BSRB blaðið - 01.04.1986, Page 44
hann þá ráði af svip Ríkharðs nú,
svarar hann:
Aö hér er honum ekki í nöp við
neinn;
vœri svo mœtti sjá þess merki í
svipnum.
Ríkharður sakar hann síðan um að
gera galdrasamsæri með drottning-
unni, móti sér, og krefst dauða hans:
Höfuðið af! Við helgan Pál ég sver
að hafna máltíð unz ég sé það sjálf-
ur.
BLÓÐUGSÓKN
Örlög Hastings eru ráðin. En Rík-
harður fer hér fram með fullkomna
lögleysu og á þessu viðkvæma augna-
bliki þyrfti varla annað til, en að
einhver ríkisráðsmaður stæði upp og
mótmælti, til þess að gera blóðuga
sókn Ríkharðs til valda að engu.
Slægðin, sem gegnsýrir þetta atriði
er heillandi. Bokkinham spyr hvaða
dag menn vilji að kóngurinn ungi
verði krýndur. Utan úr salnum er
lymska hans ljós, spurningin er gildra
fyrir Hasting. En Eleyjar-biskup, í
höndum Vals Gíslasonar slær vopnin
úr höndum Bokkinhams með því að
leggja til að kóngurinn verði krýndur
að morgni.
Bokkinham reynir að bjarga sér með
að spyrja hver þekki hug ríkisstjórans,
Ríkharðs, í þessu máli. Og enn þrosir
Eleyjarbiskup ljúfmannlega og segir:
Yðar náð tel ég viti helst hans hug.
Þannig kemst Bokkinham í vandræði
við að afneita öllum nánum kunnings-
skap við Ríkharð.
Kóngur fær fréttir af dauða bróður síns hertogans
af Klarens.
44 BSRB-blaðið