BSRB blaðið - 01.04.1986, Síða 33
breytingum sem peningamarkaðurinn
er að ganga í gegnum. Það hefur hins
vegar allan tímann verið yfirlýst stefna
að vextir verði lækkaðir mun meira.
Þegar þetta er ritað eru nýlega heim-
ildir fyrir því að vextir verði lækkaðir á
ný fyrir páska og sú lækkun verði
einnig umtalsverð.
- VEXTIRNIR OG
VERÐBÓLGAN
Svo kyndugt sem það kann að virð-
ast við fyrstu sýn, þá gætu efnahagsað-
gerðir þær, sem nú hefur verið gripið
til í þeim tilgangi að halda verðbólg-
unni niðri, hæglega orðið til þess að
kynda undir verðbólgunni á nýjan leik
með örlítið óbeinum hætti.
Stór hluti af því tekjutapi sem ríkis-
sjóður verður fyrir vegna efnahagsað-
gerðanna, verður bættur með lántök-
um og þessi lán verða að verulegu leyti
tekin í bankakerfinu. Þetta hefur í för
með sér, að bankamir koma til með að
hafa minna fé aflögu til að lána fyrir-
tækjum og almenningi. Þessir aðilar
verða því í auknum mæli að leita út á
„gráa lánamarkaðinn", þ.e.a.s. hinn
frjálsa markað, en þar eru vextir mun
hærri en gengur og gerist í bankakerf-
inu.
Það gefur svo auga leið að þessir háu
vextir fara í flestum tilvikum beint út í
verðlagið.
Sem dæmi um það hversu háa vexti
sum fyrirtæki þurfa nú að greiða, má
reyndar taka meðferð svonefndra við-
skiptavíxla í bankakerfinu. Nú er tæpt
ár síðan Iðnaðarbankinn tók upp þann
sið, fyrstur banka, að kaupa viðskipta-
víxla á ákveðnu gengi, í stað þess að
taka af þeim forvexti, eins og jafnan
hefur tíðkast í bönkum. Aðrir bankar
fylgdu í kjölfarið og nú er svo komið
að allir bankar viðhafa þessa aðferð,
nema Landsbankinn og Búnaðarbank-
inn.
Að kaupa víxla á ákveðnu gengi, er
hið sama og kaupa þá með afföllum.
Hversu há afföllin eru ræðst af því
hversu mikla raunvexti bankinn vill fá
af peningum sínum og svo því til hve
langs tíma víxillinn er.
Ávöxtunarkrafan, sem svo er nefnd,
eða þeir raunvextir sem bankamir
taka nú af þeim fyrirtækjum sem þeir
lána fé í formi viðskiptavíxla, er um
þessar mundir rétt um 40% í flestum
tilvikum, þótt þetta sé örlítið mismun-
andi eftir bönkum. Það er erfitt að trúa
öðru en þessir vextir fari að stórum
hluta út í vébðlagið og skapi þannig
verðbólgu.
- ÓVISSA FRAMUNDAN
Hér að framan hefur verið rakið
ýmislegt sem máli skiptir um það
hvort sá árangur muni nást í baráttu
við verðbólguna eins og að var stefnt
með kjarasamningunum og efnahags-
aðgerðum þeim sem fylgdu í kjölfarið.
Að sjálfsögðu hefur þó ekki verið um
neina tæmandi úttekt að ræða, enda
myndi sjálfsagt þurfa til þess stóra bók.
Óneitanlega virðist margt benda til
þess að þessi atlaga að verðbólgunni
muni geta skilað árangri. Til þess
bendir einkum sá vilji, sem vissulega
virðist vera fyrir hendi bæði hjá stjóm-
völdum og ekki síður hjá launþega-
hreyfingunni, sem fylgir þessum mál-
um mjög fast eftir.
Það virðist hins vegar ljóst að vextir
þurfa að lækka enn að miklum mun,
auk þess sem hinn fijálsi verðbréfa-
markaður verður að laga sig að nýjum
aðstæðum með því að lækka stórlega
ávöxtunarkröfu sína, ef einhver von á
að vera til þess að verðbólgan verði í ár
táknuð með einum tölustaf.
Stærsti óvissuþátturinn er þó
kannski spumingin um það hversu
mikið traust tekst að vekja á þessum
aðgerðum og hvort almenningur muni
taka sig til og fara að fylgjast með verð-
lagningu einstakra verslana og þjón-
ustufyrirtækja af þeirri röggsemi sem
forystumenn launþegahreyfingarinnar
vonast greinilega til.
HSKKUN - LCKKUN
- ÖNNUR HEIMILISTÆKI
en þau sem lækkuðu í verði vegna
tollalækkana stóðu þó ekki öll í stað.
Þannig varð í sumum tilfellum verð-
hækkun á heimilistækjum um 4—6%
vegna gengisbreytinga. Talið er að
þetta geri það að verkum að meðal-
vægi verðbreytinga á heimilistækjum
verði nálægt 12% lækkun.
- ÚTSELD VINNA
hækkaði í mörgum tilfellum eftir
kjarasamningana, enda þótt því væri
lýst yfir af hálfu ýmissa samtaka at-
vinnurekenda að launahækkanirnar
gæfu ekki tilefni til þess.
- TILKOSTNAÐUR
FYRIRTÆKJA
Kjarabætur þessara samninga
komu ekki einvörðungu Iaunþegum
til góða. Almennt má segja að at-
vinnufyrirtæki njóti einnig góðs af
verðlækkunum þeim sem orðið hafa.
Þannig lækkar orkukostnaður fyrir-
tækja ekki síður en heimilanna og
bílakostnaður fyrirtækja lækkar að
sjálfsögðu líka. Útgjöld fyrirtækjanna
vegna launatengdra gjalda lækka í
kjölfar þessara samninga. í sumum
tilvikum getur tilkostnaðurinn lækk-
að meira en sem nemur launahækk-
uninni.
- ERLENDAR SKULDIR
þjóðarinnar lækka ekki við þessa
kjarasamninga, en ýmsar aðgerðir
stjómvalda í kjölfar samninganna eru
líklegar til að hafa óbein áhrif til
hækkunar erlendra skulda. í því
sambandi má einkum nefna aukinn
innflutning í kjölfar tollalækkananna
sem veldur óhagstæðari viðskipta-
jöfnuði við útlönd en ella hefði orðið.
- GRÆNMETI
Innflutt grænmeti lækkar í kjölfar
tollalækkana. Þessi lækkun kemur
þó seinna til framkvæmda, en flestar
aðrar, vegna þess að allmiklar birgðir
voru til í landinu, þegar tollalækkun-
in tók gildi.
BSRB-blaðiö 33