Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.05.1979, Page 28
Allsherjarafkvæðagreiðsla
Sameiginlegur fundur stjórnar og samninganefndar
samþykkti að allsherjaratkvæðagreiðslunni skyldi hagað
þannig, að atkvæði yrðu talin í einu lagi hjá félögum
ríkisstarfsmanna, en félög bæjarstarfsmanna hefðu hvert
um sig atkvæðagreiðslu. Þessi ákvörðun er í samræmi við
40. gr. laga BSRB.
Stjórn BSRB kaus yfirkjörstjórn vegna atkvæðagreiðslu
ríkisstarfsmanna. Áttu sæti í henni Hörður Zóphanías-
son, skólastjóri, formaður, Ágúst Guðmundsson, deildar-
stjóri og Ólafur Guðmundsson, yfirlögregluþjónn.
Kynning og fundahöld
Þá var ákveðið að efna til almennra fundahalda um
samkomulagið í aðildarfélögum BSRB í Reykjavík og
nágrenni, auk þess sem BSRB boðaði til almennra funda
fyrir félagsmenn bandalagsins víðs vegar um land. Jafn-
framt var samkomulagið birt í Ásgarði og kynnt þar.
Úrslil allsherjarafkvæðagreiðslunnar
Allsherjaratkvæðagreiðsla um samkomulagið fór fram
dagana 3. og 4. maí.
Atkvæði voru síðan talin 6. og 7. maí. Talning fór
fram hjá hverju félagi bæjarstarfsmanna fyrir sig, en at-
kvæði ríkisstarfsmanna voru talin sameiginlega hjá yfir-
kjörstjórn mánudaginn 7. maí. Úrslit atkvæðagreiðslunn-
ar urðu sem hér segir:
Bæjarstarfsmenn:
Á kjörskrá Atkvæði Já Nei Auðir og
greiddu ógildir
ísafjörður 73 47 18 28 1
Vestmannaeyjar 127 71 19 52 0
Neskaupstaður 44 38 19 18 0
Kópavogur 217 123 50 71 2
Húsavík 77 38 32 3 3
Reykjavík 2226 1222 177 1029 16
Hafnarfjörður 180 130 55 73 2
Garðabær 70 44 9 34 1
Sauðárkrókur 32 22 10 0
Akranes 91 43 48 0
Félag opinb. starfs-
manna á Suðurl 77 40 16 24 0
Siglufjörður 32 15 17 0
Seltjarnarnes 46 37 16 21 0
Mosfellssveit 40 21 8 13 0
Akureyri 400 145 51 88 6
Keflavík 114 68 24 43 1
Hjúkrunarfræðingar
sem semja við
Reykjavíkurborg 96
Hjúkrunarfræðingar
sem semja við
Akureyrarbæ 51 29
Ríkisstarfsmenn:
Á kjörskrá Atkvæði greiddu
10.216 6.728
Auðir seðlar og ógildir 186.
21 70 5
12 17 0
já nei
2.032 4.510
Úrslifin filkynnt fjármálaráðherra
Hinn 8. maí 1979 var fjármálaráðherra ritað eftirfar-
andi bréf:
Samkvæmt fyrirvara BSRB og fjármálaráðherra í sam-
komulagi frá 23. apríl 1979 fór fram allsherjaratkvæða-
greiðsla um samkomulagið dagana 3. og 4. þ.m.
Úrslit þeirrar atkvæðagreiðslu urðu þau, að ríkisstarfs-
menn í BSRB og 14 af 17 félögum bæjarstarfsmanna
felldu samkomulagið, en 3 bæjarstarfsmannafélög sam-
þykktu það, Starfsmannafélag Neskaupstaðar, Starfs-
mannafélag Húsavíkur og Starfsmannafélag Sauðárkróks.
Samkvæmt efnahagslögunum frá 10. apríl 1979 ber
því að greiða 3% grunnlaunahækkun til þeirra félags-
manna í BSRB, sem ekki fá samningsrétt samkvæmt sam-
komulaginu."
7. KAFLI
FRÆÐSLUSTARF
OG ÚTGÁFUMÁL
Starf fræðslunefndar
Bandalagsstjórn kaus 7 manna fræðslunefnd haustið
1976. í henni áttu upphaflega sæti: Haraldur Steinþórs-
son, 2. varaform. BSRB, sem var formaður nefndarinnar,
Fríða Proppé frá Starfsmannafélagi ríkisstofnana, Ingi-
björg Jónsdóttir frá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborg-
ar, Reynir Sigurþórsson frá Félagi ísl. símamanna, Sig-
urður Guðmundsson skólastjóri frá Sambandi ísl. barna-
28