Þjóðmál - 01.09.2016, Síða 24
Sýrlenskur faðir með son sinn í fanginu eftir að hafa náð landi á grísku eyjunni Kos. Evrópa er
í uppnámi vegna flóttamannavandans og ríkisstjórnir ráða ekki við vandann.
FreedomHouse/ Daniel Etter
þessu leyti. Það eru ríki um allan heim, sem
hafa náð tvíhliða samningum við Evrópusam-
bandið um aðgang að mörkuðum þess.
Hvers vegna ekki við?
Það má vel vera að Þorsteinn Pálsson, þá
formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi haft rétt
fyrir sér undir lok níunda áratugar síðustu
aldar, þegar hann vildi fremur tvíhliða
samning við ESB en aðild að EES og að við
Morgunblaðsmenn þeirra tíma höfum haft
rangt fyrir okkur, þegar við vildum frekar EES
en tvíhliða samning.
Það er kominn tími til að stokka upp þessi
spil og sjá hvar við stöndum.
Hið sama má segja um Schengen.
Evrópa er í uppnámi vegna flóttamanna-
vanda. Evrópa ræður ekki við málið. Fólki
fjölgar stöðugt í flóttamannabúðum í
Miðaustur-löndum, í Norður-Afríku og í
Suður- og Austur-Evrópu og jafnvel við
Ermasund. Ástandið er hryllilegt í þessum
búðum.
Aðild okkar að Schengen þýðir að önnur
ríki hafa í raun tekið að sér landamæravörzlu
fyrir okkar hönd og við fyrir þeirra hönd en í
þess stað höfum við aðgang að upplýsingum
hjá þeim.
Það er tímabært að gera úttekt á þessari
stöðu og kanna kosti þess og galla að halda
áfram í Schengen eða að við tökum þessi
málefni að öllu leyti í okkar eigin hendur á
nýjan leik.
Þau rök lögregluyfirvalda að við mundum
missa allan aðgang að mikilvægum
upplýsingum ef við færum út úr Schengen
duga ekki. Það má vel vera að embættis-
menn í einu landi hóti embættismönnum í
öðru landi slíku en í samskiptum fullvalda
ríkja ganga slík sjónarmið ekki og engin rök
fyrir þeim.
Auk þessara stóru mála, sem varða sam-
skipti okkar við aðrar þjóðir eru ný álitamál
að verða til í okkar eigin samfélagi, sem hafa
lítið sem ekkert verið til umræðu en brýnt er
að ræða. Þar er átt við stóraukna eignaraðild
lífeyrissjóðanna að íslenzku atvinnulífi.
Lífeyrissjóðir eiga nú sameiginlega ráðandi
hluti í flestum stærstu fyrirtækjum landsins.
Það gæti verið í lagi, ef stjórnkerfi þeirra
væri lýðræðislegt. Svo er ekki. Enn ríkir það
22 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016