BSRB blaðið - 01.04.1986, Qupperneq 31
Verkalýðshreyfingin hvetur nú félagsmenn sína til þess að fylgjast með verðlagi I verzlunum.
mánuði fyrr. Þessar hækkanir voru
auk þess ríflega tilteknar, jafnvel þótt
miðað hefði verið við óbreytt verð-
bólgu ástand, og því ekki í neinu sam-
ræmi við þær verðbólguspár sem nú er
gengið út frá.
Greiðslur fyrir ávísanahefti voru
hækkuð, í mörgum tilvikum um 40%,
innheimtuþóknun fyrir innistæðulaus-
ar ávísanir, (sem reyndar er ein af
drýgstu tekjulindum bankanna) hækk-
uðu líka stórlega, og þannig mætti
lengi telja.
Þegar vakin var athygli á þessum
hækkunum, fyrst á Alþingi og svo í
íjölmiðlum, töldu bankarnir sig þurfa
þessar hækkanir og virtust síst fúsir til
að draga þær til baka. Það var ekki fyrr
en Matthías Bjarnason, viðskiptaráð-
herra, hafði gengið í málið og hótað
lagasetningu, að bankarnir létu undan
síga og lækkuðu gjaldskrár sínar.aftur.
Frammistaða Matthíasar í þessu máli
var mjög rómuð af forystumönnum
verkalýðshreyfingarinnar, sem gerðu
sér ferð á hendur niður í Alþingishús
og færðu honum blóm af þessu tilefni.
- VEXTIRNIR HÆKKUÐU
Þessi millifyrirsögn kann að koma
einhverjum Iesendum í opna skjöldu.
Vextirnir voru jú lækkaðir með pompi
og prakt. Það er raunar alveg rétt;
nafnvextir sem svo eru kallaðir, lækk-
uðu reyndar töluvert. Engu að síður
var lækkunin ekki meiri en svo að hún
leiddi til stórfelldrar hækkunar raun-
vaxta.
Sem dæmi um þetta má taka al-
menna forvexti af víxlum sem voru
nálægt 32% fyrir vaxtalækkunina, en
fóru niður í um 20%. Fyrir kjarasamn-
ingana — og vaxtalækkunina — sam-
svaraði verðbólguhraðinn því að verð-
bólgan yrði eitthvað yfir 30% á árs-
grundvelli. Þetta þýðir að víxilvextir
og verðbólga héldust nokkurn veginn í
hendur, eða m.ö.o. að raunvextir af
þessum víxlum voru engir.
Eftir kjarasamningana og þær efna-
hagsaðgerðir sem fylgdu í kjölfar
þeirra, er gert ráð fyrir að verðbólgu-
hraðinn verði nálægt núlli fyrstu mán-
uðina. Þetta hefur í för með sér að nú
eru allir vextir raunvextir. Þannig eru
nú 20% nafnvextir nú jafnframt 20%
raunvextir.
Þannig var vaxtalækkunin ekki
vaxtalækkun nema að nafninu til. í
raun og veru var hér um gífurlega
vaxtahækkun að ræða.
aöeins
einn banki
býöur
-'VAKTA
REIKNING
0 SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF.
BSRB-blaöiö 31