Bændablaðið - 15.04.2021, Page 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 35
Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is
OKKAR ÆR OG KÝR
— STARTARAR OG ALTERNATORAR —
FÆRIBÖND
RYÐFRÍ
STÁLSMÍÐI
JÁRN-
SMÍÐI
fyrir allan matvælaiðnað í öllum stærðum og gerðum
Sérsmíðum
úr hágæða efnum
Hönnum og
smíðum eftir
þínum
óskum.
SÉRSMÍÐI
OG FÆRI-
BÖND
PLAST
SMÍÐI
Fyrir
matvæla-
iðnaðinn.
Hönnun,
smíði,
uppsetning
og þjónusta.
Við
sérsmíðum
lausn sem
hentar þér!
Hafðu
samband
í síma
587 1300
Miðhraun 2 • 210 Garðabær • Sími 587 1300 • kapp@kapp.is • www.kapp.is
BÆKUR& MENNING
Ný bók um nautgriparækt væntanleg
Árið 1984 kom síðast út kennslu
bók í nautgriparækt hér á
landi í útgáfu Bændaskólans
á Hvanneyri og frá þeim tíma
hefur auðvitað ótal margt
breyst í nautgriparækt hér á
landi. Þó hefur ekki komið út
nýtt kennsluefni með beinum
hætti innan greinarinnar
allan þennan tíma fyrr en nú.
Snorri Sigurðsson er ritstjóri
bókarinnar og í samtali við
Bændablaðið sagði hann að
aðdragandinn hafi verið frekar
stuttur að gerð þessarar bókar:
„Þetta kom nú eiginlega til
vegna inniverunnar í sóttkví í
Kína þegar ég var eitthvað órólegur
einn daginn og fór að leita að efni
sem ég skrifaði fyrir kennslubók í
nautgriparækt sem átti að koma út
fyrir nærri tveimur áratugum en sú
bók varð aldrei að veruleika. Mér
datt þá einfaldlega í hug að keyra
þetta verk í gang og fékk til liðs við
mig fjölda vina og kunningja, sem
einnig eru með staðgóða þekkingu
á búgreininni, og saman fórum við
í þetta verðuga verkefni. Þessi bók
er því byggð á einstaklingsframtaki
og það sem meira er að allir
höfundar efnis lögðu til sína vinnu
ókeypis, svo bókin gæti orðið að
veruleika. Ég sótti svo um styrk hjá
Þróunarsjóði nautgriparæktarinnar
til uppsetningar, yfirlesturs og
prentunar á kennslueintökum sem
veitti hann.“
Að sögn Snorra inniheldur
bókin 20 kafla um sértæk svið
búgreinarinnar og spannar bókin
allt fagsvið nautgriparæktarinnar,
enda er bókin um 300 blaðsíð-
ur. En er þörf á bók í dag þegar
allt efni er meira eða minna raf-
rænt? „Það er auðvitað þannig í
dag að flest allt má lesa núorðið á
netinu, sem er auðvitað frábært og
þannig efni er vonandi uppfært og
nýtist á hverjum tíma. Við búum
þó við það á Íslandi að fámennið
gerir það að verkum að mikið af
þessu faglega efni er ekki skrifað
á íslensku þó víða megi finna slíkt
líkt og á heimasíðum fagstofnana, í
Bændablaðinu ykkar eða rafrænum
tímaritum. Það vantaði þó í flóruna
heildstæða samantekt um búgrein-
ina, líkt og hefur þegar komið út í
bæði sauðfjár- og hrossarækt og
þessi bók fyllir í það skarð,“ sagði
Snorri.
Bæði í prentuðu formi og
stafrænni útgáfu á vefnum
Bókin verður eins og áður segir raf-
ræn og hægt að hlaða henni niður af
veraldarvefnum en einnig prentuð
og þar sem allir höfundar efnis
gefa vinnuna við skrifin verður
bókin seld á prentkostnaðarverði
og án álagningar. Snorri segir að
bókin verði að sjálfsögðu prentuð
á Íslandi.
Kemur út áður en
kýrnar fara á beit
– En hvenær kemur bókin svo út?
„Við sem höfum verið að vinna
við nautgriparækt í langan tíma
hlökkum alltaf til vorsins og sér-
staklega þegar kúnum er sleppt út
og ég hef því miðað við að bókin
komi út áður en kýrnar fara á beit!
Reyndar liggur verðið á henni ekki
endanlega fyrir þar sem hugmyndin
er nú ekki að prenta mörg eintök
og því verður bókin bara seld í
forsölu.“
Þegar liggur fyrir hve margir
vilja eignast eintak mun verðið
liggja fyrir en að sögn Snorra
verður kostnaðurinn að hámarki
6.000 kr. með virðisaukaskatti og
líklega lægri. Þeir sem hafa áhuga á
að eignast prentað eintak skal bent
á að eins og áður segir þá verður
bókin eingöngu seld í forsölu fram
til 15. maí og má panta eintak með
því að senda tölvupóst á: snorri.
sigurdsson@outlook.com /HKr.
Snorri Sigurðsson er nú að leggja lokahönd á gerð nýrrar bókar um
nautgriparækt.
Forsíða bókar Snorra um nautgriparækt.
Allar nánari upplýsingar
veita starfsmenn
Ríkiskaupa í síma 530 1400
eða í gegnum netfangið
fasteignir@rikiskaup.isBorgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is
RÍKISKAUP
AUGLÝSA EFTIRFARANDI EIGN TIL SÖLU:
HVERABRAUT 8, LAUGARVATNI
Ríkiskaup kynna eignina Hverabraut 8, Laugarvatni. Um er að
ræða 353 m² einbýli á þremur hæðum ásamt 20,7 m² bílskúr á
vinsælum stað við Laugarvatn þar sem stutt er í alla þjónustu.
Húsið er teiknað af Gísla Halldórssyni arkitekt. Eignin þarfnast
verulegra endurbóta.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa: www.rikiskaup.is
Verð: 48,5 mkr.