BSRB blaðið - 01.04.1986, Page 45
■M
■ (í#
En Hastingur tekur af andstæðing-
um sínum ómakið og gengur í gildruna
sjálfur með að bjóðast til að tala fyrir
kóngs munn.
Ríkharður kemur brosandi inn,
ljómandi af góðmennsku. En þeirri
grímu er svipt af, þegar með þarf, til að
koma höggi á Hasting. Og kaldrana-
legasti tónninn er svo sleginn af Rík-
harði Ráðkleyfi, sem er settur til þess
að drepa Hasting, þegar hann rekur á
eftir fómardýri sínu:
Komið nú! hertoginn skal brátt til
borðs;
fljót skriftamál! Hann heimtar höf-
uð yðar.
Og ríkisráðið, sem gekk út að kröfu
Ríkharðs, og skildi Hasting eftir hjá
böðlum sínum, er þar með orðið Rík-
harði samsekt, og verður honum ekki
frekari þröskuldur um sinn. Stanley
jarl af Darrbæ er sá eini af höfuðpers-
ónum leikritsins, sem lifir af. Hann
varar Hasting vin sinn við, en þegar
Hastingur sinnir viðvörunum hans
engu, svíkur hann vin sinn líka, því
það stoðar Hasting lítið þó Stanley
verði tekinn af lífi með honum. Þess
vegna segir jarlinn af Darrbæ, strax og
ljóst er hvert stefnir á ríkisráðsfund-
inum:
Á morgun er að mínum dómi of
Jljótt.
Og hann gætir þess að horfa ekki fram-
aní nokkum mann meðan hann segir
þetta. En hann svíkur Ríkharð líka,
um leið og tækifæri gefst, og gengur til
liðs við jarlinn af Ríkmond, sem síðar
BSRB-blaðið 45