Bændablaðið - 15.04.2021, Síða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202128
Tónlistarmaðurinn
Sigurður Björnsson
betur þekktur sem
Siggi Björns frá Flateyri, er að
koma með nýjan 12 laga geisladisk
á markaðinn sem heitir Roll
On og er hann væntanlegur úr
framleiðslu í næstu viku. Þess
má geta að Siggi og sambýliskona
hans, Franziska Günther, höfðu á
stefnuskránni að koma til Íslands
í maí og fyrirhuga að halda eina
14 tónleika víða um land og þá
síðustu 5. júní. Óljóst er hvort
COVID-faraldurinn muni raska
því plani. Að því búnu eru á
dagskránni fjölmargir tónleikar
á eynni Bornholm í Danmörku ef
COVID leyfir.
Siggi Björns á langan feril að
baki sem trúbador, en bakgrunnur
hans liggur í lífinu í fiski, beitningu
og sjómennsku á Flateyri. Það er því
ekki skrítið að blús og skemmtilegir
slagarar séu mjög áberandi í hans
tónlist.
Hefur gefið út fjölda geisladiska
Hann hefur gert fjölmarga geisladiska
sem notið hafa mikilli vinsælda,
ekki síst meðal Vestfirðinga.
Hann hefur líka troðið upp með
öðrum, eins og hljómsveitinni
Æfingu frá Flateyri, sem gaf út
bráðskemmtilegan disk 2013 um
45 ára sögu sína. Hljómsveitin hélt
svo m.a. afar vel heppnaða tónleika
í Bæjarbíói í Hafnarfirði
á lokadaginn 11. maí
(vertíðarlok) 2019.
Á Bornholm þekkja
allir Íslendinginn
Sigga Björns
Siggi hefur í fjölda ára
spilað í Þýskalandi og
Danmörku við miklar
vinsældir ásamt Franzisku
og ýmsum öðrum tón
listar mönnum, en þau
eru búsett í Berlín ásamt
Magnúsi Björnssyni, 13
ára syni Sigga. Sem dæmi
má nefna að hann hefur
í fjölda ára verið fastur
gestur á eyjunni Bornholm
í Danmörku í júní á hverju ári þar
sem hann hefur gjarnan troðið upp
á hinum vinsæla sjávarréttastað
Bakkarøgeriet á Østre Sømarken.
Er Siggi meira að segja kominn í
ferðabæklinga fyrir Bornholm yfir
það sem fólk verði að upplifa (must
see) þegar það heimsækir eyjuna.
Siggi kom fyrst
til Bornholm til að spila árið 1990
og er síðan búinn að spila þar á
hverju sumri, eða í 30 ár. Þrátt fyrir
COVID19 faraldurinn spilaði hann
líka á Bornholm sumarið 2020, en
heldur minna en venjulega þar sem
aðgengi gesta var takmarkað.
Hefur hann svo sannarlega haft
lag á að koma Dönum og gestum
þeirra í sannkallað hörkustuð ár
eftir ár, eins og sjá má á fjölmörg
um myndböndum á YouTube. Þar
þekkja allir þennan káta Íslending.
Í því ljósi er óneitanlega dálítið
umhugsunarvert að Siggi skuli ekki
hafa fengið meiri spilun á íslenskum
útvarpsstöðvum í gegnum tíðina en
raun ber vitni.
Siggi segir að þau Franziska hafi
ekkert verið að koma fram síðan í
október. Þau settu þó saman þriggja
laga sett fyrir hátíðina Stútung
2021 á Flateyri nú í vetur ásamt
Magnúsi, sem spilar með þeim í
tveim lögum. Af augljósum ástæð
um út af COVID19 faraldrinum var
hátíðin send út á netinu að þessu
sinni. Vegna forvitni og eftirspurnar
þeirra sem ekki sáu þessa frábæru
útsendingu frá Flateyri, ákváðu þau
að setja sinn hluta af hátíðinni á
netið á siggibjorns.com. Þó heims
faraldur hafi komið í veg fyrir mikla
spilamennsku, þá lætur Siggi ekki
deigan síga.
Tóku upp 12 laga plötu
„Ég átti nokkur lög á lager og svo
sömdum við Franziska nokkur í
viðbót og tókum upp tólf af þessum
lögum hér heima hjá mér. Ellefu
af þessum lögum eru bara ég og
gítarinn, reyndar spilar Magnús
Björnsson, 13 ára sonur minn,
á slagverk í þremur lögum og
Franziska syngur með í „Lost
At Sea“. Dóri Páls Fjallabróðir
fékk eitt lagið, „Every Moment
Has A Meaning“, til meðferðar
og það endaði í fullri útsetningu
þar sem hann spilar öll hljóðfæri
nema trommur, það gerði Óskar
Þormarsson. Það lag er ég búinn
að senda inn í tölvuna hjá RÚV,
veit reyndar ekki hvort þeir hafa
spila það enn þá. Diskinn fæ ég í
hendurnar í næstu viku, sennilega
þann 19. apríl, en hann er kom
inn inn á alla netmiðla, Spotify,
Napster o.s.frv. auk þess að hann
er á heimasíðunni minni og hægt
að sækja hann þangað.
D i s k u r i n n
heitir „Roll On“.
Það er lag sem ég
gerði við texta
eftir danskan
vin minn, Esben
„ L a n g k n i v “
Bøgh, sem hann
samdi eitt sinn
sem við vorum
á ferðinni á
Íslandi. Hann hafði keypt dansk/
íslenska orðabók þar sem maður gat
lært stuttar og gagnlegar setningar
á íslensku. Ein sú fyrsta var: „Hvar
er lestarstöðin?“
Sem Dana fannst honum oft
langt á milli bæja, sérstaklega á
Vestfjörðum, fjöllin og landslagið
bauð oft upp á að hugmyndaflugið
færi á ferð, ekki alltaf ljóst hvort
maður sé að koma eða fara, fannst
honum.“
Stapadraugurinn
„Við fórum að spá í alls konar aðrar
víddir og ég sagði honum m.a. frá
Stapadraugnum á Reykjanesi og að
ég hafi ekki heyrt neitt nýtt um hann
í mörg ár, kannski væri umferðin
of hraðfara í dag, en hvað um það,
lagið varð til.“
Sjóskaðar uppspretta lagasmíða
„Lagið „Lost At Sea“ sömdum
við í febrúar eftir að hafa séð tón
leika á netinu frá Hull, þar sem
rifjað var upp þegar þrír togarar
frá Hull fórust á nokkrum dögum
við Ísland 1968. Þar var fókusinn á
konurnar í Hull „The Headscarfs“
sem mótmæltu aðstæðum sjómanna
og öryggismálum um borð breskra
togara. Þær náðu að breyta mörgu
til hins betra.
Þó lagið hafi útgangspunkt í
þessu, þá er það fyrst og fremst mín
TÓNLIST&MENNING
Siggi Björns fyrirhugar að halda nokkra tónleika á Íslandi í maí og júní ásamt sambýliskonu sinni, Franzisku Günther:
Sonur Flateyrar væntanlegur frá Berlín
með glænýja hljómplötu í farteskinu
Hörður K ist ánsson
hk@bondi.is
Tónlistarmaðurinn Siggi Björns frá Flateyri, sem búsettur er í Berlín, er að
koma með nýjan 12 laga geisladisk á markaðinn sem heitir Roll On.
Siggi Björns, Franziska Günther og sonurinn Magnús Björnsson heima í stofu í Berlín að spila fyrir Stútung 2021,
þorrablót Flateyringa, í gegnum netið.
Siggi að spila fyrir gesti á Bakkarøgeriet á Østre Sømarken á Bornholm í
Danmörku.
Alvopnaður og tilbúinn í slaginn á
eyjunni Bornholm.