Þjóðmál - 01.09.2016, Síða 14
Auðstjórn almennings -
ríkisbankana til fólksins
í samþykkt flokksráðs-
fundar Sjálfstæðisflokksins
24. september var fylgt
eftir ályktunum landsfundar
flokksins um að drjúgum
hluta í bönkunum sem nú
eru í komnir í eigu ríkisins
verði komið milliliðalaust í
hendur almennings.
Sjálfstæðisflokkurinn
stefnir að því að drjúgur
hluti eignarhluta ríkisins
í stóru bönkunum verði
almenningssvæddur og
eignarhald almennings í
þeim verði milliliðalaust.
Eins og Bjarni Benedikts-
son formaður flokksins lýsti
þá gerist þetta einfaldlega
með því að ríkið afhendir
landsmönnum öllum jafnan
hluta í bönkunum til eignar.
Eyjólfur Konráð Jóns-
son alþingismaður Sjálf-
stæðisflokksins nefndi það
auðstjórn almennings eða
fjárstjórn fjöldans, þann sjálf-
sagða hlut að hinn almenni
maður eigi beinan hlut í
atvinnufyrirtækjum landsins.
I bókinni Alþýða og
atvinnulíf sem kom út árið
1968 ritaði Eyjólfur Konráð:
Almenningshlutafélög
eru ekki einungis mikil-
væg af efnahagsástæðum
heldur eru þau e.t.v.
þýðingarmesti þátturinn
í því þjóðfélagskerfi, sem
nefna mætti auðstjórn
almennings eða fjárstjórn
fjöldans. Er þar átt við
mikilvægi þess, að sem
mestur hluti þjóðarauðsins
dreifist meðal sem allra
flestra borgara landsins,
að auðlegð landsins
safnist hvorki saman á
hendur fárra einstak-
linga né heldur ríkis eða
opinberra aðila. Þeir sem
þessa stefnu aðhyllast,
telja þá þjóðfélagsþróun
æskilegasta, að valdið
sem fylgir yfirráðum yfir
fjármagni, dreifist sem
mest meðal landsmanna
allra. Þeir benda á hættuna,
sem er því samfara, er
fjármálavald flyzt í stöðugt
ríkara mæli yfir á hendur
þeirra, sem fyrir hafa
pólitíska valdið; þá fyrst sé
veruleg hætta á misnotkun
valdsins.
Vefþjóðviljinn á andríki.is
7. október 2016
Barist fyrir lcesave-samningi
Endurreisa verður traust alþjóðasamfélagsins á því íslenska en það er forsenda þess að
íslensk fyrirtæki geti átt eðlileg viðskipti við umheiminn. Það er líka forsenda þess að íslenskt
fjármálakerfi komist fætur og eðlileg fjármálaviðskipti við útlönd geti hafist. Takist þetta ekki
fljótt og vel verða afleiðingarnar fyrir atvinnulífið, heimilin og þjóðfélagið allt alvarlegar og
gera illt verra. Þess vegna á Alþingi ekki annan kost en að samþykkja frumvarpið.
Ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda að deilur um lcesave dragist á langinn með tilheyrandi
frystingu lánafyrirgreiðslu til íslands, áframhaldandi óþolandi óvissu og viðvarandi útistöðum
íslands við nágrannaríki. Það að hafa slíkt hangandi yfir sér leiðir til frekari einangrunar íslands
og dýpkar og lengir kreppuna.
12 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016
Jón Steindór Valdimarsson í Morgunblaðsgrein 8.júlí2009.
Hann skipar2. sæti ViðreisnaríSuðvesturkjördæmi.