Þjóðmál - 01.09.2016, Síða 72
Á landfundaskeiði upp úr 1400,
upphafi velmegunarskeiðs í sögu
Evrópubúa, tóku íbúar álfunnar að
eigna sér mannvistarstaði utan Evrópu
og gera að nýlendum sínum. Á þeim
stöðum komu Evrópumenn sér upp í
senn ódýru vinnuafli og hráefni úr jörð
til að smíða úr vélar og ámóta fyrir
tækniþekkingu sem leidd var af upp-
götvunum evrópskra vísindamanna
á lögmálum náttúrunnar. - Arabar í
Norður-Afríku og Miðausturlöndum
bjuggu einnig yfir þekkingu á náttúru-
lögmálunum en sú þekking varað
hætti austurlandabúa hugleiðsluþekk-
ing, hún var ekki nema að litlu leyti
álitin til praktískra nota heldur var og
er enn samofin viskuleit með tilvísun
á eilíf líf samkvæmt fyrirfram gefinni
formúlu um hvernig því sé háttað.
aðra. Erfðir setja kynþáttum takmörk og
ákveða einkenni þeirra, útlit og lifnaðarhætti.
Á móti vega svo hin menningarlegri sérkenni
araba sem annarra stofna mannkynsins.
Brennandi sólarhiti á daginn. Hitinn niður-
undir frostmarki á nóttunni. Fólk sem lifir við
slík skilyrði og verður þar að auki að byggja
allt sitt á strjálum vatnsbólum í ógróinni
auðn sem nær þúsundir kílómetra frá vestri
til austurs; af því fólki er þess helst að vænta
að réttlætisskynið verði harðneskjulegt og
siðir fastgrónir í hefðir sem leggja verði lífið
undir til að varðveita. Hvort tveggja gildir um
araba. Þegar svo að því kom að þeir drógu
sig saman í stærri einingar undir merki eins
guðs, Allah - fyrir áhrif frá þeim kristnu sem
lærðu sama sið af gyðingum - þá varð sá guð,
eins og guðir verða alltaf, spegilmynd þess
sem helst einkenndi það samfélag manna
sem gerst höfðu átrúendur hans. Það er
ekki mikill munur á Jave gyðinga og Allah
múslíma. Síðarnefndur á fremur uppruna að
rekja til hinna fjarlægari austurlanda og er að
sama skapi ópersónulegri enda er bannað að
fjalla um Allah með persónulegum móti. Um
almættið er ekki efast af hvorugum kynstofn-
inum, aröbum eða gyðingum, en hvorugur
forsjáandinn er góður í kristilegum skilningi,
Jave eða Allah, enda hafa menn lítið með
slíkt almætti að gera við þau lífsskilyrði sem
mönnum eru búin við Miðjarðarhafsbotna og
á Saharaeyðimörkinni. Allah, mátturinn sem
dýrkaður er af múslímum, tekur til mannsins
alls, jafnt þess sem kristnir menn álíta hið
illa, og persónugera með sínum hætti, og
hins sem talið er hið góða af hinum sömu
mönnum. Og er meðal araba líklega fremur
bundið æru og stolti en gæsku, að skilningi
kristinna manna.
Á landfundaskeiði upp úr 1400, upphafi
velmegunarskeiðs í sögu Evrópubúa, tóku
íbúar álfunnar að eigna sér mannvistarstaði
utan Evrópu og gera að nýlendum sínum. Á
þeim stöðum komu Evrópumenn sér upp í
senn ódýru vinnuafli og hráefni úr jörð til að
smíða úr vélar og ámóta fyrir tækniþekkingu
sem leidd var af uppgötvunum evrópskra
vísindamanna á lögmálum náttúrunnar.
Arabar í Norður-Afríku og Miðausturlöndum
bjuggu einnig yfir þekkingu á náttúrulög-
málunum en sú þekking var að hætti austur-
landabúa hugleiðsluþekking, hún var ekki
nema að litlu leyti álitin til praktískra nota
heldur var og er enn samofin viskuleit með
tilvísun á eilíf líf samkvæmt fyrirfram gefinni
formúlu um hvernig því sé háttað.
Á þessu nýlenduskeiði í sögu Vestur-
veldanna lá beint við að landsvæði araba,
sem svo nærri Evrópu lágu, yrðu fyrir barðinu
á innrásarliðum þaðan. Og það því fremur
sem vegur Evrópuríkjanna í vestri og norðri
varð meiri. Grikkir herjuðu á araba á tíð
Alexanders mikla. Síðar gerðu Rómverjar þau
ánauðug sér og réðu um tíma öllum hinum
forna arabaheimi. Uppúr næstsíðustu
þúsaldarmótum, á þeim tíma sem ísland var
að byggjast, fóru Norður-Evrópumenn svo-
kallaðar krossferðir til arabalandanna fyrir
botni Miðjarðarhafs gegn siðvenjum heima-
manna í nafni hins kristna siðar. Nýlendu-
skeiðið hneppti þessi lönd í efnahagslega
ánauð. Og í seinni heimsstyrjöldinni börðust
70 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016