BSRB blaðið - 01.04.1986, Blaðsíða 39

BSRB blaðið - 01.04.1986, Blaðsíða 39
T koma á framfæri því sem við teljum að séu hagsmunir þeirra sem í samtökun- um eru? ÁTÖK VIÐ AFKVÆMIÐ? Margt bendir til þess að fyrirfram gefin átök milli miðils og stjórnar, eða eigenda hans, sé ástæðan til þess að viðræður verkalýðshreyfingarinnar um fjölmiðlamál hafa runnið út í sand- inn. Hér ráða skammtímahagsmunir. Langtímahagsmunir verkalýðshreyf- ingarinnar eru þeir, að í landinu sé fjölmiðill sem takmarkalaust dælir út upplýsingum til fólksins í landinu. Fjölmiðill, sem fyrir frumkvæði verka- lýðshreyfingarinnar fær tækifæri til þess að taka á málum, sem aðrir fjöl- miðlar í landinu geta ekki gert vegna hagsmuna þeirra sem standa að við- komandi fjölmiðlum. Tilgangurinn með sjálfstæðum fjölmiðli er ekki sá að vera einhliða málpípa forystumanna, heldur að tryggja óheft upplýsinga- streymi og með starfsemi sinni stuðla að því, að hér verði til þjóðfélag í anda grundvallarhugsjóna verkalýðshreyf- ingarinnar. Ef til vill óttast forystumenn verka- lýðshreyfingarinnar, að íjölmiðill, sem hreyfingin ræki yrði andlit samtak- anna út á við og að þau sjónarmið og efni, sem þar kæmi fram, yrði skil- greint sem vilji samtakanna. Og að ef ekki færu saman áherzlur fjölmiðils og forystu, þá myndi forystan verða undir út á við. Eða m.ö.o., að með því að stofnsetja fjölmiðil, sem rekinn væri af myndarskap, þá afsalaði forystan sér einhverju af þeim völdum sem hún hefur nú. Og vissulega kann að líta svo út, ef til slíkra átaka kæmi og ijölmið- illinn yrði sterkur. En gerir það bara nokkuð til? Hefði verkalýðshreyfingin ekki gott af því að Ienda í slíkum átök- um við hugsanlegt afkvæmi sitt? Og hefði afkvæmið — miðillinn — ekki bara gott af því að lenda í deilum við skapara sinn? Það er eðlilegt og lýð- ræðislegt að menn takist á um hlutina — og hafi á þeim skiptar skoðanir — og það er gott fyrir verkalýðshreyfing- una til lengri tíma litið, að sýna það og sanna að hennar hagsmunir felast í ópinni umræðu, frjálsum skoðana- skiptum og hressilegri gagnrýni til hægri og vinstri. Verkalýðshreyfingin er eini aðilinn í þjóðfélaginu, sem get- ur og á að beita sér fyrir lýðræðislegri umræðu. í því felst styrkur hennar. Þess vegna á hún að koma sér upp frjálsum, sjálfstæðum fjölmiðli og breyta valdahlutföllunum á Qölmiðla- markaðinum í landinu. RAGNAR BJÖRNSSON hf. Dalshrauni 6 Hafnarfirði - Sími 50397 fyrir þá sem sætta sig ekki við það næstbesta Þú þarft ekki að búa á enskum herragarði tii að geta leyft þér að prýða stofuna með Chesterfield sófasetti. Það fer allstaðar vel. Og eitt getur þú verið viss um; það kemur aldrei neitt annað í staðinn fyrir Chesterfield. Ef þú sættir þig ekki við það næstbestaskaltu snúa þértil Ragnars Björnssonar hf. bólstrarasem í áraraðir hefur framleitt Chesterfield sófasett úr viðurkenndu leðri - og á verði, sem þú ræður við.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

BSRB blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BSRB blaðið
https://timarit.is/publication/1583

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.