BSRB blaðið - 01.04.1986, Side 52

BSRB blaðið - 01.04.1986, Side 52
Fyrsta verkfall BSRB var árið 1977. Þá lokuðust skólar og aðrar stofnanir rikisins ... SAMNINGSRÉTTURINN FLYTJIST TIL AÐILDARFÉLAGANNA í leiðara ágústheftis Ásgarðs 1984 kemur Kristján Thorlacius inn á þessi mál og segir að BSRB geri nú þá kröfu að bandalagsfélögin fái fullan samn- ings- og verkfallsrétt um öll atriði samninga. „Samstaða allra starfshópa innan BSRB er nauðsynleg til að ná árangri. Sú samstaða verður að byggjast á fé- lagslegu samstarfi innan heildarsam- takanna, ekki lögþvingun. Á því bygg- ist krafan um að samningsrétturinn flytjist til aðildarfélaganna." „ILLMÖGULEGT AÐ BEITA VERKFALLSRÉTTINUM. . Að síðasta verkfalli BSRB loknu íjalla nokkrir BSRB félagar um lær- dóm þann sem þeir drógu af verkfall- inu. Kannski kemur það einna skýrast fram í máli Þórdísar Sigurðardóttur, hjúkrunarfræðings, hvaða vankantar eru á verkfallsaðgerðum BSRB. Hún segir: „Mín persónulega skoðun er að verkfallsréttur okkar félaga innan BSRB sé svo takmarkaður að illmögu- legt sé að beita honum. Ef við getum ekki fengið þennan rétt okkar rýmkað- an og á meðan kjaradeilunefnd hefur alræðisvald til að úrskurða hvern sem er til vinnu, og virðist ekki þurfa að halda sig innan þess ramma sem til var ætlast, þ.e.a.s. að sjá einungis um að nauðsynlegustu öryggis- og heilsu- gæslu sé fullnægt, þá tel ég verkfallsrétt okkar of máttlausan og það taki of langan tíma að hann nái markmiði sínu.“ Nú fara erfiðir tímar í hönd hjá BSRB því að kennarar eru á leið út og telja að þeir geti náð betri samnings- stöðu einir en sem hluti af BSRB. Þetta veldur mörgum miklum áhyggj- um og menn fara að rýna dýpra í stöð- una en áður tíðkaðist. Einar Ólafsson hefur verið opinskár í þessum umræð- um og velt ýmsu fyrir sér. í nóvember- hefti Ásgarðs 1985 eru birtir kaflar úr ræðu hans á 33. þingi BSRB. Hann hvetur þar til að skoðað verði gaum- gæfilega skipulag og starfshættir sam- takanna, þar á meðal fyrirkomulag samningsréttar og verkfallsréttar. „Er ekki miklu eðlilegra að samn- ingsréttur og verkfallsréttur sé breyti- legur eftir eðli einstakra félaga? Og að hver hópur taki ákvörðun um verkföll hver fyrir sig en ekki fyrir aðra,“ spyr Einar, og segir einnig: „Það þarf að kanna hvort ástæða sé til að skipu- leggja félög opinberra starfsmanna upp á nýtt í faggreinasambönd eða fag- greinafélög, þar sem allir þeir sem starfa við svipuð störf séu í sama fé- lagi.“ Á 33.þingi BSRB, sem haldið var í október 1985 er hvatt til gagngerðrar endurskoðunar á samningsréttarmál- um opinberra starfsmanna. Þar segir: „Megin viðfangsefni í þeirri endur- skoðun verði eftirfarandi: 1. Aðildarfélög BSRB fái fullan samn- ings- og verkfallsrétt um öll kjara- atriði, jafnt um aðalkjarasamning og sérkjarasamning. 2. Félagsaðild starfsmanna í þjónustu 52 BSRB-blaðið

x

BSRB blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BSRB blaðið
https://timarit.is/publication/1583

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.