BSRB blaðið - 01.04.1986, Page 32

BSRB blaðið - 01.04.1986, Page 32
- BANKAMENNVORU HRÆDDIR Þrátt fyrir það að vaxtalækkunin var í reynd vaxtahækkun, bæði hvað varð- aði innlán og útlán, hafði starfsfólk bankanna í mörgum tilfellum varla, undan að svara fyrirspyrnum frá fólki sem hugðist taka sparifé sitt út úr bönkunum og vildi fá ráðleggingar um það, hvar nú væri helst ávöxtunar von eftir að vextir bankanna höfðu lækkað svona mikið. Margir veltu fyrir sér þeim mögu- leika að leggja peningana í bíl í trausti þess að þeir hlytu að hækka aftur eftir fáeina mánuði. Þessi viðbrögð sparifjáreigenda höfðu reyndir bankamenn séð fyrir og ástæðan fyrir því að ekki var fallist á meiri lækkun vaxta um síðustu mán- aðamót en raun ber vitni, mun fyrst og fremst stafa af því að bankamenn ótt- uðust að spariQáreigendur myndu streyma inn í bankana hópum saman og taka út sparifé sitt til að kaupa bíla, heimilistæki, eða annað það sem lækk- aði í verði. Þessum ótta sínum hafa reyndar sumir bankamenn lýst opinberlega. Því var sá kostur valinn að lækka vexti ekki meira í fyrsta áfanga, til þess að fólki gæfist kostur á að átta sig á þeim Formaður BSRB, Kristján Thorlacius, og fjármálaráðherra, Þorsteinn Pálsson undirrituðu samkomu- lag sem i öllum helztu atriðum var hliðstætt ASÍ—VSÍ samkomulaginu. HVERS VEGNA TRAUSTUR BANKI ? Niðurstaða í árslok 1985 sýndi: Trausta eiginfjárstöðu Sterka lausafjárstöðu Arðbæran rekstur Mikinn vöxt innlána Jafna dreifingu útlána Launareikningur við Búnaðarbankann er leið til lánsviðskipta við traustan banka. 'BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS 32 BSRB-blaðið

x

BSRB blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: BSRB blaðið
https://timarit.is/publication/1583

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.