BSRB blaðið - 01.04.1986, Síða 50

BSRB blaðið - 01.04.1986, Síða 50
í þessari grein verður gerð tilraun til að stikla á stóru í þróun samningsrétt- armálanna með nokkrum tilvitnun- um, sem sýna mismunandi sjónarmið. FYRSTU LÖGIN 1962 Fyrstu lögin um samningsrétt opin- berra starfsmanna taka gildi árið 1962 og þá komu jafnframt inn ákvæði um Kjaradóm. Árið 1973 var lögunum breytt í það horf „að heildarsamtökin fjölluðu um launastiga og vinnutíma, en félögin um röðun starfsheita og einstaklinga í launaflokka. Verkfallsréttur gilti hvorki um aðalkjarasamning né sér- kjarasamning, og helst ranglætið í samningunum 1974 og 1975. Þá sáu menn að við svo búið mátti ekki standa. Óánægja myndaðist með kjaradóm. Svar BSRB hlaut að vera krafan um verkfallsrétt“ (Tilvitnun úr Ásgarði). Árið 1975 ákveður formannaráð- stefna BSRB að tilnefna ekki fulltrúa BSRB í Kjaradóm né Kjaranefnd. SÖGULEG STUND Nú erum við komin að sögulegri stund hjá BSRB. Samkomulag næst við ríkisstjórn og Alþingi um verkfalls- rétt vegna aðalkjarasamnings BSRB fyrir ríkisstarfsmenn og bæjarstarfs- mannafélög. Hið nýfengna vopn var svo notað í október 1977 og stóð fyrsta verkfall BSRB í hálfan mánuð. Skarst þá veru- lega í odda milli verkfallsnefndar BSRB og nýstofnaðrar kjaradeilu- nefndar. BSRB kom þá upp styrktar- sjóði vegna verkfallsins. VINNUSTÖÐVUN INAUÐVÖRN Á næsta ári var framkvæmd vinnu- stöðvun 1. og 2. mars til að mótmæla aðgerðum ríkisstjórnar Ólafs Jóhann- essonar. í ályktun stjórnar BSRB vegna þessa máls segir m.a.: „Vinnustöðvunin er algjör nauð- vörn samtaka, sem meinað hefur verið að semja við viðsemjendur sína á jafn- réttisgrundvelli. Takist ekki að hrinda þeirri árás, sem nú er gerð á nýfenginn samningsrétt BSRB og aðildarfélaga þess, þá virðist næsta tilgangslítið að efna til viðræðna og samningagerðar í framtíðinni við ríkisvald og sveita- stjómir.“ AUKINN SAMNINGSRÉTTUR BOÐINN, EN ... Nú komum við að kaflaskilum, sem enn er deilt um. Það var þegar ríkis- stjórnin þann 23. mars 1979 (Qármála- ráðherra Tómas Ámason) og BSRB ná samkomulagi um aukinn samnings- rétt. Sá böggull fylgdi skammrifi að jafnframt myndi samninganefnd - VIÐ GETUM SETT VERKFALL í GANG - „EN KJARADEILUNEFND RÆÐURGANGIÞESS" SEGIR GUNNAR GUNNARSSON KJARADEILUNEFND RÆÐUR Við spurðum Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóra Starfsmannafélags ríkisstofnana, hvert væri hans álit á stöðunni í samningsréttarmálum opin- berra starfsmanna. Hann sagði m.a.: — Þetta mál er samofið uppbygg- ingu samtakanna. Vandamálið í dag er hversu mjög kjaradeilunefnd dregur úr möguleikum okkar til að stýra verk- fallsaðgerðum eftir okkar höfði. Við getum sett verkfall í gang, en það er kjaradeilunefndin sem getur hverju sinni ákvarðað hvað telst stofna eign- um, öryggi eða lífi manna í hættu. Gunnar nefndi nokkur dæmi um þetta. I verkfallinu 1977 fengu aðeins 16 lögreglumenn af um 700 að fara í verkfall og aðeins 16 hjúkrunarkonur. Þarna var fyrst og fremst um að ræða fólk sem var lengst frá eldlínunni, þ.e. fólk sem sinnti fyrst og fremst eftirlits- störfum sem ekki skipti máli hvort væru yfirgefin í styttri tíma. — Aftur á móti voru stéttir eins og kennarar og póstmenn með yfir 98% þátttöku í verkfallinu 1984 og kennar- ar voru um 43% allra þeirra sem fóru í verkfall, þannig að meginþungi síðasta verkfalls hvíldi á herðum kennara- stéttarinnar. — Andstæðingum aukins verkfalls- réttar opinberra starfsmanna er auð- vitað mjög í mun að verkfallsvopnið sýni „gagnsleysi" sitt, enda tók ríkis- stjórnin strax eftir verkfallið af okkur þær kjaraþætur sem við náðum. ÞÖRF Á RÝMRI SAMNINGSRÉTTI — Eftir að kennarar hafa gengið úr okkar röðum eykst að sjálfsögðu þörf- in á að fá rýmri samningsrétt, því að við verðum að ná þeim rétti að við get- um sjálf ákveðið hvaða starfsemi við Gunnar Gunnarsson, SFR. ætlum að stöðva og hvenær við teljum það heppilegast. — Það mun ekkert gerast í samn- ingsréttarmálunum í sambandi við þá samninga sem nú eru framundan, en ég vænti þess að málið verði tekið fljótlega til umræðu að samningum loknum. — Reyndar segja sumir að ef við fáum fullan samningsrétt muni banda- lagið liðast endanlega í sundur. Af þessu má sjá að engar einfaldar lausnir og enginn einn vilji er í þessu máli. — Ég bendi á, að félög á borð við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Starfsmannafélag Akureyrar og Starfs- mannafélag Neskaupstaðar, svo einhver séu nefnd, hafa samningsrétt um öll sín mál. Þau þurfa því ekki að taka minnsta tillit til heildarinnar við beitingu verkfallsvopnsins. Mér er til efs að þeir hafi gert sér fulla grein fyrir þessu. 50 BSRB-blaöið

x

BSRB blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BSRB blaðið
https://timarit.is/publication/1583

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.