Bændablaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 35

Bændablaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 35 Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is OKKAR ÆR OG KÝR — STARTARAR OG ALTERNATORAR — FÆRIBÖND RYÐFRÍ STÁLSMÍÐI JÁRN- SMÍÐI fyrir allan matvælaiðnað í öllum stærðum og gerðum Sérsmíðum úr hágæða efnum Hönnum og smíðum eftir þínum óskum. SÉRSMÍÐI OG FÆRI- BÖND PLAST SMÍÐI Fyrir matvæla- iðnaðinn. Hönnun, smíði, uppsetning og þjónusta. Við sérsmíðum lausn sem hentar þér! Hafðu samband í síma 587 1300 Miðhraun 2 • 210 Garðabær • Sími 587 1300 • kapp@kapp.is • www.kapp.is BÆKUR& MENNING Ný bók um nautgriparækt væntanleg Árið 1984 kom síðast út kennslu­ bók í nautgriparækt hér á landi í útgáfu Bændaskólans á Hvanneyri og frá þeim tíma hefur auðvitað ótal margt breyst í nautgriparækt hér á landi. Þó hefur ekki komið út nýtt kennsluefni með beinum hætti innan greinarinnar allan þennan tíma fyrr en nú. Snorri Sigurðsson er ritstjóri bókarinnar og í samtali við Bændablaðið sagði hann að aðdragandinn hafi verið frekar stuttur að gerð þessarar bókar: „Þetta kom nú eiginlega til vegna inniverunnar í sóttkví í Kína þegar ég var eitthvað órólegur einn daginn og fór að leita að efni sem ég skrifaði fyrir kennslubók í nautgriparækt sem átti að koma út fyrir nærri tveimur áratugum en sú bók varð aldrei að veruleika. Mér datt þá einfaldlega í hug að keyra þetta verk í gang og fékk til liðs við mig fjölda vina og kunningja, sem einnig eru með staðgóða þekkingu á búgreininni, og saman fórum við í þetta verðuga verkefni. Þessi bók er því byggð á einstaklingsframtaki og það sem meira er að allir höfundar efnis lögðu til sína vinnu ókeypis, svo bókin gæti orðið að veruleika. Ég sótti svo um styrk hjá Þróunarsjóði nautgriparæktarinnar til uppsetningar, yfirlesturs og prentunar á kennslueintökum sem veitti hann.“ Að sögn Snorra inniheldur bókin 20 kafla um sértæk svið búgreinarinnar og spannar bókin allt fagsvið nautgriparæktarinnar, enda er bókin um 300 blaðsíð- ur. En er þörf á bók í dag þegar allt efni er meira eða minna raf- rænt? „Það er auðvitað þannig í dag að flest allt má lesa núorðið á netinu, sem er auðvitað frábært og þannig efni er vonandi uppfært og nýtist á hverjum tíma. Við búum þó við það á Íslandi að fámennið gerir það að verkum að mikið af þessu faglega efni er ekki skrifað á íslensku þó víða megi finna slíkt líkt og á heimasíðum fagstofnana, í Bændablaðinu ykkar eða rafrænum tímaritum. Það vantaði þó í flóruna heildstæða samantekt um búgrein- ina, líkt og hefur þegar komið út í bæði sauðfjár- og hrossarækt og þessi bók fyllir í það skarð,“ sagði Snorri. Bæði í prentuðu formi og stafrænni útgáfu á vefnum Bókin verður eins og áður segir raf- ræn og hægt að hlaða henni niður af veraldarvefnum en einnig prentuð og þar sem allir höfundar efnis gefa vinnuna við skrifin verður bókin seld á prentkostnaðarverði og án álagningar. Snorri segir að bókin verði að sjálfsögðu prentuð á Íslandi. Kemur út áður en kýrnar fara á beit – En hvenær kemur bókin svo út? „Við sem höfum verið að vinna við nautgriparækt í langan tíma hlökkum alltaf til vorsins og sér- staklega þegar kúnum er sleppt út og ég hef því miðað við að bókin komi út áður en kýrnar fara á beit! Reyndar liggur verðið á henni ekki endanlega fyrir þar sem hugmyndin er nú ekki að prenta mörg eintök og því verður bókin bara seld í forsölu.“ Þegar liggur fyrir hve margir vilja eignast eintak mun verðið liggja fyrir en að sögn Snorra verður kostnaðurinn að hámarki 6.000 kr. með virðisaukaskatti og líklega lægri. Þeir sem hafa áhuga á að eignast prentað eintak skal bent á að eins og áður segir þá verður bókin eingöngu seld í forsölu fram til 15. maí og má panta eintak með því að senda tölvupóst á: snorri. sigurdsson@outlook.com /HKr. Snorri Sigurðsson er nú að leggja lokahönd á gerð nýrrar bókar um nautgriparækt. Forsíða bókar Snorra um nautgriparækt. Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn Ríkiskaupa í síma 530 1400 eða í gegnum netfangið fasteignir@rikiskaup.isBorgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is RÍKISKAUP AUGLÝSA EFTIRFARANDI EIGN TIL SÖLU: HVERABRAUT 8, LAUGARVATNI Ríkiskaup kynna eignina Hverabraut 8, Laugarvatni. Um er að ræða 353 m² einbýli á þremur hæðum ásamt 20,7 m² bílskúr á vinsælum stað við Laugarvatn þar sem stutt er í alla þjónustu. Húsið er teiknað af Gísla Halldórssyni arkitekt. Eignin þarfnast verulegra endurbóta. Nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa: www.rikiskaup.is Verð: 48,5 mkr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.