Bændablaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 LÍF&STARF Svínaræktin á Íslandi hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum árum: Salan aldrei meiri en afkoman lök – Formaður Félags svínabænda telur að greinin muni þó vaxa og dafna í framtíðinni Samkvæmt tölum úr atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytinu um framleiðslu og sölu á kjöti á síðasta ári, seldist svínakjöt meira en kindakjöt frá afurðastöðvum – en það er fyrsta skipti sem slíkt gerist. Enn er alifuglakjöt afger- andi mest selda tegundin á Íslandi þótt salan hafi dregist saman um 7,7 prósent á síðasta ári frá 2019. Svínakjötssala jókst um 4,4 pró- sent frá 2019 og er í raun eina kjöttegundin þar sem sala eykst. Ingvi Stefánsson, formaður Félags svínabænda, telur að greinin eigi enn nokkuð inni og segir þróunina hér vera í takti við nágrannaþjóðir okkar. Svínaræktin á Íslandi hefur tekið miklum stakkaskiptum á undanförn­ um árum; mikil hagræðing hefur orðið með gríðarlegri fækkun búa frá 1990 og árið 2014 tóku gildi reglur um hertar aðbúnaðarkröfur á svínabúum sem svínabændur hafa unnið að á undanförnum árum með tilheyrandi breytingum á húsakosti. Ímynd greinarinnar skaddaðist um tíma eftir útkomu eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar í mars 2015 sem afhjúpaði slæman aðbúnað á gyltu­ búum í einhverjum tilvikum. Mikið og gott átak í aðbúnaðarmálum „Ég er ekki dómbær á það hvaða augum neytendur líta okkur í dag en get þó fullyrt að mikið og gott átak hefur verið unnið bæði í að­ búnaðarmálum og velferðarmálum inni á búunum, eftirlitsskýrslur Matvælastofnunar hafa einnig sýnt það. Þannig tel ég greinina standa mun sterkari á eftir,“ segir Ingvi, spurður um hvernig svínabændur hafi komist frá þessari neikvæðu umræðu. Hann segir að veigamestu aðbúnaðarbreytingarnar snúist um lausagöngu gyltna og stærri stíur. „Ég vil leyfa mér að segja að þetta séu lang umfangsmestu breytingar sem greinin hefur nokkurn tíma staðið frammi fyrir. Til að setja þetta í samhengi hef ég stundum sagt að þetta væri svipað og að útgerðinni yrði gert að fjá­ festa fyrir ríflega ársveltu og eftir þær breytingar myndu afköstin minnka um 30 prósent, bara svona til að gefa einhverja innsýn inn í stærðirnar. Greinin hefur frest að hámarki út árið 2024 til að taka upp lausagöngu í gotstíum og breyta eldisgrísadeildum. Bændum var gefinn mun skemmri tími til að breyta geldstöðuhúsum, eða meðgöngudeildunum, og það var í raun ótrúlegt hvað það verk­ efni lukkaðist vel miðað við tímara­ mmann sem var gefinn,“ segir Ingvi. Mikil fækkun búa Í dag eru einungis ríflega 20 svínabú eftir á landinu, sem er að sögn Ingva afleiðing mikillar hag­ ræðingar greinarinnar. „Það hefur verið svipuð þróun hjá okkur og í öðrum búgreinum, það hefur verið mikil hagræðingarkrafa í okkar búgrein. Þegar mest var, rétt fyrir 1990, voru vel á annað hundrað svínabú á landinu og þá mörg af þeim með blandaðan búrekstur. Um aldamótin voru svínabúin um 40 en í dag er stunduð svínarækt á ríf­ lega 20 lögbýlum. Þrátt fyrir þessa fækkun svínabúa hefur framleiðsla og neysla verið að aukast sífellt,“ segir hann. Fyrir nokkrum árum setti Svína­ ræktar félag Íslands, sem var eldra heiti Félags svínabænda, af stað til­ raunaverkefni um vistvæna grísi þar sem markmiðið var meðal annars að gera starfsemi greinarinnar meira sýnilega í sveitum landsins á opnum útisvæðum. Allnokkrir bændur gripu tækifærið til að prófa slíkt grísaeldi þar sem félagið lagði grísina til. Þegar Ingvi er spurður um hvort ekki hafi verið grundvöllur fyrir framhald á slíku verkefni segir hann að svo hafi ekki verið. „Þetta var tilraun þar sem við auglýstum eftir aðilum til að rækta grísi úti. Eðli málsins samkvæmt getur það verið ansi snúið hér á Íslandi. Þannig náði þessi tilraun aldrei góðu flugi. Ég er samt bjartsýnn á að þetta sé eitthvað sem komi til með að aukast aftur,“ segir hann. Óhressir með leikreglurnar Óhætt er að segja að íslenskir svínabændur hafi á stundum verið í markaðslegum ólgusjó, þar sem hörð samkeppni ríkir innanlands og við innflutt kjöt; í tolla­ og stuðn­ ingskerfi sem þeim finnst harla óhagstætt. „Já, það er rétt, við erum verulega óhressir með þær leikreglur sem pólitíkin hefur verið að setja okkur á síðustu misserum og ekki hægt að tala um annað en að þar sé mikill tvískinnungur í gangi. Þá á ég við að á sama tíma og okkur er gert að uppfylla eitt metnaðarfyllsta regluverk í heimi þegar kemur að dýravelferð er sífellt verið að rýra tollverndina. Að sjálfsögðu viljum við sífellt vera á tánum þegar kemur að dýra­ velferð. En það blasir jafnframt við að við getum ekki keppt við þjóðir þar sem mun minni kröfur eru gerð­ ar í dýravelferðarmálum og sýkla­ lyfjanotkun er tugföld í samanburði við okkur. Það er alveg nógu krefj­ andi að stunda það sem ESB skil­ greinir sem heimskautalandbúnað í landi með mjög mikinn kaupmátt án þess að þurfa einnig að takast á við síminnkandi tollvernd og skakka samkeppni. Síðasta árið lakasta árið afkomulega Ingvi segir fögnuð svínabænda vera hófstilltan vegna þeirrar stöðu að vera komnir fram úr sauðfjár­ bændum í sölu, því ýmsar blikur séu þrátt fyrir allt á lofti fyrir afkomu greinarinnar. „Staðan hér á landi í lamba­ kjötssölu hefur auðvitað verið alveg einstök og því tóku margir eftir því þegar við tókum fram úr. Það var ekki spurning um hvort heldur hvenær það myndi gerast. Þetta er bara þróunin og ég tel að hún muni halda áfram. Ég tel reyndar að svínakjötið eigi enn talsvert inni og samanburður við nágrannaþjóðir styður við það. Verkefnið fram undan hjá okkur hlýtur að vera að auka hlutdeild innlendu framleiðslunnar á kostn­ að innflutnings. Áhrifin af COVID hafa helst verið þau að fóður hefur hækkað umtalsvert, auk þess sem verð til bænda hefur einnig lækk­ að. Þannig reikna ég með að árið 2020 verði lakasta árið afkomu­ lega séð í ansi langan tíma.“ Aukin innlend fæðuöflun Ingvi telur að þrátt fyrir allt sé margt sem bendi til að greinin eigi eftir að vaxa og dafna á komandi árum. „Rökin fyrir því eru helst þau að við erum að framleiða heil­ næma og góða vöru, sjúkdóma­ staðan er einstök og við erum lausir við ýmsar pestir sem herja á kollega okkar til dæmis í Evrópu. Í mínum huga eru tvö lykilmál fram undan til þess að greinin geti þrif­ ist áfram og dafnað. Annars vegar er það aukin innlend fæðuöflun. Við sem þjóð og eyríki norður í Atlantshafi verðum að fara að taka miklu stærri skref í að auka fæðu­ öryggi, einn liðurinn í því er aukin kornrækt. Við verðum líka að horf­ ast í augu við kolefnismálin í þessu samhengi og þar sé ég miklu meira af tækifærum heldur en ógnunum fyrir íslenskan landbúnað. Hitt málið sem ég vil nefna er blessuð tollverndin. Ég hef aldrei skilið af hverju bændur eru svona feimnir við að setja hana á oddinn og ræða opinskátt um tilgang hennar, bæði við pólitík­ ina og neytendur. Ef við meinum eitthvað með því að stunda öfl­ ugan landbúnað verðum við að hafa tollvernd, svo einfalt er það. Hvernig er hægt að slá því upp sem einhverri frétt að matvælaverð hér sé með því hæsta í heimi, eins og ítrekað er gert; ég bara spyr: hver er fréttin? Nú er vitað að verðlag í hverju landi ákvarðast út frá kaup­ mætti. Þannig birti Viðskiptaráð skýrslu í lok janúar síðastliðnum sem sýndi sæti Íslands í kaupmætti eftir mismunandi ráðstöfunar­ flokkum til samanburðar við 33 ríki ESB. Ísland raðar sér í 2. sæti þegar kemur að kaupmætti fyrir mat­ og drykkjarvörur. Á sama tíma erum við einungis í fjórða sæti þegar kemur að fatnaði og skóm. Áhugaverður samanburður, sérstaklega þegar haft er í huga að engir tollar eru á fatnaði og skóm. Þannig sjáum við að mýtan um hátt matvælaverð á Íslandi á sér ekki stoð í raunveruleikanum. Ég tel að þarna fari hagsmunir bænda og neytenda til lengri tíma saman. Innlend framleiðsla á að fá samkeppni frá innflutningi en hún þarf að vera sanngjörn. Ef of mikið er gefið eftir í tollverndinni er hættan sú að innlenda fram­ leiðslan minnki mjög mikið og jafnvel hverfi. Varla geta það verið hagsmunir neytenda til lengri tíma litið að stóla á örlæti innflytjenda og því að þeir skili evrópsku mat­ vælaverði hingað upp á klakann.“ /smh Ingvi Stefánsson, svínabóndi á Teigi og formaður Félags svínabænda, hér á Búnaðarþingi 2021. Mynd / HKr. Þrátt fyrir versta ár svínabænda afkomulega á síðasta ári er Ingvi bjartsýnn. LAMBHELDU HLIÐGRINDURNAR Þessar hliðgrindur hafa slegið í gegn um land allt. Lambheldar, léttar og auðveldar í uppsetningu. Breidd 4,20 m, hæð 1,10 m. Möskvastærð 10x15. Verð á grind kr. 26.900 stk. auk vsk. Ef keypt eru 2 til 4 stk., verð kr 24.900 stk. auk vsk. Ef keyptar eru 5 eða fleiri, verð kr. 19.900 stk. auk vsk. Til afhendingar á Hvolsvelli eða í Sundahöfn án aukakostnaðar, en sent hvert á land sem er. Pantanir og upplýsingar í símum 669 1336 og 899 1776. Meira fyrir aurinn L mbheldu hliðgrin urnar Þessar hliðgrindur hafa slegið í gegn um land allt. Lambheldar, léttar og auðveldar í uppsetningu. Breidd 4.20 m, hæð 1.10 m. Möskvastærð 10x15. Verð á grind kr. 24.900 stk. auk vsk. Ef keypt eru 2 til 4 stk., verð kr. 22.900 stk. auk vsk. Ef keyptar eru 5 eða fleiri, verð kr. 19.900 stk. auk vsk. Til afhendingar á Hvolsvelli eða í Sundahöfn án aukakostnaðar en sent hvert á land sem er. Pantanir og upplýsingar í símum 899 1776 og 669 336.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.