BSRB blaðið - 01.04.1986, Page 28

BSRB blaðið - 01.04.1986, Page 28
Vextir — raunvextir — hækkuðu. Þeir eiga að heita frjálsir, en er stjórnað úr Seðlabanka. sterkt til að á því sé hægt að byggja verðlagseftirlit, eins og þó virðist ætl- unin. Meðal þjóða sem búa árum og áratugum saman við stöðugt verðlag, þróast mjög öflugt verðskyn hjá al- menningi og gerir það að verkum að verslunareigendur verða að vera vel á verði og gæta sín á því að prenta ekki hærri tölur á verðmiðana en aðrir. Undir slíkum kringumstæðum hefur orðið samkeppni raunverulega merk- ingu. Undanfama tvo til þijá áratugi hef- ur verðbólga hins vegar verið svo ör á íslandi að fólk hefur fyrir ógnarlöngu gersamlega gefist upp á að reyna að fylgjast með því hvað hlutirnir kosta, eða hvað mætti teljast eðlilegt að þeir kosti á hverjum tíma. Þegar einungis tiltölulega lítill minnihluti fólks getur svarað því nákvæmlega hvað einn lítri af mjólk kostar, þá er varla hægt að gera ráð fyrir því að verðþekking sé út- breidd að öðru leyti. VANTRÚIN - STÆRSTI ÓVISSUÞÁTTURINN Þegar fulltrúar stéttarfélaganna lögðu tillögur sínar um efnahagsað- gerðir fyrir ríkisstjórnina á sínum tíma, var í tillögunum lögð rík áhersla á nauðsyn þess að ríkisstjórninni tæk- ist að skapa traust allra landsmanna á því, að því markmiði að halda verð- bólgunni innan tveggja stafa tölu yrði raunverulega náð. Það var heldur ekki að ástæðulausu sem svo rík áhersla var lögð á einmitt þetta einstaka atriði. Innan hagfræð- innar eru áhrif verðbólguvæntinga löngu þekkt. Þessi áhrif eru í sem stystu máli fólgin í því að allir, sem mögulega geta, reyna sitt ítrasta til að verða á undan verðbólgunni. Menn bíða ekki eftir því að verðbólgan verði staðreynd, heldur hækka vöru sína eða þjónustu fyrirfram í þeim tilgangi að hagnast á verðbólgunni fremur en að tapa á henni. Sú verðbólga sem þannig myndast, bætist í mörgum tilvikum ofan á þá verðbólgu sem skapast af „eðlilegum" orsökum og getur hæg- lega gert að engu aðgerðir stjómvalda til að lækka verðbólgu eða draga úr hraða hennar. Á þeim þrem vikum sem liðnar eru síðan kjarasamningarnir voru undirrit- aðir hefur líka komið mjög glögglega í ljós að ekki var vanþörf á þessari að- vörun til ríkisstjórnarinnar. - BÍLARNIR Þau atriði sem hvað mesta athygli vöktu og mest var fjallað um í fréttum fyrstu vikur eftir undirritun samning- anna og þá lagasetningu sem í kjölfar þeirra fylgdi, voru tollalækkanir af bíl- um og heimilistækjum og svo vaxta- lækkanir bankanna, en þó ennfremur hækkanir bankanna á gjaldskrám sín- um fyrir ýmsa þjónustu. Þá urðu einnig talsverðar umræður um 22% hækkun á bílatryggingum, sem einnig tóku gildi um síðustu mánaðamót. Það kom strax í ljós, þegar tolla- lækkanirnar tóku gildi, hversu mikil- vægt það er að tiltrú skapist, þannig að ekki gæti viðleitni til að verða á undan verðbólgunni í hækkunum. Með því að lækka tolla á bílum var stefnt að því að bílarnir lækkuðu í verði um 30% eða því sem næst. Þetta átti reyndar fyrst og fremst að gilda um minni bíla. Stærri bílar áttu að lækka minna. Eftir að lögin um tollalækkanir höfðu verið samþykkt, varð strax ljóst að markmiðið hafði ekki náðst — og það sem þó var enn undarlegra að margra áliti — stóru bílarnir höfðu lækkað hlutfallslega meira í verði en smábílarnir og í sumum tilvikum var þessi munur verulega mikill. Þannig voru þess dæmi að smábílar í neðstu verðflokkunum lækkuðu einungis um 15% meðan stórir og dýrir „forstjóra bílar“ lækkuðu um 30%. Þegar farið var að athuga málið kom í ljós að fyrir þessu voru tvær ástæður. Önnur var einfaldlega sú að sérfræð- ingarnir í ijármálaráðuneytinu höfðu reiknað skakkt, þegar þeir undirbjuggu frumvarpið. Þetta atriði var leiðrétt í miklum flýti með nýrri lagasetningu, þar sem tollar af bílum voru færðir alla leið niður í 10% í stað 30%, eins og hugmyndin var upphaflega. Hin ástæðan fyrir því að tilætlaður árangur náðist ekki af tollalækkun- inni, var sú að bílaumboðin hækkuðu 28 BSRB-blaðið

x

BSRB blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: BSRB blaðið
https://timarit.is/publication/1583

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.