Bændablaðið - 15.04.2021, Page 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021
LÍF&STARF
Svínaræktin á Íslandi hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum árum:
Salan aldrei meiri en afkoman lök
– Formaður Félags svínabænda telur að greinin muni þó vaxa og dafna í framtíðinni
Samkvæmt tölum úr atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytinu
um framleiðslu og sölu á kjöti á
síðasta ári, seldist svínakjöt meira
en kindakjöt frá afurðastöðvum
– en það er fyrsta skipti sem slíkt
gerist. Enn er alifuglakjöt afger-
andi mest selda tegundin á Íslandi
þótt salan hafi dregist saman um
7,7 prósent á síðasta ári frá 2019.
Svínakjötssala jókst um 4,4 pró-
sent frá 2019 og er í raun eina
kjöttegundin þar sem sala eykst.
Ingvi Stefánsson, formaður Félags
svínabænda, telur að greinin eigi
enn nokkuð inni og segir þróunina
hér vera í takti við nágrannaþjóðir
okkar.
Svínaræktin á Íslandi hefur tekið
miklum stakkaskiptum á undanförn
um árum; mikil hagræðing hefur
orðið með gríðarlegri fækkun búa
frá 1990 og árið 2014 tóku gildi
reglur um hertar aðbúnaðarkröfur á
svínabúum sem svínabændur hafa
unnið að á undanförnum árum með
tilheyrandi breytingum á húsakosti.
Ímynd greinarinnar skaddaðist um
tíma eftir útkomu eftirlitsskýrslu
Matvælastofnunar í mars 2015 sem
afhjúpaði slæman aðbúnað á gyltu
búum í einhverjum tilvikum.
Mikið og gott átak
í aðbúnaðarmálum
„Ég er ekki dómbær á það hvaða
augum neytendur líta okkur í dag
en get þó fullyrt að mikið og gott
átak hefur verið unnið bæði í að
búnaðarmálum og velferðarmálum
inni á búunum, eftirlitsskýrslur
Matvælastofnunar hafa einnig sýnt
það. Þannig tel ég greinina standa
mun sterkari á eftir,“ segir Ingvi,
spurður um hvernig svínabændur
hafi komist frá þessari neikvæðu
umræðu.
Hann segir að veigamestu
aðbúnaðarbreytingarnar snúist
um lausagöngu gyltna og stærri
stíur. „Ég vil leyfa mér að segja
að þetta séu lang umfangsmestu
breytingar sem greinin hefur
nokkurn tíma staðið frammi fyrir.
Til að setja þetta í samhengi hef ég
stundum sagt að þetta væri svipað
og að útgerðinni yrði gert að fjá
festa fyrir ríflega ársveltu og eftir
þær breytingar myndu afköstin
minnka um 30 prósent, bara svona
til að gefa einhverja innsýn inn í
stærðirnar. Greinin hefur frest að
hámarki út árið 2024 til að taka upp
lausagöngu í gotstíum og breyta
eldisgrísadeildum.
Bændum var gefinn mun skemmri
tími til að breyta geldstöðuhúsum,
eða meðgöngudeildunum, og það
var í raun ótrúlegt hvað það verk
efni lukkaðist vel miðað við tímara
mmann sem var gefinn,“ segir Ingvi.
Mikil fækkun búa
Í dag eru einungis ríflega 20
svínabú eftir á landinu, sem er að
sögn Ingva afleiðing mikillar hag
ræðingar greinarinnar. „Það hefur
verið svipuð þróun hjá okkur og í
öðrum búgreinum, það hefur verið
mikil hagræðingarkrafa í okkar
búgrein. Þegar mest var, rétt fyrir
1990, voru vel á annað hundrað
svínabú á landinu og þá mörg af
þeim með blandaðan búrekstur. Um
aldamótin voru svínabúin um 40
en í dag er stunduð svínarækt á ríf
lega 20 lögbýlum. Þrátt fyrir þessa
fækkun svínabúa hefur framleiðsla
og neysla verið að aukast sífellt,“
segir hann.
Fyrir nokkrum árum setti Svína
ræktar félag Íslands, sem var eldra
heiti Félags svínabænda, af stað til
raunaverkefni um vistvæna grísi þar
sem markmiðið var meðal annars að
gera starfsemi greinarinnar meira
sýnilega í sveitum landsins á opnum
útisvæðum. Allnokkrir bændur gripu
tækifærið til að prófa slíkt grísaeldi
þar sem félagið lagði grísina til.
Þegar Ingvi er spurður um hvort
ekki hafi verið grundvöllur fyrir
framhald á slíku verkefni segir hann
að svo hafi ekki verið. „Þetta var
tilraun þar sem við auglýstum eftir
aðilum til að rækta grísi úti. Eðli
málsins samkvæmt getur það verið
ansi snúið hér á Íslandi. Þannig náði
þessi tilraun aldrei góðu flugi. Ég er
samt bjartsýnn á að þetta sé eitthvað
sem komi til með að aukast aftur,“
segir hann.
Óhressir með leikreglurnar
Óhætt er að segja að íslenskir
svínabændur hafi á stundum verið
í markaðslegum ólgusjó, þar sem
hörð samkeppni ríkir innanlands og
við innflutt kjöt; í tolla og stuðn
ingskerfi sem þeim finnst harla
óhagstætt. „Já, það er rétt, við erum
verulega óhressir með þær leikreglur
sem pólitíkin hefur verið að setja
okkur á síðustu misserum og ekki
hægt að tala um annað en að þar sé
mikill tvískinnungur í gangi. Þá á
ég við að á sama tíma og okkur er
gert að uppfylla eitt metnaðarfyllsta
regluverk í heimi þegar kemur að
dýravelferð er sífellt verið að rýra
tollverndina.
Að sjálfsögðu viljum við sífellt
vera á tánum þegar kemur að dýra
velferð. En það blasir jafnframt við
að við getum ekki keppt við þjóðir
þar sem mun minni kröfur eru gerð
ar í dýravelferðarmálum og sýkla
lyfjanotkun er tugföld í samanburði
við okkur. Það er alveg nógu krefj
andi að stunda það sem ESB skil
greinir sem heimskautalandbúnað
í landi með mjög mikinn kaupmátt
án þess að þurfa einnig að takast á
við síminnkandi tollvernd og skakka
samkeppni.
Síðasta árið lakasta
árið afkomulega
Ingvi segir fögnuð svínabænda
vera hófstilltan vegna þeirrar stöðu
að vera komnir fram úr sauðfjár
bændum í sölu, því ýmsar blikur séu
þrátt fyrir allt á lofti fyrir afkomu
greinarinnar.
„Staðan hér á landi í lamba
kjötssölu hefur auðvitað verið
alveg einstök og því tóku margir
eftir því þegar við tókum fram
úr. Það var ekki spurning um
hvort heldur hvenær það myndi
gerast. Þetta er bara þróunin og
ég tel að hún muni halda áfram.
Ég tel reyndar að svínakjötið eigi
enn talsvert inni og samanburður
við nágrannaþjóðir styður við það.
Verkefnið fram undan hjá okkur
hlýtur að vera að auka hlutdeild
innlendu framleiðslunnar á kostn
að innflutnings. Áhrifin af COVID
hafa helst verið þau að fóður hefur
hækkað umtalsvert, auk þess sem
verð til bænda hefur einnig lækk
að. Þannig reikna ég með að árið
2020 verði lakasta árið afkomu
lega séð í ansi langan tíma.“
Aukin innlend fæðuöflun
Ingvi telur að þrátt fyrir allt sé
margt sem bendi til að greinin eigi
eftir að vaxa og dafna á komandi
árum. „Rökin fyrir því eru helst
þau að við erum að framleiða heil
næma og góða vöru, sjúkdóma
staðan er einstök og við erum
lausir við ýmsar pestir sem herja á
kollega okkar til dæmis í Evrópu. Í
mínum huga eru tvö lykilmál fram
undan til þess að greinin geti þrif
ist áfram og dafnað. Annars vegar
er það aukin innlend fæðuöflun.
Við sem þjóð og eyríki norður í
Atlantshafi verðum að fara að taka
miklu stærri skref í að auka fæðu
öryggi, einn liðurinn í því er aukin
kornrækt. Við verðum líka að horf
ast í augu við kolefnismálin í þessu
samhengi og þar sé ég miklu meira
af tækifærum heldur en ógnunum
fyrir íslenskan landbúnað.
Hitt málið sem ég vil nefna
er blessuð tollverndin. Ég hef
aldrei skilið af hverju bændur eru
svona feimnir við að setja hana
á oddinn og ræða opinskátt um
tilgang hennar, bæði við pólitík
ina og neytendur. Ef við meinum
eitthvað með því að stunda öfl
ugan landbúnað verðum við að
hafa tollvernd, svo einfalt er það.
Hvernig er hægt að slá því upp sem
einhverri frétt að matvælaverð hér
sé með því hæsta í heimi, eins og
ítrekað er gert; ég bara spyr: hver
er fréttin? Nú er vitað að verðlag í
hverju landi ákvarðast út frá kaup
mætti. Þannig birti Viðskiptaráð
skýrslu í lok janúar síðastliðnum
sem sýndi sæti Íslands í kaupmætti
eftir mismunandi ráðstöfunar
flokkum til samanburðar við 33
ríki ESB. Ísland raðar sér í 2. sæti
þegar kemur að kaupmætti fyrir
mat og drykkjarvörur. Á sama
tíma erum við einungis í fjórða
sæti þegar kemur að fatnaði og
skóm. Áhugaverður samanburður,
sérstaklega þegar haft er í huga að
engir tollar eru á fatnaði og skóm.
Þannig sjáum við að mýtan um
hátt matvælaverð á Íslandi á sér
ekki stoð í raunveruleikanum.
Ég tel að þarna fari hagsmunir
bænda og neytenda til lengri tíma
saman. Innlend framleiðsla á að
fá samkeppni frá innflutningi en
hún þarf að vera sanngjörn. Ef of
mikið er gefið eftir í tollverndinni
er hættan sú að innlenda fram
leiðslan minnki mjög mikið og
jafnvel hverfi. Varla geta það verið
hagsmunir neytenda til lengri tíma
litið að stóla á örlæti innflytjenda
og því að þeir skili evrópsku mat
vælaverði hingað upp á klakann.“
/smh
Ingvi Stefánsson, svínabóndi á Teigi og formaður Félags svínabænda, hér á Búnaðarþingi 2021. Mynd / HKr.
Þrátt fyrir versta ár svínabænda afkomulega á síðasta ári er Ingvi bjartsýnn.
LAMBHELDU
HLIÐGRINDURNAR
Þessar hliðgrindur hafa slegið í gegn um land allt.
Lambheldar, léttar og auðveldar í uppsetningu.
Breidd 4,20 m, hæð 1,10 m. Möskvastærð 10x15.
Verð á grind kr. 26.900 stk. auk vsk.
Ef keypt eru 2 til 4 stk., verð kr 24.900 stk. auk vsk.
Ef keyptar eru 5 eða fleiri, verð kr. 19.900 stk. auk vsk.
Til afhendingar á Hvolsvelli eða í Sundahöfn án
aukakostnaðar, en sent hvert á land sem er.
Pantanir og upplýsingar í símum
669 1336 og 899 1776.
Meira fyrir aurinn
L mbheldu hliðgrin urnar
Þessar hliðgrindur hafa slegið í gegn um land allt. Lambheldar, léttar og auðveldar
í uppsetningu.
Breidd 4.20 m, hæð 1.10 m. Möskvastærð 10x15.
Verð á grind kr. 24.900 stk. auk vsk.
Ef keypt eru 2 til 4 stk., verð kr. 22.900 stk. auk vsk.
Ef keyptar eru 5 eða fleiri, verð kr. 19.900 stk. auk vsk.
Til afhendingar á Hvolsvelli eða í Sundahöfn án aukakostnaðar
en sent hvert á land sem er.
Pantanir og upplýsingar í símum 899 1776 og 669 336.