Bændablaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202128 Tónlistarmaðurinn Sigurður Björnsson betur þekktur sem Siggi Björns frá Flateyri, er að koma með nýjan 12 laga geisladisk á markaðinn sem heitir Roll On og er hann væntanlegur úr framleiðslu í næstu viku. Þess má geta að Siggi og sambýliskona hans, Franziska Günther, höfðu á stefnuskránni að koma til Íslands í maí og fyrirhuga að halda eina 14 tónleika víða um land og þá síðustu 5. júní. Óljóst er hvort COVID-faraldurinn muni raska því plani. Að því búnu eru á dagskránni fjölmargir tónleikar á eynni Bornholm í Danmörku ef COVID leyfir. Siggi Björns á langan feril að baki sem trúbador, en bakgrunnur hans liggur í lífinu í fiski, beitningu og sjómennsku á Flateyri. Það er því ekki skrítið að blús og skemmtilegir slagarar séu mjög áberandi í hans tónlist. Hefur gefið út fjölda geisladiska Hann hefur gert fjölmarga geisladiska sem notið hafa mikilli vinsælda, ekki síst meðal Vestfirðinga. Hann hefur líka troðið upp með öðrum, eins og hljómsveitinni Æfingu frá Flateyri, sem gaf út bráðskemmtilegan disk 2013 um 45 ára sögu sína. Hljómsveitin hélt svo m.a. afar vel heppnaða tónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði á lokadaginn 11. maí (vertíðarlok) 2019. Á Bornholm þekkja allir Íslendinginn Sigga Björns Siggi hefur í fjölda ára spilað í Þýskalandi og Danmörku við miklar vinsældir ásamt Franzisku og ýmsum öðrum tón­ listar mönnum, en þau eru búsett í Berlín ásamt Magnúsi Björnssyni, 13 ára syni Sigga. Sem dæmi má nefna að hann hefur í fjölda ára verið fastur gestur á eyjunni Bornholm í Danmörku í júní á hverju ári þar sem hann hefur gjarnan troðið upp á hinum vinsæla sjávarréttastað Bakkarøgeriet á Østre Sømarken. Er Siggi meira að segja kominn í ferðabæklinga fyrir Bornholm yfir það sem fólk verði að upplifa (must see) þegar það heimsækir eyjuna. Siggi kom fyrst til Bornholm til að spila árið 1990 og er síðan búinn að spila þar á hverju sumri, eða í 30 ár. Þrátt fyrir COVID­19 faraldurinn spilaði hann líka á Bornholm sumarið 2020, en heldur minna en venjulega þar sem aðgengi gesta var takmarkað. Hefur hann svo sannarlega haft lag á að koma Dönum og gestum þeirra í sannkallað hörkustuð ár eftir ár, eins og sjá má á fjölmörg­ um myndböndum á YouTube. Þar þekkja allir þennan káta Íslending. Í því ljósi er óneitanlega dálítið umhugsunarvert að Siggi skuli ekki hafa fengið meiri spilun á íslenskum útvarpsstöðvum í gegnum tíðina en raun ber vitni. Siggi segir að þau Franziska hafi ekkert verið að koma fram síðan í október. Þau settu þó saman þriggja laga sett fyrir hátíðina Stútung 2021 á Flateyri nú í vetur ásamt Magnúsi, sem spilar með þeim í tveim lögum. Af augljósum ástæð­ um út af COVID­19 faraldrinum var hátíðin send út á netinu að þessu sinni. Vegna forvitni og eftirspurnar þeirra sem ekki sáu þessa frábæru útsendingu frá Flateyri, ákváðu þau að setja sinn hluta af hátíðinni á netið á siggi­bjorns.com. Þó heims­ faraldur hafi komið í veg fyrir mikla spilamennsku, þá lætur Siggi ekki deigan síga. Tóku upp 12 laga plötu „Ég átti nokkur lög á lager og svo sömdum við Franziska nokkur í viðbót og tókum upp tólf af þessum lögum hér heima hjá mér. Ellefu af þessum lögum eru bara ég og gítarinn, reyndar spilar Magnús Björnsson, 13 ára sonur minn, á slagverk í þremur lögum og Franziska syngur með í „Lost At Sea“. Dóri Páls Fjallabróðir fékk eitt lagið, „Every Moment Has A Meaning“, til meðferðar og það endaði í fullri útsetningu þar sem hann spilar öll hljóðfæri nema trommur, það gerði Óskar Þormarsson. Það lag er ég búinn að senda inn í tölvuna hjá RÚV, veit reyndar ekki hvort þeir hafa spila það enn þá. Diskinn fæ ég í hendurnar í næstu viku, sennilega þann 19. apríl, en hann er kom­ inn inn á alla netmiðla, Spotify, Napster o.s.frv. auk þess að hann er á heimasíðunni minni og hægt að sækja hann þangað. D i s k u r i n n heitir „Roll On“. Það er lag sem ég gerði við texta eftir danskan vin minn, Esben „ L a n g k n i v “ Bøgh, sem hann samdi eitt sinn sem við vorum á ferðinni á Íslandi. Hann hafði keypt dansk/ íslenska orðabók þar sem maður gat lært stuttar og gagnlegar setningar á íslensku. Ein sú fyrsta var: „Hvar er lestarstöðin?“ Sem Dana fannst honum oft langt á milli bæja, sérstaklega á Vestfjörðum, fjöllin og landslagið bauð oft upp á að hugmyndaflugið færi á ferð, ekki alltaf ljóst hvort maður sé að koma eða fara, fannst honum.“ Stapadraugurinn „Við fórum að spá í alls konar aðrar víddir og ég sagði honum m.a. frá Stapadraugnum á Reykjanesi og að ég hafi ekki heyrt neitt nýtt um hann í mörg ár, kannski væri umferðin of hraðfara í dag, en hvað um það, lagið varð til.“ Sjóskaðar uppspretta lagasmíða „Lagið „Lost At Sea“ sömdum við í febrúar eftir að hafa séð tón­ leika á netinu frá Hull, þar sem rifjað var upp þegar þrír togarar frá Hull fórust á nokkrum dögum við Ísland 1968. Þar var fókusinn á konurnar í Hull „The Headscarfs“ sem mótmæltu aðstæðum sjómanna og öryggismálum um borð breskra togara. Þær náðu að breyta mörgu til hins betra. Þó lagið hafi útgangspunkt í þessu, þá er það fyrst og fremst mín TÓNLIST&MENNING Siggi Björns fyrirhugar að halda nokkra tónleika á Íslandi í maí og júní ásamt sambýliskonu sinni, Franzisku Günther: Sonur Flateyrar væntanlegur frá Berlín með glænýja hljómplötu í farteskinu Hörður K ist ánsson hk@bondi.is Tónlistarmaðurinn Siggi Björns frá Flateyri, sem búsettur er í Berlín, er að koma með nýjan 12 laga geisladisk á markaðinn sem heitir Roll On. Siggi Björns, Franziska Günther og sonurinn Magnús Björnsson heima í stofu í Berlín að spila fyrir Stútung 2021, þorrablót Flateyringa, í gegnum netið. Siggi að spila fyrir gesti á Bakkarøgeriet á Østre Sømarken á Bornholm í Danmörku. Alvopnaður og tilbúinn í slaginn á eyjunni Bornholm.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.