smáframleiðendur, meðal annars með því að stuðla að því að vörur félagsmanna séu teknar inn í vöruval almennra matvöruverslana, að þeim sé gert hátt undir höfði og gerðar bæði aðgengilegri og aðgreinanlegri viðskiptavinum. Það hefur verið auðsótt enda gera stjórnendur Krónunnar, Samkaupa, Hagkaups og Heimkaupa sér grein fyrir þessari þróun og hafa tekið vel í okkar umleitanir, hver á sinn hátt. Aðilar sem sérhæfa sig í að bjóða og kynna vörur smáframleiðenda og eru með persónuleg tengsl við framleiðendur og þjónustu við viðskiptavini, eins og Frú Lauga, Gott og blessað, Matarbúðin Nándin og sérverslanir hringinn í kringum landið, er svo ómetanlegur valkostur fyrir smáframleiðendur og neytendur. Síðast en ekki síst eru beinar söluleiðir í gegnum eigin verslanir, vefi og samfélagsmiðla framleiðenda – sem og sameiginlega – að verða sífellt aðgengilegri neytendum, að ógleymdum matar­ og sveitarmörkuðunum sem voru upphafið að þessum beinu tengslum framleiðenda og neytenda. Stjórnvöld gera sér einnig grein fyrir þessari þróun og hefur ráðherra málaflokksins sýnt í verki vilja til að styðja við hana og þingmenn beitt sér í málefnum henni tengdri. Þar hefur borið hæst krafan um gerð reglugerðar um heimaslátrun fyrir geit­ og sauðfé sem nú er komin í samráðsgátt og markmiðið að sauðfjár­ og geitabændur geti slátrað heima í haust. Fjölmiðlar hafa að sama skapi haft mikinn áhuga á að fjalla um málefni smáframleiðenda matvæla og gert þeim góð skil. Afturhaldssemi á undanhaldi Greinarhöfundur hefur því haft á orði að hún upplifi sig sem umboðsmann rokkstjarna samtímans. Það eru for­ réttindi að fá að vinna að málefnum sem svo mikill áhugi, jákvæðni og skilningur er á í samfélaginu og svona frjóu og framtakssömu fólki sem brennur fyrir því sem það er að gera. Einstaka afturhaldsseggir reyna þó að tefja og hindra, en sem betur fer eru þeir á undanhaldi. Rifja má upp að þeir sem hafa barist einna mest gegn því að bændur fái að slátra sínu fé í vottuðu heimasláturhúsi, börðust einnig gegn því að bændur gætu sett upp vottaðar heimavinnslur á þeim tíma sem félagið Beint frá býli var stofnað fyrir tæpum hálfum öðrum áratug, með miklum fortölum. Á landinu framleiða á þriðja hundrað ábúendur lögbýla matvæli úr eigin hráefnum og selja beint frá býli. Reynslan hefur sýnt og sannað að þau matvæli eru bæði heilnæm og örugg og jafnan af einstökum gæðum. Framleiðsla þeirra hringinn í kringum landið hefur jafnframt stuðlað að fjölbreyttari matarflóru, byggðafestu og auknum möguleik­ um bænda til að auka tekjur sínar og komast í beint samband við neyt­ endur. Smáframleiðendur í borg og bæjum hafa að sama skapið lífgað upp á matarflóru nærsamfélagsins og landsins alls með hugmynda­ auðgi sinni, metnaði og áhuga á að bjóða og kynna fyrir landsmönnum alls kyns spennandi nýjungar sem fá bragðlaukana til að dansa. Oddný Anna Björnsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda matvæla hægt er að finna út hvað er að skref fyrir skref er einnig aðgengilegt á þýsku, væntanlega verður það líka þýtt yfir á ensku aðeins seinna. Eins og grunnútgáfan er þetta allt afar tímafrekt verkefni en Fóðurblandan, S.A.H./Kjarnafæði, Lely Center Ísland og Kaupfélag Vestur­Húnvetninga hafa styrkt þýðingarnar sérstaklega og auk þess fóðurframleiðendurnir Bergophor frá Þýskalandi og Fallmann frá Austurríki,“ segir Karólína. Grunnur myndbandanna eru upptökur sem Karólína gerði á mismunandi sauðfjárbúum, aðallega á Grænumýri, Halldórsstöðum, Stafni, Steinnesi og Sölvabakka. „Þá fylgir innsýn í orðsins fyllstu merkingu þar sem Axel notar lambalíkön og mjaðmagrind í raunstærð til að útskýra hvað er að gerast inni í kindinni. Einnig koma fram sem ráðgjafar þau Anna Margrét Jónsdóttir, Einar Kári Magnússon, Jón Árni Magnússon, Matthildur Hjálmarsdóttir, Sigursteinn Bjarnason og Þórdís Sigurbjörnsdóttir (í stafrófsröð).“ /smh NÝSKÖPUN&SMÁFRAMLEIÐENDUR MATVÆLA Skjámynd úr ensku útgáfunni „aft- urábak“. Skjámynd úr þýsku útgáfunni „á hvolfi“. Sömu lömbin eftir vel heppnaða burðarhjálp (undan Nikulási frá Brakanda). Bylting í smáframleiðslu matvæla og flóran afar fjölbreytt – Heimavinnsluaðilar og aðrir smáframleiðendur rokkstjörnur samtímans
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.