Þjóðmál - 01.09.2016, Síða 7

Þjóðmál - 01.09.2016, Síða 7
Á flokksþinginu í Háskólabíói flutti Ásmundur Einar harðorða ræðu gegn Sig- mundi Davíð. Lilja stóð hins vegar með SDG og sem varaformaður eftir fall hans hvatti hún mjög til flokkseiningar. Gunnar Bragi bauð sig fram til embættis flokksritara en dró sig í hlé til að stuðla að sátt. Fram eftir sumri benti margt til að tveir Framsóknarflokkar störfuðu í landinu. Sá sem fylgdi SDG flokksformanni að málum og hinn sem stóð að baki Sigurði Inga Jóhannssyni forsætisráðherra. Sigurður Ingi lýsti skoðun sinni á flokksmálefnum, taldi til dæmis að efna bæri til flokksþings fyrir þingkosningar haustið 2016, nefndi ákveðna dagsetningu fyrir kjördag og hvaða mál skyldi setja á oddinn. Sigmundur Davíð talaði í véfréttarstíl. Eitt af því sem olli ágreiningi um tíma meðal þingmanna Framsóknarflokksins var hvort efna ætti til haustkosninga eða ekki. Stuðningsmenn SDG meðal þingmanna, Vig- dís Hauksdóttir, Gunnar Bragi og Þorsteinn Sæmundsson vildu ekki frekar en SDG kjósa í haust. Formannsátökin innan Framsóknarflokks- ins hófust fyrir opnum tjöldum á miðstjórnar- fundinum í Hofi á Akureyri laugardaginn 10. september. Þá var annars vegar ákveðið að boða til flokksþings 1. og 2. október og hins vegartilkynnti Sveinbjörn Eyjólfsson, for- stöðumaður Nautastöðvarinnar á Hvanneyri og fyrrverandi aðstoðamaður Guðna Ágústs- sonar landbúnaðarráðherra, formannsfram- boð sitt. Sigurður Ingi Jóhannsson sagði á miðstjórnarfundinum að hann gæfi ekki kost á sér til varaformennsku yrði SDG áfram flokksformaður. Voru þessi orð Sigurðar Inga fyrsta opinbera skref hans til framboðs gegn SDG. Augljóst var að framboð Sveinbjörns Eyjólfssonar þjónaði þeim tilgangi að rjúfa bannið á framboð gegn SDG. Á fundinum 10. september áréttaði Sigurður Ingi ekki lengur stuðning sinn við SDG eins og hann hafði gert staðfastlega frá átakadeginum 5. apríl heldur sagði hann örlögin„algjörlega í höndum flokksmanna". Fram eftir sumri benti margt til að tveir Framsóknarflokkar störfuðu í landinu. Sá sem fylgdi SDG flokks- formanni að málum og hinn sem stóð að baki Sigurði Inga Jóhannssyni forsætisráðherra. Skoruðu sumir miðstjórnarmenn á Sigurð Inga að gefa kost á sér til formennsku. Krafan um flokksþing fyrir kosningarnar til alþingis 29. október 2016 tengdist ávallt kröf- unni um að SDG viki af formannsstóli. Greip hann til þess ráðs að reyna að draga allar ákvarðanir um boðun þingsins á langinn. Loks voru völdin einfaldlega tekin af honum í krafti flokksreglna. Kjördæmi landsins eru alls sex. Innan hvers kjördæmis starfar hópur flokksmanna sem ræðir um sameiginleg málefni. Kölluð eru saman kjördæmisþing í samræmi við flokksreglur. í Framsóknarflokknum ber að kalla saman flokksþing sé það samþykkt af þremum kjördæmisþingum. Þessari reglu var beitt til að binda hendur SDG. Kjördæmisþing í suðurkjördæmi og norðvesturkjördæmi samþykktu laugardag- inn 20. ágúst að boðað skyldi til flokksþings. Tillaga um það var hins vegar felld í kjördæmi SDG, norðausturkjördæmi. Þegartillaga um flokksþing var samþykkt á kjördæmisþingi suðvesturkjördæmis fimmtudaginn 25. ágúst var formlegri kröfu um boðun þess fyrir þing- kosningar fullnægt. Kjördæmisþingin tóku þannig fyrst fram fyrir hendur SDG og síðan miðstjórnin. II. í upphafi miðstjórnarfundarins á Akureyri flutti SDG ræðu. Hér er birt endursögn hennará ruv.is: „Sigmundur fullyrti að útsendarar slita- búanna hafi njósnað um sig.„Ég veit að það var brotist inn í tölvuna mína. Þeir eltu mig til útlanda," sagði Sigmundur. Hann sagði að honum hefðu borist skilaboð frá ónefndum manni þegar hann fór á fslend- ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016 5
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.